Fréttablaðið - 14.07.2008, Page 54
30 14. júlí 2008 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. kló, 6. klukka, 8. tala, 9. frosts-
kemmd, 11. til, 12. óróleg, 14. í vafa,
16. tveir eins, 17. flík, 18. pota, 20.
átt, 21. meltingarvökvi.
LÓÐRÉTT
1. hallærislegur, 3. kraðak, 4. fúslega,
5. gestrisni, 7. flugeldur, 10. meðal,
13. bein, 15. málhelti, 16. kaðall, 19.
járnstein.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. nögl, 6. úr, 8. sjö, 9. kal,
11. að, 12. ókyrr, 14. efins, 16. tt, 17.
fat, 18. ota, 20. na, 21. gall.
LÓÐRÉTT: 1. púkó, 3. ös, 4. gjarnan,
5. löð, 7. raketta, 10. lyf, 13. rif, 15.
stam, 16. tog, 19. al.
„Ég hlusta aðallega á það sem
mér líður vel í eyrunum með,
gömlu íslensku lögin helst. Ég
rokka á milli stöðvanna, er oft
bara með Gufuna og stund-
um Létt-Bylgjuna. Ég ætla að
skreppa á eftir og kaupa mér
Cortes.“
Skeggi Guðmundsson söðlasmiður.
„Síðan opnaði í maí og virðist vera
mjög vinsæl, allavega hafa tæp-
lega 5.000 manns skoðað síðuna
frá upphafi og yfir 1.000 manns
það sem af er júlí,“ segir Hollend-
ingurinn Robert van Spanje marg-
miðlunarhönnuður og höfundur
heimasíðunnar sundlaugar.is.
„Hugmyndin að síðunni kvikn-
aði þegar ég var sjálfur að leita
upplýsinga um sundlaugar á land-
inu en fann lítið sem ekkert á net-
inu. Mér fannst það skrítið miðað
við hvað það er mikil sundmenn-
ing á Íslandi svo ég hófst handa við
að gera heimasíðuna sundlaugar.
is,“ segir Robert um síðuna. Hún
var útskriftarverkefni hans frá
Margmiðlunarskólanum og inni-
heldur upplýsingar og kort af
staðsetningum nærri 200 sund-
lauga víðs vegar um landið.
„Síðan mun verða á fimm tungu-
málum árið 2009 svo ég vona að
bæði íslenskir ferðalangar sem og
erlendir ferðamenn muni hafa
gagn af henni, en ég er til dæmis
búinn að fá tölvupóst frá fólki í
Ástralíu, Bandaríkjunum og á
Ítalíu sem hefur nýtt sér síðuna nú
þegar. Ég vona líka að fólk skrái
hugmyndir sínar um sundlaugar
inn á heimasíðuna svo hún verði
gagnvirk, en ekki bara skrá um
sundlaugar landsins.“ - ag
Sundlaugar landsins skráðar
HVAR ER BESTA SUNDLAUGIN? Robert er
hönnuður heimasíðunnar sundlaugar.is
þar sem er að finna upplýsingar og kort
af nærri 200 sundlaugum víðs vegar um
landið. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
„Ég bjóst ekki við svona miklu
þegar ég skráði mig í valáfanga í
markaðsfræði,“ segir Svava
Hildur Steinarsdóttir, nemandi í
Fjölbrautaskólanum við Ármúla,
sem sigraði nýverið keppni Ungra
frumkvöðla ásamt samnemendum
sínum með hönnun þeirra á náms-
tæknibúnaðinum Recall 2008, en
alls kepptu sextán skólar um
titilinn.
„Samkeppnin gengur út á að
stofna fyrirtæki frá grunni, allt
frá því að ráða í stöður yfir í að
hanna vöru eða þjónustu og koma
henni á markað. Við stofnuðum
fyrirtækið Memor og hönnuðum
námstæknihugbúnað sem nefnist
Recall 2008. Það var Magnús Már
Hrafnsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, sem átti hugmynd-
ina að forritinu sem byggist á svo-
kallaðri flash-card tækni og virk-
ar sem glósu- og upprifjunarforrit.
Þetta var upphaflega bara skyldu-
verkefni í áfanganum svo það kom
okkur skemmtilega á óvart þegar
við hrepptum fyrstu verðlaun og
vorum valin bjartasta vonin,“
segir Svava sem mun ásamt sjö
samnemendum sínum taka þátt í
Evrópukeppninni sem verður
haldin í Stokkhólmi 24. júlí, en þar
munu þátttakendur frá 30 Evrópu-
löndum mætast.
„Við erum gífurlega spennt
fyrir keppninni úti og erum alveg
staðráðin í því að vinna hana. Í
janúar þekktist enginn af okkur
innan hópsins en við erum alltaf
að kynnast betur og betur og ég
býst við að við verðum orðin ansi
samheldin eftir þessa ferð,“ segir
Svava að lokum. - ag
Íslenskir frumkvöðlar í Evrópukeppni
STAÐRÁÐIN Í AÐ VINNA Hópurinn bar sigur úr býtum í fyrirtækjasmiðju Ungra frum-
kvöðla, en þau munu taka þátt í Evrópukeppni fyrir Íslands hönd í lok mánaðarins.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Bjarni Baldvinsson, betur þekktur
sem Bjarni töframaður, er einn af
átta töframönnum í símaskránni.
Kreppan hefur nú rekið hann út í að
gerast ökuprófdómari í hlutastarfi
en hann segir töframennskuna þó
alltaf vera sitt líf og yndi.
„Ég var byrjaður að fikta við
töfrabrögðin sex ára gamall en ég
fór að gera þetta fyrir peninga fyrir
tíu árum,“ segir Bjarni. „Síðustu
árin hef ég alfarið haft atvinnu af
þessu, en nú hefur kreppan rekið
mig út í ökuprófsdómgæsluna. Eða
ég segi svona, ég keypti mér íbúð
og þá er gott að hafa stöðuga vinnu.
Reikningarnir gera fátt annað en að
hækka. Eins og fyrir galdra!“
Galdrakarlar Íslands eru sam-
heldinn hópur sem hittist einu sinni
í mánuði. Það er enginn rígur í
hópnum og í fyrra var Hið íslenska
töframannagildi stofnað. Þetta er
hringur númer 371 innan IBM
(International Brotherhood of
Magicians). „Á fundunum er lagt á
ráðin, sýndir nýjir galdrar, horft á
videó og stundum fáum við utanað-
komandi fólk til að vera með fyrir-
lestra,“ segir Bjarni. „Það eru 25-30
manns í gildinu, jafnvel fólk sem er
lítið að galdra sjálft en hefur bara
áhuga á þessu.“ Og Bjarni er ekki í
neinum vafa um hver sé kóngurinn
í bransanum. „Það er Baldur Brjáns-
son. Hann er meira að segja mjög
framarlega í þessu á alþjóðlegum
mælikvarða. Það er synd að hann er
ekkert að „performera“ lengur því
hann er óhemju góður og hefur
flottan stíl.“
Bjarni segir að mörgum finnist
töfrabrögð ekki töff. „Þeir skipta
yfirleitt snarlega um skoðun þegar
þeir sjá þetta í framkvæmd. Svo
eru menn eins og Chris Angel að
reyna að gera þetta rokkað í sjón-
varpinu en satt að segja hef ég lítið
álit á honum. Hann blekkir kannski
Kanann en ég sé í gegnum þetta allt
hjá honum. Darren Brown finnst
mér hins vegar frábær. Hann er
ótrúlega magnaður „performer“.“
Bjarni blandar saman töfrabrögð-
um, uppistandi og söng og hefur
gengið vel að undanförnu. Hefur
meðal annars séð um veislustjórn
hjá Dominos og Vífilfelli og sló í
gegn í brúðkaupsveislu Bubba og
Hrafnhildar. En nú er hann orðinn
ökuprófdómari. „Ég er nýbyrjaður
og ætla að bæta við mig réttindum
svo ég geti prófað vegna meira-
prófsins líka. Ég reyni að galdra
mig í gegnum þetta. Krakkarnir eru
oft stressaðir og ég reyni að brjóta
ísinn með einhverju hnittnu. Þá
slaka þau á og gengur betur.“
Sjálfur er Bjarni með mótor-
hjóladellu og hefur verið Snigill
síðan 1996. Er Snigill númer 980.
„Ég er nýbúinn að fá mér gamalt
lögguhjól, 1450 kúbika Harley
Davidson.“
Er þá Bjarni ökuprófdómari
tryllandi um göturnar? „Nei nei,
þetta er meira svona hippahjól. Ég
er bara afslappaður og nýt þess að
láta vindinn leika um hjálminn.
Hann leikur allavega ekki um
hárið.“
gunnarh@frettabladid.is
BJARNI TÖFRAMAÐUR: ORÐINN ÖKUPRÓFDÓMARI Í HLUTASTARFI
Meira að segja töframenn
sleppa ekki við kreppuna
GALDRAR NEMENDUR Í GEGNUM ÖKUPRÓFIÐ Bjarni töframaður er með mörg járn
í eldinum. Eftir að hann keypti sér íbúð ákvað hann að fá sér fasta vinnu meðfram
töframennskunni. Fyrir valinu varð að gerast ökuprófdómari. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hrannar Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi Vodafone, ruglaðist eitthvað
í ríminu þegar hann ræddi við 24
stundir í síðustu viku um aug-
lýsingaherferð símafyrirtækisins,
sem hefur yfirskriftina „Skítt með
kerfið“. Hrannar nefndi að nú
hefðu öll símafyrirtækin notast við
hljómsveit úr Eurovision; Síminn
gert auglýsingar með Merzedez
Club, Nova frumsýnt myndband
Eurobandsins og Vodafone að
lokum fengið Dr. Spock í sína
þjónustu. Það er að vísu rétt að
Óttarr Proppé, sem leikur í aug-
lýsingunni, er í Dr. Spock en lagið
sem hann syngur er eftir pönk-
hljómsveitina Rass,
sem Óttarr er líka í.
Það kemur reyndar
ekki á óvart þótt
Hrannar sé illa að
sér í pönkfræðum.
Hann tók þátt
í söngvakeppni
framhaldsskólanna
á sínum tíma og
söng þá Diskó
friskó.
Athafnamaðurinn Björgólfur Thor
Björgólfsson snæddi á veitinga-
staðnum Silfur fyrir skemmstu.
Hann hreifst svo mjög af staðnum
að hann bókaði sig aftur þangað
síðastliðið laugardagskvöld, að
þessu sinni með
hópi fólks. Áður
hafði hann gengið
frá því við yfir-
menn á staðnum
að hann fengi
sama matseðil,
sömu vín, sama
þjónustufólk og
sömu kokka og
hann hafði
áður fengið.
Rokkhátíðin Eistnaflug þótti
takast ágætlega í Neskaupstað um
helgina. Einn almennra gesta vakti
athygli umfram aðra, enda með
reyndari mönnum í rokkinu. Sjálfur
Bassafanturinn, Þröstur Jóns-
son sem var í Mínus,
skemmti sér vel
enda nýkom-
inn af sjó á
nóta- og
togveiði-
skipinu
Berki NK.
- bs/hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 236 manns.
2 Ástríður.
3 Á Ítalíu.