Fréttablaðið - 15.07.2008, Side 27
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2008 7börn ● fréttablaðið ●
Regluna um að borða fimm eða
fleiri skammta af grænmæti og
ávöxtum á dag er auðvelt að muna
en oft erfiðaðara að fá smáfólkið
til að fylgja henni eftir.
Bandarísk rannsókn sýnir að
matarvenjur og eftirlætismatur
barna draga mjög dám af venj-
um foreldra. Það er líka háð því
hversu duglegir þeir eru að kynna
hollan mat fyrir börnunum, jafn
vel þótt þau hafni matnum í upp-
hafi.
Foreldrum er því ráðlagt að
vera duglegir við að bjóða unga-
börnum nýjar matartegundir.
Halda svo áfram jafnvel þótt það
þýði að þeim verði að bjóða skeið
af grænum baunum fimmtán sinn-
um áður en þau taka við þeim.
Niðurstöður annarrar rann-
sóknar sýna að börn taka nýjum
mat frekar á aldrinum tveggja til
fjögurra ára en á aldursbilinu fjög-
urra til átta ára. Ekki þýðir það þó
að orðið sé of seint að fá eldri börn
til að borða öðruvísi mat. Klass-
ískt ráð er að bæta ávöxtum og
grænmeti út í mat sem börnunum
þykir nú þegar góður. Til dæmis
getur verið sniðugt að búa til ban-
ana- eða kúrbíts muffins eða setja
niðurskorna ávexti út í jógúrt.
Nánar á www.keepkidshealthy.
com. - mþþ
Tveggja til fjögurra ára börn eru mót-
tækilegri fyrir nýjum mat en á aldrinum
fjögurra til átta ára, að því er kemur
fram í nýlegri rannsókn. NORDICPHOTOS/GETTY
Að mörgu þarf að huga þegar valin
eru húsgögn inn í barnaherbergi.
Í fyrsta lagi er gott að hafa hús-
gögnin sterk svo þau þoli ágang og
hnjask.
Stærð herbergja skiptir síðan
ekki alltaf höfuðmáli heldur
hvernig húsgögnunum er raðað
upp. Húsgögn á hjólum eru til að
mynda tilvalin því þau er hægt að
færa til að vild.
Þá er hægt að hafa upphækk-
að rúm í herberginu ef pláss er af
skornum skammti. Við það verð-
ur gólfplássið meira og hægt að
vinna betur með rýmið.
Kojur henta vel þar sem tvö
börn eru saman í herbergi og jafn
vel hægt að slá tveimur litlum
herbergjum í eitt stærra ef börnin
eru sátt við það fyrirkomulag.
- stp
Hver hlutur á
sínum stað
Kojur eru vinsælar hjá þeim sem hafa
lítið pláss. NORDICPHOTOS/GETTY
Hollusta í há-
vegum höfð
Fræðslunefnd Stangveiðifélags
Reykjavíkur stendur fyrir
veiðidögum fyrir börn og ungl-
inga í Elliðaám fjórum sinnum
í sumar. Sá fyrsti var haldinn
sunnudaginn 6. júlí. Þann dag veidd-
ust fimm laxar, fjórir á maðk og einn
á flugu.
„Þetta eru dagar sem eru hugsaðir fyrir
börn og unglinga í Stangveiðifélagi Reykja-
víkur,“ segir Haraldur Eiríksson, markaðsfull-
trúi Stangveiðifélags Reykjavíkur. Að sögn
Haraldar er barna- og unglingastarf í SVFR
öflugt og meðlimir undir sextán ára aldri um
fjögur hundruð talsins. „Við reynum að hafa
barna- og unglingastarfið sem líflegast allt
árið.“
Veiðidagarnir eru mjög vinsælir
og uppbókað er alla dag-
ana því bókað er
með talsverðum fyrirvara. „Þessir dagar fyll-
ast alveg um leið,“ upplýsir Haraldur.
Hann segir að neðri aldurstakmörkin séu
miðuð við það að barnið geti haldið á veiði-
stöng og landað fiski. „Við förum ekki með
allra yngstu börnin í þetta. Síðan er það upp að
sextán ára aldri.“ - mmf
Líflegt allt árið um kring
Fræðslunefnd SVFR heldur fjóra
barna- og unglingaveiðidaga í
sumar. MYND/G. BENDER