Fréttablaðið - 15.07.2008, Side 40
24 15. júlí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Triangle Productions munstanda
fyrir tónleikum á Organ í kvöld.
Tónlistarmaðurinn Josh Martinez
mun koma fram en hann er einn
virtasti neðanjarðarrappari
heimsins í dag og fékk plata hans
Buck up Princess verðlaun fyrir
bestu hiphop-plötu ársins í föður-
landi hans Kanada árið 2004.
Írski plötusnúðurinn DJ Flip
mun einnig þeyta skífum fyrir
tónleikagesti. DJ Flip er fyrrver-
andi heimsmeistari í skífu-
þeytingum og er hér á landi að
spila í þriðja sinn. Íslensku tón-
listarmennirnir Introbeats, Arkir
og Mælginn koma einnig fram í
kvöld ásamt Josh Martinez og DJ
Flip.
Triangle Productions er plötu-
fyrirtæki í eigu listamannanna
Rain og Beatmakin Troopa og
hefur fyrirtækið staðið fyrir
ýmsum tónleikum síðastliðið ár.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur og
hefjast tónleikarnir klukkan
21.00. - sm
Neðanjarðarrapp á Organ
„Ég dvel á landinu í tvo mánuði og
verð á ferðinni nánast allan tím-
ann,“ segir söngkonan Hera
Hjartar dóttir sem mun hefja tón-
leikaferðalag sitt um landið í
Oddakirkju í Þykkvabæ næstkom-
andi fimmtudag. „Ég er líka í smá
kynningarferð og ætla að vera
dugleg að taka myndir og setja inn
bloggfærslur um Ísland og allar
þessa sjarmerandi litlu kirkjur og
félagsheimili sem ég mun spila í
og þykir vænt um,“ segir Hera
sem lýkur ferðalagi sínu í Edin-
borgarhúsinu á Ísafirði í lok ágúst,
en alls mun hún mun halda þrettán
tónleika víða um landið og kynna
nýútkomna plötu sína Live at
AL‘s.
„Platan er tileinkuð móður-
ömmu minni, Báru Björnsdóttur,
sem lést fyrir tveimur árum og
kenndi mér svo margt, en platan
var einmitt tekin upp á afmælis-
og útfarardegi hennar í maí,“
útskýrir Hera og segir plötuna
vera væntanlega í dreifingu á
næstu dögum.
Hera er búsett á Nýja-Sjálandi
og nú eru tvö ár liðin síðan hún
kom síðast til landsins, en að henn-
ar sögn hefur lítið breyst. „Það
eru nokkrir hlutir sem eru mjög
líkir með löndunum tveimur, til
dæmis hreina vatnið, eldvirknin
og góða lambakjötið, en svo eru
líka algjörar andstæður. Gott
dæmi er að allir svanirnir á Nýja-
Sjálandi eru svartir. Svo er auðvit-
að hávetur þar núna, sem ég slepp
við á meðan ég dvel hérlendis,“
segir Hera að lokum. - ag
Hera ferðast um landið í sumar
FINNST GAMAN AÐ TAKA MYNDIR Hera ætlar að nota tónleikaferðalag sitt til að
taka myndir og kynna land og þjóð á blogg- og heimasíðu sinni, en hún mun halda
þrettán tónleika á Íslandi og kynna nýja plötu sína Live at AL‘s.
SPILAR Á ORGAN Í KVÖLD Rapparinn
Josh Martinez er einn fremsti neðan-
jarðarrapparinn í dag.
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA.
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SELFOSS
MAMMA MÍA kl. 8 - 10:20 L
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 8 L
HANCOCK kl. 10:10 12
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 6 - 8 L
NARNIA 2 kl. 5:40 7
WANTED kl. 8 12
MAMMA MÍA kl. 3:40 - 5:40D - 8D - 10:20D L
MAMMA MÍA kl. 5:40 - 8 - 10:20 VIP
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 3:40D- 6 L
KUNG FU PANDA m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 L
HANDCOCK kl. 8 - 10:10 12
WANTED kl. 5:40 - 8 - 10:20 16
NARNIA 2 kl. 5 7
INDIANA JONES 4 kl. 8 12
THE BANK JOB kl. 10:20 16
MEET DAVE kl. 6 - 8 - 10 L
WANTED kl. 8D - 10:20D 16
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 6D L
NARNIA 2 kl. 6 - 9 7
DIGITAL
DIGITAL
MAMMA MÍA kl. 8 - 10:20 L
MEET DAVE kl. 8 7
HANCOCK kl. 10 12
Eddie Murphy er inn í Eddie Murphy í frábærri
gamanmynd fyrir alla fjölskylduna!
Þau komu langt utan úr geimnum í fullkomnu dulargervi!
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI!
* * * * Ó.H.T, RÁS 2
* * * T.V, Kvikmyndir.is
* * * L.I.B, Topp5.is/FBL
Það er heill heimur inni
í honum sem heldur
honum gangandi!
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
7
12
12
MAMMA MIA kl. 6 - 8 - 10
HANCOCK kl. 8 - 10
BIG STAN kl. 6
12
12
MAMMA MIA kl. 5.30D - 8D - 10.30D
MAMMA MIA LÚXUS kl. 5.30D - 8D - 10.30D
MEET DAVE kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
HANCOCK D HJÓÐ & MYND kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
KUNG FU PANDA ÍSL. TAL kl. 3.45 - 5.50
THE INCREDIBLE HULK kl. 8 - 10.30
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
12
14
MAMMA MIA kl. 6 - 8.30 - 11
HANCOCK kl. 5.50 - 8 - 10.10
KUNG FU PANDA ENSKT TAL kl. 6 - 8 - 10
SEX AND THE CITY kl. 6 - 9
5%
5%
SÍMI 551 9000
7
12
12
16
14
10
MEET DAVE kl. 6.10 - 8.30 - 10.40
BIG STAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE INCREDIBLE HULK kl. 5.30 - 8
HAPPENING kl. 10.20
SEX AND THE CITY kl. 10.20
ZOHAN kl. 5.40 - 8
SÍMI 530 1919
FÍNASTA
SUMARSKEMMTUN
- V.J.V., TOPP5.IS/FBL
Þau komu langt utan úr geimnum
í fullkomnu dulargervi!
- bara lúxus
Sími: 553 2075
HELLBOY 2 - MASTERCARD FORSÝNING kl. 8 12
MAMMA MIA - DIGITAL kl. 4, 5.50, 8 og 10.10 L
HANCOCK kl. 6:10, 8 og 10.10 12
KUNG FU PANDA - ÍSl.TAL kl. 4 L
WANTED kl. 10 16
NARNIA: PRINCE CASPIAN kl. 5 7
M Y N D O G H L J Ó Ð
ÞETTA ER KLASSÍK
- Ó.H.T, Rás 2
2 FYRIR 1
Jón Gunnar Þórðarson leik-
stjóri stendur í fyrirtækja-
rekstri í kringum hljóðbæk-
urnar Íslenskar þjóðsögur,
sem nýlega litu dagsins ljós.
Fyrirtækið heitir Heyr heyr
og sér um hljóðsetningar.
„Okkur fannst þetta vanta. Það er
félag sem einbeitir sér algjörlega
að hljóðmynd. Það eru til hljóð-
bækur sem eru í sjálfu sér góðar
en þar er helst beinn upplestur.
Svo eru til geisladiskar með tón-
list. Við vildum láta þetta haldast í
hendur og búa til bíómynd á geisla-
diskaformi, nánast,“ segir Jón
Gunnar Þórðarson um fyrirtækið
Heyr heyr.
Jón Gunnar hefur aldrei rekið
fyrirtæki áður. „Það er nú með
leikstjórn að það er hálfgert fyrir-
tæki. Maður er kominn með
reynslu af því að basla í leikhúsi
þar sem maður þarf að búa til
vinnuna sjálfur. Ég þurfti að gera
það með Silfurtunglið og lærði af
því. Annars er það nýtt fyrir mér
að fara í allar þessar tölur og þess
háttar en það er bara spennandi.“
Er Jón Gunnar hræddur við
bókhaldið? „Nei. Þess vegna erum
við með viðskiptafræðing í fyrir-
tækinu. Núna eru fjórir starfs-
menn. Ég er leikstjórinn, Sindri
Þórarinsson er hljóðhönnuður og
Egill Antonsson er tónlistarmaður.
Svo er Andri Franklin Þórarinsson
viðkiptafræðingur og bókhaldari.
Þetta er allt í öruggum höndum.“
Diskarnir, sem eru tveir, eru
byggðir á Þjóðsögum við þjóðveg-
inn eftir Jón R. Hjálmarsson. Jón
Gunnar segir verkefnið hafa orðið
til í samræðum um hvað væri
hægt að gera. „Það er alltaf gaman
þegar maður finnur eitthvað og
hugsar, er þetta ekki til? – og svo
er það ekki til. Þjóðsögur eru eitt-
hvað sem allir eiga að geta tengt
við og hljóðsetningin er nýjung.“
Fjöldi leikara kemur að lestri, en
aðalsögumaður er Sigursteinn
Másson, sem fólk þekkir úr Sönn-
um íslenskum sakamálum. Jón
Gunnar segir fleiri verkefni í
vinnslu hjá Heyr heyr, fyrir börn
sem fullorðna. Þeirra að auki eru
nokkur fram undan hjá Jóni
sjálfum. Leikfélag hans, Silfur-
tunglið, sýnir Fool for Love á
Akureyri, þar sem hann leikstýrir
einnig nýju leikriti eftir Bjarna
Jónsson.
„Svo eru einhver fleiri plön með
Silfurtunglið en það er enn á
skemmtilegu stigi. Það verða ein-
hverjir af sömu leikurunum, bara
eftir því hvaða verk verður valið.
Svo er áframhaldandi samstarf
við KK og eitthvað fleira í
bígerð.“
kolbruns@frettabladid.is
Hljóðbækur sem lifna við
LEIKSTJÓRN HÁLFGERT FYRIRTÆKI Jón Gunnar Þórðarson ræðst í rekstur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR