Fréttablaðið - 12.08.2008, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 12.08.2008, Blaðsíða 8
8 12. ágúst 2008 ÞRIÐJUDAGUR 1 Hvaða leið vill Birgir Ár- mannsson skoða? 2 Hvað fær nýr forstjóri LSH mikla launahækkun? 3 Hvers konar skemmtigarður er að rísa í Gufunesi? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30 STJÓRNSÝSLA „Þetta er nú ekki svo einfalt,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, fulltrúi Sjálfstæðis - flokks í utanríkismálanefnd, um orð samflokksmanns síns Kristj- áns Þórs Júlíussonar þess efnis að hugsanlega þurfi að breyta nýsamþykktum varnarmála lög- um vegna ákvæða um svokölluð NATO-mannvirki á Keflavíkur - flugvelli og víðar. Utanríkismálanefnd fundaði í gær að beiðni Vinstri grænna með fulltrúum utanríkis ráðuneytisins um eignarhald á mannvirkjun- um. Utanríkisráðuneytið birti í lok júní auglýsingu yfir „eignir NATO“ á Íslandi. Raunin er þó sú að íslenska ríkið á allar eignirnar, þótt NATO fari með óbeinan eignar rétt í þeim í formi afnota- réttar. Kristján Þór, sem er varafor maður fjárlaganefndar, sagði í samtali við Fréttablaðið í júlí að málið væri með ólíkindum. Ákvæði í varnarmálalögum um mannvirkin stönguðust á við fjár- reiðulög og að varnamálalögum bæri að breyta. Ragnheiður Elín segir fulltrúa utanríkisráðuneytisins hafa skýrt málið vel. „Mér sýnist málið vera á réttri leið eins og það er unnið núna og hef svo sem ekkert út á þá leið að setja,“ segir Ragn heiður Elín. Hún segist ekki treysta sér til að fullyrða að varnarmálalög stangist ekki á við fjárreiðulög, en henni virðist málið eðlilega vaxið miðað við lagaheimildir í varnarmála lögum og þjóðréttar- lega samninga og skuldbinding- ar. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, varamaður Samfylkingar í nefnd inni, tekur í sama streng. „Mér fundust útskýringar ráðu- neytisins fullnægjandi og ég get ekki tekið undir orð Kristjáns Þórs,“ segir hún.“ „Þessi auglýsing var hrein og klár mistök,“ segir Steingrímur J. Sigfússon. „Og eftir atvikum sam- bærilegt orðalag sem því miður rataði á ákveðnum stöðum inn í varnarmálalög. Þetta þarf að leið- rétta.“ Hann telur að stefna eigi að því að öll mannvirki utan skýrt skilgreindra öryggissvæða fær- ist undan forræði Varnar- mála stofnunar og undir önnur fag ráðuneyti. Komið geti til þess að breyta þurfi varnarmálalögun- um. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Fram sóknarflokks, kallar eftir skýrum svörum frá stjórnar - flokkunum um það hvort breyta þurfi varnarmálalögum eins og Kristján Þór hefur nefnt. Utanríkismálanefnd mun fjalla áfram um málið og fá á sinn fund meðal annars fulltrúa Flugmála- stjórnarinnar á Kefla víkurflug- velli, fjármálaráðu neytisins og jafnvel samgöngu ráðuneytisins. stigur@frettabladid.is Ekki samstaða í Sjálfstæðis- flokki um NATO-mannvirkin Sjálfstæðismaður í utanríkismálanefnd tekur ekki undir það með samflokks manni sínum og varafor- manni fjárlaganefndar að ákvæði í varnar málalögum um NATO-mannvirki kalli á breytingar á lögunum. Lélegar verðmerkingar hafa verið nokkuð í umræð- unni að undanförnu. Fréttablaðinu barst fyrirspurn um ástand mála hjá Neytendastofu og hvort stofnunin hygðist beita sektum. Hvernig stendur á því að Neytendastofa sendir verslunum sem verðmerkja vörur sínar illa eða jafn- vel ekkert viðvörun, jafnvel þótt að um fleiri en eitt brot sé að ræða? Ekki fæ ég aðvörun frá lögreglunni ef ég ek á of miklum hraða, svo ég tali nú ekki um frá til dæmis skattinum borgi ég of litla skatta? Þórunn Anna Árnadóttir, sviðsstjóri neytenda- réttarsviðs Neytendastofu, segir að málið snúist um að gefa verslunum tækifæri til að bæta sig áður en komi til sekta. „Við erum nýfarin að stunda harðara eft- irlit en áður og ætlum ekki að hika við að sekta þær verslanir sem við höfum nú þegar sent viðvaranir, bæti þær ekki úr verðmerkingum.“ Þórunn segir að Neyt- endastofa hafi vald til þess að beita bæði dag- og stjórnvaldssektum og muni gera það ef þörf krefji. „Við höfum fullan hug á að fylgjast áfram með þeim verslunum sem ekki fara að lögum.“ Neytendastofa hefur fullan hug á að sekta verslanir: Verðmerkingar skulu bættar VERÐMERKINGAR Í VERSLUNUM Neytendastofa hefur fullan hug á að standa sig betur en áður hefur tíðkast. KÖNNUN Lestur Fréttablaðsins og 24 stunda stendur í stað sam- kvæmt lestrarkönnun Capacent Gallup. Lestur Morgunblaðsins hefur dregist saman um 2,9 pró- sentustig milli kannana og hefur aldrei mælst minni. Fréttablaðið er enn langmest lesna dagblað landsins. Að meðal- tali sögðust 64,8 prósent aðspurðra hafa lesið hvert tölublað í nýrri könnun Capacent. Talsvert færri sögðust lesa 24 stundir, meðallestur á hvert tölu- blað mældist 50,4 prósent. Enn færri sögðust lesa Morgunblaðið, meðallesturinn mældist 38,7 pró- sent, samanborið við 41,6 prósent í síðustu könnun Capacent, sem unnin var dagana 1. febrúar til 30. apríl síðastliðinn. Alls sagðist 89,1 prósent hafa lesið eitthvað í Fréttablaðinu þá viku sem spurt var, en í síðustu könnun var hlutfallið 90 prósent. Af þeim sem tóku þátt í könnun- inni sögðust 74,5 prósent hafa lesið eitthvað í 24 stundum þá vik- una, svipað hlutfall og í síðustu könnun. Alls sögðust 66,7 prósent hafa lesið eitthvað í Morgunblað- inu, samanborið við 67,1 prósent í síðustu könnun. Könnun Capacent var símakönnun, unnin á tímabil- inu 2. maí til 30. júlí. Hringt var í 4.500 Íslendinga á aldrinum 12 til 80 ára. Þátttakendur voru valdir tilviljanakennt úr þjóðskrá. Svar- hlutfallið var 60,9 prósent. - bj Lestur Fréttablaðsins og 24 stunda stendur í stað í nýrri lestrarkönnun Capacent: Færri lesa Morgunblaðið MEÐALLESTUR Á TBL. ■ Fréttablaðið ■ Morgunblaðið ■ 24 Stundir 80 70 60 50 40 30 maí- júlí feb.- apríl nóv. ´07- jan. ´08 ágúst- okt. maí- júlí % HEIMILD: CAPACENT GALLUP RAGNHEIÐUR ELÍN ÁRNADÓTTIR SIV FRIÐLEIFSDÓTTIRSTEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Á MIÐNESHEIÐI Meðal annars er um að ræða tvær aðalflugbrautir Keflavíkurflugvallar og ljósleiðaraþræði sem leigðir hafa verið út til almennra nota. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð Vestmannaeyja ætlar nýjum stýrihópi að tryggja að „töfrar þjóðhátíðar tapist aldrei og hún haldi áfram að vera Eyjamönnum öllum til sóma“, eins og segir í samþykkt bæjarráðs sem telur að vegna breytinga á samgöngum á sjó með tilkomu Land-Eyjahafnar sé sem aldrei fyrr þörf á að marka þjóðhátíðinni stefnu. „Áætla má að sú siglingaleið geti flutt allt að 5.000 manns á sólarhring samanborið við um 1.800 manns á núverandi siglinga- leið,“ bendir bæjarráðið á sem ætlar stýrihópnum meðal annars að móta uppbyggingu á hátíðar- svæðinu, áherslur í markaðssetn- ingu og öryggismál. - gar Aukin flutningsgeta: Tryggi töfra þjóðhátíðar ÞJÓÐHÁTÍÐ 2008 Met var sett með þrettán þúsund gestum. LÖGREGLAN „Við gerðum bara það sem talið er algjört lágmark og skoðuðum vagna sem fólkið var í og gönguleiðina. Athuguðum ef eitthvað grunsamlegt sást,“ segir Geir Jón Þórisson yfirlögreglu- þjónn. Fréttastofu Stöðvar 2 barst fyrir nokkru hótun um tvær sprengjur sem áttu að springa í gleðigöngunni í miðbæ Reykja- víkur nú um helgina. „Þetta er þekkt fyrirbrigði og eins og okkur grunaði,“ segir Geir Jón. Hótunin var gabb. „En við gerðum samt ráðstafanir til öryggis, þótt það sé erfitt í svona fjölmennri og langri göngu.“ - kóþ Sprengjuhótun í gleðigöngu: Lögregla leitaði að sprengjunni UMHVERFISMÁL Mengun þung- málma í hafinu umhverfis landið er almennt vel undir alþjóðlegum viðmiðunarmörkum, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Matís um breytingar á lífríki sjávar við landið. Þungmálmar eru frumefni sem eru upprunnir í náttúrunni en styrkur þeirra getur aukist vegna aðgerða manna. Síðan 1989 hefur verið í gangi árlegt vöktunar- verkefni á mengunarefnum í lífríki hafsins við Ísland. Mikilvægt er talið að vakta magn þungmálma í hafinu við Ísland til að geta borið stöðu Íslands saman við ástand í öðrum löndum. Það er ekki síst talið áríðandi vegna mikilvægis sjávarafurða fyrir þjóðina. - shá Lítið um þungmálma: Ástand lífríkis- ins afar gott SJÁVARÚTVEGUR Heildaraflinn í nýliðnum júlímánuði var 152.875 tonn, samkvæmt tölum Fiski- stofu. Það er rúmlega 36 þúsund tonna aukning í afla milli ára en aflinn í júlí 2007 var 116.228 tonn og munar þar mestu um makríl í afla síldveiðiskipa. Alls hafa veiðst 63.222 tonn af makríl miðað við 21.503 tonn í júlí 2007. Botnfiskaflinn í júlí 2008 var 32.871 tonn en botnfiskaflinn var 35.341 tonn í júlí 2007. Veiðar á norsk-íslensku síldinni gengu þokkalega en síldarafli í júlí var 54.225 tonn en aflinn var 47.913 tonn í júlí 2007. Heildarafli ársins 2008 var í lok júlí 775.731 tonn. Á sama tíma í fyrra var heildarafli ársins 975.134 tonn. - shá Aukinn afli í júlí: Mestu munar um makríl DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykj- a víkur hefur dæmt hálffimmtug- an karlmann í sextíu daga skilorðs bundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni. Brotin áttu sér stað í lögreglu - bíl á leið á lögreglustöðina við Hverfisgötu í febrúar síðast liðn- um. Maðurinn var ósáttur við vistina í bílnum og sparkaði í öxl lögreglumannsins sem ók bílnum, með þeim afleiðingum að honum fipaðist við aksturinn. Auk þess hótaði hann tveimur lögreglu - mönnum lífláti. Maðurinn játaði brot sín við þingfestingu málsins og var það dómtekið um leið. - sh Dæmdur fyrir spark og hótun: Fipaði lögreglu - þjón við akstur HELGA ÞÓREY neytendur@frettabladid.is Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@frettabladid.is VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.