Fréttablaðið - 12.08.2008, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 12.08.2008, Blaðsíða 17
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Hljóðmaðurinn Bjarni Bragi Kjartansson mun setjast aftur á skólabekk í haust eftir langt hlé. „Ég hef verið að velta þessu fyrir mér frekar lengi og ákvað síðan bara að skella mér,“ segir Bjarni Bragi Kjartansson, hljóðmaður og tilvonandi námsmaður, inntur eftir því hvers vegna hann ákvað að setjast á skólabekk eftir 25 ára hlé. „Mér finnst tími til kominn að prófa eitthvað nýtt og takast á við nýja hluti. Ég er búinn að vera í sama starfinu í tólf ár. Þetta verður sami hringurinn aftur og aftur og það er engin áskorun í því,“ segir Bjarni en hann vinnur við lokahljóðvinnslu á hljómplötum eða það sem kallast „mastering“ á ensku og hefur hann unnið um 1.000 íslenskar plötur. „Ég ætla að fara á Bifröst að læra hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði, eða HHS eins og það er kallað. Ég þarf reyndar að byrja á að fara í frumgreinadeild á Bifröst í einn vetur,“ segir Bjarni og hann lítur á það sem góðan grunn að byrja í frum- greinadeildinni. „Það verður gott að byrja þar, ekki endilega hvað námsefnið varðar heldur svona til að koma mér í námsgírinn og læra vinnubrögðin. Eftir svona langt hlé hafa þau aðeins gleymst,“ segir hann hlæjandi. Þegar Bjarni er spurður að því af hverju hann valdi að fara á Bifröst segir hann að hluti af ástæðu þess að hann ákvað að hefja nám hafi verið að komast í nýtt umhverfi. „Ef ég er á Bifröst næ ég að einbeita mér alveg að náminu ásamt því að komast í annað umhverfi.“ Inntur eftir því af hverju hann valdi þetta nám segir hann að hann hafi langað í það um leið og hann kom auga á það. „Mér finnst námið einkar spennandi og hlakka mikið til að byrja,“ segir Bjarni, spenntur að takast á við nýja hluti. sigridurp@frettabladid.is Leitar á nýjar slóðir Bjarni Bragi Kjartansson hlakkar til að skipta um umhverfi og hefja nám á Bifröst. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Hljóðfæranám er í senn skemmtilegt og þroskandi fyrir fólk á öllum aldri. Skráning stendur yfir í mörgum tónlistar- skólum víða um land en finna má upplýsingar um marga þeirra inni á vefnum www.musik. is. Skólarnir eru meðal annars flokkaðir eftir landshlutum þannig að auðvelt ætti að vera að finna hinn eina rétta. Tungumálakunnátta verður sífellt nauðsynlegri í nútímasam- félagi og því er um að gera að byrja snemma að læra. Mímir símenntun býður upp á byrjendanámskeið fyrir börn á aldrinum 5-9 ára sem hefjast 23. september en skráning stendur nú yfir. Köfun getur verið skemmtileg íþrótt en nauðsynlegt er að kunna réttu tökin. Köfunarskólinn býður upp á ýmis námskeið í köfun en nemendur læra á sínum eigin hraða í samráði við kennara. Nánari upplýsingar um köfunarnámskeið má finna á www.kofunar- skolinn.is. Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.