Fréttablaðið - 12.08.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 12.08.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Ég var að fletta í smásagna-safninu Flýgur fiskisaga eftir Hrafn Gunnlaugsson nú um helg- ina þegar ég kem auga á gamalt ástarljóð sem ég hafði párað á eina spássíuna sem Krummi hafði skilið eftir fyrir mig. ÉG orti í bókina því jafnvel þótt titill hennar, og reyndar nafn höfundar líka, gæfu til kynna að hún kæmist á flug hafði ég alltaf getað gengið að henni vísri í bókahillunni. Enginn hefur lagt það í vana sinn að lesa skruddur mínar og aldrei hendi ég bókum svo þetta var hinn besti felustað- ur fyrir þankagang sem gott væri að halda til haga en glap- ræði að bera á torg. LJÓÐIÐ var ort til Láru nokk- urrar fyrir allmörgum árum en þá var til siðs hjá unglingum að elska á ensku jafnvel þótt tungu- málakunnáttan væri af skornum skammti. Það vantaði hins vegar ekkert upp á ástríðuna né bölv- aða örvæntinguna því ekki er annað að skilja á ljóðinu en að hinu unga skáldi með pitsuand- litið yrði vart hugað líf nema Lára færi að endur gjalda honum ást sína. Það var greinilega komið að gjalddaga og örvænt- ingin ætlaði að stýra fleyi mínu í strand. ÞARNA var ég í miklum þreng- ingum og því var það gott að finna ljóðið einmitt nú á þessum þrengingatímum þegar örvænt- ingin vill kippa í stýrið og sigla mannfleyinu í mikinn ólgusjó þegar líða tekur að gjalddaga. EN örvæntingin er hræðilegur skipstjóri því hún gleymir því að tíminn læknar öll sár. Reyndar gerir hann gott betur því hann getur með sínum lævíslega hætti snúið forgangsröð manna á hvolf. Á tæknimáli er venjulegast sagt um stjórnendur, sem gleyma þessari breytu, að þeir byggi ákvarðanir sínar á ófullnægjandi upplýsingum. NÚ, ótal gjalddögum síðar, þakka ég guði fyrir að hún fékk ekki að stýra því núna er Lára líklegast í óða önn að ala upp sína krakka; reka þá úr rekkju að morgni dags, smyrja fyrir þá nesti og þegar kvölda tekur les hún fyrir þá. Þegar Óli lokbrá hefur tekið við þeim getur hún svo komið sér fyrir í hjónarúm- inu og elskað sinn mann fram eftir nóttu; mér að sársauka- lausu. Ástarljóð til Láru Í dag er þriðjudagurinn 12. ág- úst, 225. dagur ársins. 5.10 13.33 21.52 4.43 13.17 21.49 WWW.UU.IS Úrval-Útsýn kynnir nýjan bækling: Vetrarfrí 2008 - 2009. ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000 ~ FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS Sólin skín á áfangastaði Úrvals-Útsýnar allan komandi vetur. Úrvalið hefur aldrei verið meira og geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi; ævintýraferðir um framandi heimsálfur, skemmtiferðasiglingar um suðræn höf, skíðaferðir í ítölsku Ölpunum og svo hinar sívinsælu sólarstrendur á Tenerife og Kanarí. Vetrarbæklingnum verður dreift með Morgunblaðinu á morgun og má nálgast hann á söluskrifstofum Úrvals-Útsýnar strax eftir helgina. Tryggðu þér eintak því við erum byrjuð að bóka. Ódýrustu sætin bókast fyrst! Ferðaskrifstofa Leyfishafi Ferðamálastofu Hvar verður þú í vetur? Tryggðu þér eintak því við erum byrjuð að bóka. Ódýrustu sætin bókast fyrst! ...ég sá það á visir.is Segir grafhýsi Kleópötru fundið Myndir berast frá Mars Tilfærsla yfir á hægri akrein sviðsett Býst við minni verðbólgu MEST LESIÐ:

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.