Fréttablaðið - 12.08.2008, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 12.08.2008, Blaðsíða 36
 12. ágúst 2008 ÞRIÐJUDAGUR timamot@frettabladid.is WILLIAM BLAKE LÉST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1827. „Það er auðveldara að fyrir- gefa óvini en vini.“ Blake var enskt skáld, listmálari og bókagerðarmaður. Leikkonan broshýra Hall- dóra Geirharðsdóttir er að sögn mikið afmælisbarn. „Þó að ég verði að vinna að þessu sinni ætla ég að skála við vini um leið og færi gefst,“ segir hún. „Það er alveg agalegt að missa af svona mómentum, maður verður að nota tæki- færið og halda gott partí.“ Halldóra verður við tökur á myndinni Reykjavík Whale Watching Massacre á afmæl- isdaginn og finnst það vel við hæfi. „Þetta er fyrsta ís- lenska „splatter“-myndin en ég hef alltaf verið mikill að- dáandi slíkra mynda.“ En hvaða afmælisdagur er eftirminnilegastur í huga leikkonunnar? „Þegar ég var 26 ára gekk ég á Háöldu og það var frekar magnað. Það var alveg heiðskírt og ég sá yfir hálendi Íslands og nán- ast alla jökla.“ En varstu ein um upplif- unina? „Nei, ég var að kokka ofan í franska túrista í Land- mannalaugum og fór ásamt þeim og Haraldi Jónssyni frænda mínum, sem var leið- sögumaður. Sem betur fer kunni ég ekkert í frönsku og þurfti því ekki að tala við túristana. Við Halli áttum því mómentið saman á ís- lensku.“ Halldóra heldur í Borgar- leikhúsið að venju í haust, til að æfa Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonar- son, auk þess sem trúðurinn hennar, Barbara, mun kynna tónsprotatónleika Sinfóníu- hljómsveitarinnar. Eftir jól er hún svo á leið í námsleyfi til Frakklands með fjölskyld- una og verður í hálft ár. „Þar ætla ég að læra frönsku en þar sem ég á franskan mann finnst mér tími til kominn að ég geti keypt brauð úti í búð og skilið það sem fer fram við matarborðið.“ En sérðu þig fyrir þér í leiklistinni það sem eftir er? „Það ætla ég að vona ekki,“ segir hún ákveðin. „Ég vona að það gerist eitthvað meira og næst langar mig að ger- ast dansari og ferðalangur. Ég hef eingöngu komið til Evrópu, örstutt til Asíu og til austurstrandar Bandaríkj- anna en á alla Eyjaálfu, Asíu, Afríku og Suður-Ameríku eftir.“ vera@frettabladid.is HALLDÓRA GEIRHARÐSDÓTTIR: 40 ÁRA Dansinn næstur LANGAR AÐ KANNA HEIMINN Halldóru langar í framtíðinni að ferðast um heiminn og dansa. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Þennan dag árið 1942 hófst bar- daginn um Stalín- grad en hann umbylti gangi seinni heims- styrjaldarinnar. Bardaginn hófst með um- sátri þýska hers- ins um borgina Stalíngrad, sem nú heitir Volgograd, í Suður- Rússlandi. Í framhaldi blossaði upp bardagi um borgina sjálfa sem lauk með því að sovéski herinn umkringdi sjöttu herdeild þýska hersins sem að lokum gafst upp. Bardaginn stóð í hálft ár en sjötta her- deildin gafst upp hinn 2. febrúar 1943. Um tvær milljón- ir manna féllu og tap- aði Þriðja ríkið miklum mann- afla og hergögnum. Herinn náði sér ekki á strik eftir það og sigur Sovétmanna varð til þess að kú- vending varð í seinni heimsstyrj- öldinni sem endaði með falli Þriðja ríkisins árið 1945. Enn þann dag í dag má finna gömul hergögn og bein í borg- inni við bakka Volgu. ÞETTA GERÐIST: 12. ÁGÚST ÁRIÐ 1942 Barist um Stalíngrad Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir, mágur og tengdasonur, Davíð Héðinsson húsasmíðameistari og iðnrekstrarfræð- ingur, Garðsstöðum 9, Reykjavík, er lést á Landspítalanum miðvikudaginn 6. ágúst, verð- ur jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 13. ágúst kl. 13.00. Kristín Benný Grétarsdóttir Grétar Atli, Gunnar Atli og Anna Sigrún Davíðsbörn. Margrét Héðinsdóttir Björn Guðmundsson María Solveig Héðinsdóttir Sigfús R. Sigfússon Emil Björn Héðinsson Margrét Björg Guðnadóttir Magnús Héðinsson Margrét Þórarinsdóttir Óskar E. Grétarsson Helga Harðardóttir Grétar Bernódusson Guðrún Eyjólfsdóttir. Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Gunnsteinn Sólberg Sigurðsson búfræðingur, Furulundi 25, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 13. ágúst kl. 13.30. Inga Ellertsdóttir Þorsteinn M. Gunnsteinsson Þórhildur Ólafsdóttir Þórunn S. Gunnsteinsdóttir Smári Úlfarsson Ellert J. Gunnsteinsson Kristrún Þ. Ríkharðsdóttir Gunnar I. Gunnsteinsson Ragnheiður Stefánsdóttir afabörn og langafabarn. Elskuleg vinkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Pálína Þorsteinsdóttir Kaldárhöfða, síðast til heimils á Ási í Hveragerði, andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands föstudaginn 1. ágúst. Útför hennar fer fram frá Hveragerðiskirkju miðvikudaginn 13. ágúst kl. 14.00. Þórhallur Friðbjörnsson Guðlaug Birgisdóttir Sigurjón Guðbjörnsson Lilja Kristín Kristinsdóttir Magnús Stefánsson Anna Soffía Óskarsdóttir Elísabet Óskarsdóttir Ragnheiður Óskarsdóttir Þórunn Sigurðardóttir Snjólaug Óskarsdóttir Elfar Harðarson Gunnlaugur Jónsson og ömmubörn. Ástkæri maðurinn minn, faðir, sonur og bróðir, Sveinn S. Þorgeirsson Frakkastíg 22, Reykjavík, lést hinn 8. ágúst 2008. Jarðarför verður auglýst síðar. Anna Ringsted Elísabet Ýr Sveinsdóttir Þorgeir Sveinsson Svava Pálsdóttir Pálmar Þorgeirsson Hrafnhildur Þorgeirsdóttir Brynhildur Þorgeirsdóttir Aðalsteinn Þorgeirsson og fjölskyldur. Ástkær faðir minn, sonur, bróðir, mágur og frændi, Gerhard Roland Zeller Grettisgötu 76, Reykjavík, lést hinn 5. ágúst síðastliðinn. Útför hans fer fram frá bænhúsi í Fossvogskirkjugarði fimmtudaginn 14. ágúst klukkan 11.00. Sunnefa Gerhardsdóttir Philipp og Else Zeller og fjölskylda. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vinsemd við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Jóhanns Guðmundssonar Erluási 38, Hafnarfirði. Guðrún J. Guðlaugsdóttir Jóna Laufey Jóhannsdóttir Ingvar Hreinsson Inga Jóhannsdóttir Daði Bragason Jóna Guðrún Jóhannsdóttir Þorgils E. Ámundason Guðmundur Jóhannsson Guðrún Ágústa Unnsteinsdóttir og barnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Rósa Eiríksdóttir Hæðargarði 33, áður Miðdal í Kjós, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni aðfaranótt mánudagsins 11. ágúst. Davíð Guðmundsson Fanney Þ. Davíðsdóttir Hulda Þorsteinsdóttir Aðalsteinn Grímsson Kristín Davíðsdóttir Gunnar R. Magnússon Guðbjörg Davíðsdóttir Katrín Davíðsdóttir Sigurður Ingi Geirsson Sigríður Davíðsdóttir Gunnar Guðnason Guðmundur H. Davíðsson Svanborg A. Magnúsdóttir Eiríkur Þ. Davíðsson Solveig U. Eysteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, Stefán Eysteinn Sigurðsson bifvélavirkjameistari, Steinagerði 1, Reykjavík, lést miðvikudaginn 6. ágúst, að Skjóli hjúkrunarheimili. Útförin auglýst síðar. Sigurður Mar Stefánsson Soffía Helga Magnúsdóttir Guðmundur Skúli Stefánsson Gunnar Helgi Stefánsson Sæunn Halldórsdóttir Guðrún Margrét Stefánsdóttir Paul Siemelink Andri Stefánsson Harpa Örlygsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda- móðir, amma og langamma, Guðlaug Petrea Hansdóttir Fellaskjóli, Grundarfirði, sem lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut aðfaranótt sunnudagsins 10. ágúst, verður jarðsungin frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 16. ágúst kl. 16.00. Gunnar Erling Sigurjónsson Þorsteinn Björgvinsson Helga Stolzenwald Guðlaug Kristín Björgvinsdóttir Einar Ingi Jónsson Hanna G. I. Björgvinsdóttir Hlynur Jörundsson Kristján Björgvinsson Smári Björgvinsson Helena M. Jónsd. Stolzenwald Reynir Björgvinsson Trausti Grundfjörð Björgvinsson Smári Örn Árnason Bergljót Kristjánsdóttir ömmubörn og langömmubörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Sighvatar Borgars Hafsteinssonar Norður-Nýjabæ, Þykkvabæ. Sérstakar þakkir til Guðmundar Benediktssonar, heilsugæslulæknis á Hvolsvelli og alls þess frábæra starfsfólks sem annaðist hann á Landspítalanum við Hringbraut fyrir ómetanlegan stuðning og umönnun. Una Sölvadóttir Sindri Snær Sighvatsson Sölvi Borgar Sighvatsson Sigurborg Sif Sighvatsdóttir Jósep Hallur Haraldsson Sigurjón Fjalar Sighvatsson Valdís Katla Sölvadóttir.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.