Fréttablaðið - 12.08.2008, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 12.08.2008, Blaðsíða 46
30 12. ágúst 2008 ÞRIÐJUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 BESTI BITINN Í BÆNUM LÁRÉTT 2. sál, 6. kusk, 8. dýrahljóð, 9. svelg, 11. átt, 12. ílát, 14. rót, 16. skst., 17. tæfa, 18. erlendis, 20. á fæti, 21. sjúkdómur. LÓÐRÉTT 1. ljómi, 3. númer, 4. sprengiefni, 5. óhreinka, 7. æðibunugangs, 10. dýrahljóð, 13. flík, 15. ílát, 16. nugga, 19. óhreinindi. LAUSN LÁRÉTT: 2. anda, 6. ló, 8. rýt, 9. iðu, 11. na, 12. karfa, 14. grams, 16. no, 17. tík, 18. úti, 20. tá, 21. asmi. LÓÐRÉTT: 1. blik, 3. nr, 4. dýnamít, 5. ata, 7. óðagots, 10. urr, 13. fat, 15. skál, 16. núa, 19. im. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Austurrísku leiðina. 2 25 prósent. 3 Villta vestrið. Paintball-svæði. Fyrir utan hversu löng röðin í bjór- inn var á tónleikum Erics Clapton og handvömm Nýsis hvað varðar loftræstikerfi Egilshallar – en hitinn í höllinni var um tíma óbærilegur – er almenn ánægja með tónleik- ana. Clapton og hljómsveit fóru á kostum og gítargoðið hvarf af landi brott sæll og glaður. Má reikna með því að hann og hans menn hafi haft um 50 milljónir í sinn hlut og ætti því Clapton að hafa efni á að kaupa veiðileyfi af Árna Baldurssyni, laxabónda í Laxá í Ásum, á næsta ári, jafnvel þessu en nokkuð er í að laxveiði- tímabilinu ljúki. Menningarbúllan Grand Rokk lætur sér engar hliðar mannlífsins óviðkomandi og þannig stóð kráin fyrir golfmóti í gær. Kormákur Bragason, sem er meðal annars forsöngvari hljómsveitarinnar South River Band, er helsti forsprakki golf lífs Grand Rokks. Og þótti hann taka sig einstaklega vel út á golfvellinum á Vatnsleysuströnd með sítt og grá- sprengt rokkara- hárið flaksandi í hafgolunni. Ágúst Borgþór Sverrisson, rithöf- undur og bloggari, auglýsti nýverið sófasett sitt gefins á bloggsíðu sinni. Hann rak upp stór augu þegar einn helsti fjandvinur hans úr bloggheimum, Ólafur Sindri Ólafsson, mætti til að sækja settið. Óli Sindri var um skeið huldublogg- arinn Mengella sem virtist hafa einstakt dálæti á að gera grín að Ágústi og var með bolla sérmerkta Ágústi til sölu. Óli Sindri var reynd- ar að ná í sófasettið fyrir mágkonu sína, en bróðir Óla hefur lofað því að hugsa aðeins spekingslegar hugsanir í sófasetti meistarans. FRÉTTIR AF FÓLKI „Það er rosaleg spenna í gangi. Við byrjum í borginni en færum okkur svo hægt og rólega út fyrir borgarmörkin,“ segir Reynir Lyngdal kvikmyndaleikstjóri. Fyrsti tökudagur í spennu- þáttaröðinni Hamarinn, í leik- stjórn Reynis, var í gær. Sagan gerist að mestu leyti uppi í sveit. „Já, tilbúinni sveit á Suðurlandi. Við byrjum á þægilegri senum. Byrjum seint á daginn því við erum að vinna okkur inn í nótt- ina. Það er mikið um kvöldsenur. Stundum er gott fyrir okkur kvik- myndatökumenn hversu bjart er á Íslandi og stundum ekki. En það er bara stemning,“ segir leik- stjórinn spenntur að hefjast handa. Leikararnir Björn Hlynur Har- aldsson og Dóra Jóhannesdóttir fara með aðalhlutverkin en um er að ræða dramatíska spennusögu í fjórum þáttum um Helga Marvin Rúnarsson, rannsóknarlögreglu- mann í Reykjavík, sem fer út á land til að rannsaka torráðið mál. Handrit skrifar Sveinbjörn I. Baldvinsson en Snorri Þórisson framleiðir. Að sögn Hrannar Kristinsdóttur, sem er meðfram- leiðandi, eða það sem heitir á bransamáli „line producer“ verða þættirnir sýndir á RÚV en hafa einnig verið seldir til sjónvarps- stöðva í Svíþjóð, Noregi og Finn- landi. Heildarframleiðslukostn- aður er áætlaður 156 milljónir. Þegar Reynir talar um að farið sé hægt og rólega af stað er hann að vísa til þess að fyrir dyrum standi umfangsmiklar tökur, „action-tökur“ þar sem þyrla og sjúkrabílar koma við sögu. „Við ráðgerum að ljúka tökum snemma í október,“ segir Reynir. - jbg Björn Hlynur og Dóra í aðalhlutverkum Hamarsins REYNIR LYNGDAL Var spenntur í gær að hefjast handa við tökur Hamarsins en þar eru Björn Hlynur og Dóra Jóhannes- dóttir í aðalhlutverkum. Það er Ostabúðin á Skólavörðu- stíg. Á virkum dögum býður hún upp á heitan hádegismat á mjög hagstæðu verði. Maturinn þarna er svo góður að ég hugsa um hann í marga daga á eftir og ekki skemmir fyrir að skammt- urinn er einnig vel útilátinn! Ég held að þetta sé líklega best geymda leyndarmálið hér í borg. Jóhann Meunier, eigandi verslunarinnar Liborius. Vinkvennahópur nokkur úr Eyjum kom, sá og sigraði í árlegri bún- ingakeppni sem haldin er á Þjóð- hátíð. Hópurinn kallar sig Skirm- ish og samanstendur af tólf æskuvinkonum. „Síðastliðin þrjú ár höfum við klæðst eins peysum á Þjóðhátíð en ákváðum að breyta til í ár og vera í eins búningum,“ segir Brynja Þórðardóttir, en stúlkurnar klæddust fótboltabúningum frá Henson. Keppnin fór fram á föstu- dagskvöldinu og segir Brynja að innkoman á sviðið hafi ekki síður skipt máli en búningarnir. „Við komum allar inn á hlaupahjólum og sýndum svo búningana fyrir áhorfendum og dómurum. Þetta var mjög skemmtilegt allt saman.“ Þátttakan í ár var að sögn Brynju heldur dræm miðað við fyrri ár en alls tóku þrír hópar þátt í keppn- inni. Brynja segir að hópurinn haldi enn miklu sambandi þó að margar stúlkurnar séu fluttar upp á land vegna skólagöngu. Aðspurð hvort Skirmish ætli sér að taka þátt að ári liðnu segir Brynja svo vera. „En sami hópur getur þó ekki unnið tvö ár í röð, þannig við verð- um að bíða í tvö ár eftir næsta sigri.“ - sm Vinkvennahópur úr Eyjum vann árlega búningakeppni BÁRU SIGUR ÚR BÝTUM Á myndinni eru: Laufey Sigrún, Birgit, Þóra Sif, Lella, Brynja og Anna María. „Ég hlakka rosalega til. Þetta verður ábyggilega mjög gaman,“ segir Kristján Jóhannsson, sem mun syngja í óperu hér á landi í fyrsta sinn í fjórtán ár þegar hann tekur þátt í uppfærslu Íslensku óperunnar á verkunum Cavaller- ia Rusticana eftir Pietro Mas- cagni og Pagliacci eftir Ruggiero Leon cavallo. Þetta verður jafnframt í fyrsta sinn sem Kristján stígur á svið í Íslensku óperunni, sem var stofn- uð á áttunda áratugnum. Frum- sýning verkanna, sem eru sýnd á sama kvöldi, verður 19. septem- ber og verða sýningarnar tíu tals- ins. Kristján söng síðast í óperu hérlendis í Þjóðleikhúsinu þegar Stefán Baldursson, núverandi stjórnandi Íslensku óperunnar, var við stjórnvölinn. „Vinur minn og einhvers konar kollegi, en fyrst og fremst norðanmaður og vinur, Stefán Baldursson, hafði samband við mig. Honum fannst tími kominn á að ég arkaði aftur upp á svið á Íslandi,“ segir Kristj- án glaðbeittur en enn þá pakk- saddur eftir yfirdómgæslu í kokkakeppni í Madova-héraði fyrir skömmu. Leikstjóri verkanna verður Sveinn Einarsson sem starfaði með Kristjáni í Þjóðleikhúsinu og leikstýrði honum meðal annars í La Bohéme. Verður þetta einnig í fyrsta sinn sem Sveinn starfar í Íslensku óperunni. „Við erum góðir mátar. Hann var hjá mér hérna um daginn í heimsókn. Við erum báðir dálítið þéttir á velli og lofuðum hvor öðrum að grenn- ast,“ segir Kristján og hlær. „En það skiptir mestu máli að húmor- inn er í lagi og röddin er í meira en góðu lagi.“ Söngvarinn Jóhann Friðgeir syngur á móti Kristjáni í sýning- unum. „Hann er sá fínasti og besti sem við eigum á Íslandi og sá eini sem myndi fara í gegnum þetta. Ég er mjög spenntur að heyra í honum,“ segir Kristján, sem kemur hingað til æfinga í næstu viku. Spurður hvort hann hafi ekki sungið þessi ítölsku verk margoft áður segir Kristján svo aldeilis vera: „Ég hef sungið þetta aðeins um tvö hundruð sinnum hvort um sig. Á átta ára tímabili söng ég þetta á hverju ári í Metropolitan- óperunni og í óperuhúsinu í Vín þannig að ég ætti að kunna þetta ágætlega.“ Stefán Baldursson er hæst- ánægður með endurkomu Kristj- áns. „Það er alveg orðið tímabært að hann syngi hérna heima. Ég veit ekki alveg af hverju hann hefur ekki verið að syngja í þessu húsi,“ segir Stefán. freyr@frettabladid.is KRISTJÁN JÓHANNSSON: Á SVIÐ ÍSLENSKU ÓPERUNNAR Í FYRSTA SINN Fjórtán ára bið á enda KRISTJÁN JÓHANNSSON Kristján kemur hingað til lands í næstu viku til að undirbúa sig fyrir sína fyrstu sýningu í Íslensku óperunni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.