Fréttablaðið - 12.08.2008, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 12.08.2008, Blaðsíða 16
16 12. ágúst 2008 ÞRIÐJUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS Innrás Georgíu í Suður-Ossetíu síðastliðinn fimmtudag hleypti spennuþrungnu ástandi í Kákasuslöndum í bál og brand. Tilraunir Georgíumanna að brjóta sjálfstæðisbaráttu Suður- Ossetíu á bak aftur með hervaldi fóru út um þúfur þar sem Rússar komu héraðinu til aðstoðar og hröktu georgíska hernámsliðið á flótta. Það er lítið gleðiefni að horfa upp á tilraunir til að leysa áratuga gamalt deilumál með ofbeldi, fyrst af hálfu Georgíu- manna en síðan af hálfu Rússa. Sjálfstæðisbarátta Suður- Ossetíu hefur staðið síðan 10. nóvember 1989, daginn eftir fall Berlínarmúrsins, þegar þing Suður-Ossetíu samþykkti að sameinast Norður-Ossetíu, sem var hluti rússneska sambands- lýðveldisins. Vakti samþykktin mikla andstöðu georgískra þjóðernissinna sem litu á héraðið sem óaðskiljanlegan hluta Georgíu. Við upplausn Sovétríkj- anna gerðu Suður-Ossetar ítrekaðar tilraunir til að fá sjálfstæði héraðsins viðurkennt, en þær mættu andstöðu Georgíu sem viðurkenndi ekki kosningar sem haldnar voru til þings Suður- Ossetíu 1990. Síðan þá hefur Suður-Ossetía haft sjálfstjórn í raun en ekki fengið viðurkenn- ingu alþjóðasamfélagsins. Skýþar og Alanar Ossetar eru náskyldir þjóðum sem einu sinni voru allsráðandi á sléttunum norðan og austan við Evrópu í fornöld, s.s. Skýþum og Sarmötum. Menning þessara þjóða er nú horfin; einu leifarnar af henni er samfélag Osseta. Fyrsta ríki þeirra sem sögur fara af var til á 4. öld á milli Don og Volgu. Þá kölluðust þeir Alanar. Húnar eyddu konungsríki Alana en það var endurreist á 8. öld og var miðstöð þess þá norðan við Kákasusfjöllin. Sókn Mongóla í vestur á 13. öld olli því hins vegar að Alanar fluttust suður á bóginn, yfir Kákasusfjöllin. Þar býr mikill meirihluti þeirra í Norður-Ossetíu sem tilheyrir Rússlandi. Hluti Osseta lenti hins vegar innan landamæra Georgíu og fékk sjálfstjórn þegar Georgía varð eitt af sambandsríkjum Sovétríkjanna. Suður-Ossetar hafa löngum verið tregir til að vera hluti af georgísku þjóðríki og börðust gegn georgíska ríkinu sem var til 1918-1920. Menning Osseta er af allt annarri rót en Georgíumanna. Þeir tala indó-evrópskt tungu- mál sem er fullkomlega óskylt georgísku og er móðurmál um 700.000 manns. Suður-Ossetía og Kosovo Tvennt hefur orðið til þess að skerpa andstæður á milli Osseta og miðstjórnarinnar í Georgíu. Í fyrsta lagi er núverandi forseti Georgíu, Mikheil Saakashvili, staðráðinn í því að ná fullum yfirráðum miðstjórnarinnar yfir héruðunum sem hafa notið sjálfstæðis undanfarna áratugi. Saakashvili hefur notið mjög jákvæðrar umfjöllunar í vestrænum fjölmiðlum og er jafnan kallaður lýðræðissinni enda þótt hann hafi beitt bæði neyðarlögum og hervaldi til þess að brjóta á bak aftur pólitísk mótmæli í nóvember síðastliðn- um. Þá hafa pólitískir keppinaut- ar Saakashvilis lent í hrakningum, ýmist lent í fangelsi eða látist við grunsam- legar kringumstæður undan- farin ár. Saakashvili virðist telja að gott samband hans við Bandaríkin og NATO muni tryggja honum liðsinni Vestur- landa hvað sem öðru líður og athygli vekur að frá því að Georgía hóf stríðið hefur hann mætt í sjónvarpsútsendingar með fána Evrópusambandsins í bakgrunni. Það er spurning hvort ríki Vesturlanda muni nú styðja Saakashvili „eftir pöntun“ en ljóst er að Bandaríkin beittu áhrifum sínum í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til að koma í veg fyrir samþykkt ályktunar frá Rússum um afvopnun beggja herja í upphafi átakanna. Eftir að Rússar hófu gagnsókn hefur hins vegar hljóðið breyst í Bandaríkjamönnum og núna eru það Rússar sem ekki vilja lengur heyra minnst á vopnahlé – a.m.k. ekki fyrr en her Georgíu hefur yfirgefið Suður-Ossetíu og önnur sjálfstjórnarhéruð. Á hinn bóginn hefur víðtækur stuðningur við einhliða sjálf- stæðisyfirlýsingu Kosovo fyrr á þessu ári hleypt vindi í segl Suður-Osseta en ekki eru nema tvö ár síðan að samþykkt var í þjóðaratkvæðagreiðslu að leita sjálfstæðis. Iðulega hefur verið bent á að stjórnarfarsleg staða héraðanna tveggja sé sú sama og þeir sem vilja viðurkenna rétt annars til sjálfstæðis hljóti því að viðurkenna rétt hins. Víst er að síðan Kosovo hlaut sjálfstæði hefur ekki komið til greina af hálfu Suður-Osseta að fallast á annað en fullt sjálfstæði. Og raunar er erfitt að sjá hví ríkisstjórnir sem hlupu til og viðurkenndu sjálfstæði Kosovo ættu ekki jafn greiðlega að viðurkenna fullveldi Suður- Ossetíu. Í þeim hópi er ríkis- stjórn Íslands sem þarf nú að bregðast við. UMRÆÐAN Ögmundur Jónasson skrifar um umhverfismál Ég hef skrifað greinar í þetta blað undir fyrirsögninni Fagra Ísland, samhljóða stefnuyfirlýsingu Samfylkingarinnar í umhverfismálum. Samfylkingin hét stóriðjustoppi kæmist hún til valda, nú skyldi gefið upp á nýtt, einsog formaður- inn orðaði það í aðdraganda síðustu alþingiskosninga: „Með þessari stefnu- mótun um hið fagra Ísland hefur Samfylkingin tekið þá skýru stefnu að sú stóriðjustefna sem ríkisstjórnin hefur fylgt á umliðnum árum og boðar á komandi kjörtímabili eigi ekkert erindi við framtíðina. Hún á ekkert erindi við framtíðina, nú er tímabært að stokka upp spilin, gefa upp á nýtt og gefa náttúrunni betri spil á hendi en hún hefur haft hingað til. Samfylkingin mun fylgja þessu máli fast eftir, þetta verður veganesti hennar inn í nýja ríkisstjórn.“ Sami stjórnmálamaður, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, kom fram í fréttum Stöðvar 2 um verslunarmannahelgina til að tjá sig um þá ákvörðun umhverfisráðherra að heildstætt mat skuli gert á því að virkja og reisa álverksmiðju á Bakka við Skjálfanda. Gaf hún yfirlýsingu um að þetta þýddi ekki að horfið væri frá viljayfirlýsingu um að reisa álver á Bakka. Þvert á móti. Össur Skarp- héðinsson iðnaðarráðherra hafði áður gefið í botn í ámóta yfirlýsingum. Hvernig er hægt að láta kjósa sig á þing á þeirri forsendu að allri frekari stóriðju verði skotið á frest en beita sér síðan fyrir stóriðju sem aldrei fyrr? Ég leyfði mér að skrifa nokkrar greinar í þetta blað um svik Samfylkingarinnar í umhverfis- málum. Ég tölusetti svikin undir heitinu Fagra Ísland dagur 1, dagur 2 … og svo framvegis. Fyrir þetta hlaut ég nokkurt ámæli frá fólki sem taldi að ég væri of íhaldssamur í upptalningunni. Svikin væru miklu örari en ég gerði grein fyrir. Sennilega var þetta réttmæt gagnrýni. Nú spyr ég: Hvernig verður Ísland útlits þegar Samfylkingin verður búin að svíkja í umhverfismálum allt kjörtímabilið? Það er 1.461 dagur. Mikið hægt að svíkja á svo mörgum dögum. Skyldi vera hægt að forða okkur frá þeirri ógæfu? Höfundur er alþingismaður. Fagra Ísland í 1.461 dag Frelsi Suður-Ossetíu? S koðanakannanir sýna að nærri lætur að Samfylkingin hafi meirihlutastuðning í Reykjavíkurborg. Fylgi við borgar- stjórnarflokk sjálfstæðismanna heldur áfram að minnka. Tveir flokkar eiga á hættu að hverfa úr borgar stjórn og Vinstri grænt er litlu minna en Sjálfstæðisflokkurinn. Spurning er hvort skoðanakannanir af þessu tagi eru efni til breytinga á pólitísku samstarfi. Svarið við því er: Nei. Skoðana- kannanir eru til margs nýtilegar. Ef menn ætluðu hins vegar að hlaupa eftir þeim í einu og öllu færi lítið fyrir pólitískum stöðug- leika sem að réttu lagi á að vera einn af uppistöðuþráðum í vef lýðræðislegrar stjórnskipunar. Stöðugleiki hefur ekki verið einkenni yfirstandandi kjörtímabils í borgarstjórn, hvorki um völd né málefni. Allir flokkarnir hafa í misríkum mæli lagt sitt af mörkum til þeirrar þverbrestasemi. Sýnu verst er að upp er komin málefnastaða í borgarstjórn sem er augljóslega skaðleg fyrir hagsmuni borgarbúa í bráð og lengd. Hún hefur einnig neikvæð þjóðhagsleg áhrif. Orkunýtingarmálin og skipulagsmálin eru þar gildust. Orkuveita Reykjavíkur er stærsta orkuöflunarfyrirtæki lands- ins. Við ríkjandi aðstæður er afar brýnt að þetta fyrirtæki taki fullan þátt í viðleitni til þess að auka hagvöxt miklu hraðar en áður var áformað og menn töldu almennt þörf á. Þetta er nauðsynlegt til að skjóta styrkari stoðum undir gjaldmiðilinn og draga úr kaup- máttarfalli. Skoðanaágreiningur innan Samfylkingarinnar um orkunýtingu hefur gert það að verkum að ríkisstjórnin getur ekki kynnt jafn markvissa hagvaxtarstefnu og æskilegt væri. Við þær aðstæður er einfaldlega of kostnaðarsamt fyrir launafólk í landinu að stærsta orkufyrirtækið skuli tekið úr sambandi varðandi þessi verkefni eins og gert hefur verið. Í skipulagsmálum blasir við að allt er í óvissu og uppnámi með verðlaunahugmyndir sem gera ráð fyrir tuttugustu og fyrstu aldar endurreisn við Laugaveginn. Engin rök standa til að halda borginni í slíkri úlfakreppi í skipulagsmálum næstu árin. Þá vaknar spurningin: Getur annars konar flokkasamstarf breytt þessari málefnastöðu? Hundrað daga meirihlutinn, sem svo hefur verið nefndur, var aldrei sterkari en veikasti hlekkur hans. Sú staða er óbreytt. Aukheldur má rekja núverandi málefnastöðu til þeirra viðhorfa sem þar réðu ríkjum og ríkja enn á báðum þessum sviðum. Fyrsti meirihluti kjörtímabilsins fylgdi hins vegar allt fram að októberslysinu skynsamlegri stefnu bæði um orkunýtingu og skipulagsmál. Lengst af naut hann auk þess trausts og ágætra vin- sælda. Endurnýjun á samstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks í borgarstjórn er satt best að segja líklegt til þess að leysa borgina úr þeirri málefnaklípu sem hún er í. Báðir flokkarnir ættu með þessu að geta bætt málefnastöðu sína fyir næstu kosningar þó ekki sé á vísan að róa í þeim efnum. Fram- hald á núverandi málefnastöðu yrði að öllum líkindum verra fyrir báða og að sama skapi til bóta fyrir Samfylkinguna og VG. Mál- efnalegar breytingar færðu að auki kjósendum í reynd ólíka kosti að velja um. Að öllu óbreyttu eru þó litlar horfur á að svo verði. Mest er þó um vert að ríkir almannahagsmunir kalla á breytt ástand. Að því virtu er svarið við spurningunni um málefnalega þörf á nýjum borgarstjórnarmeirihluta: Já. Er málefnaleg þörf á nýjum borgarstjórnarmeirihluta? Já ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR ÖGMUNDUR JÓNASSON ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA: Páll Baldvin Baldvinsson. VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson og Óli Kr. Ármannsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 SVERRIR JAKOBSSON Í DAG | Styrjaldir Nýr forseti Hingað til hefur lítið borið á líklegum frambjóðendum í forsetastól ASÍ, eftir að Grétar Þorsteinsson gaf það út að hann sæktist ekki eftir endurkjöri, eða þar til seint í síðustu viku þegar Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, impraði enn og aftur á því að verka- lýðsforystan vildi að ríkisstjórnin gerði eitthvað varðandi stöðu efnahags- mála. Bættist Gylfi þar í ört stækkandi hóp þeirra sem kalla eftir nýrri þjóðarsátt í anda þeirrar sem gerð var fyrir um átján árum, þótt hann hafi kannski ekki lagt margt nýtt til málanna. Formaðurinn svarar kallinu Gylfi þurfti þó ekki að bíða lengi eftir svari því Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, brást skjótt við og sagði Gylfa hafa alveg rétt fyrir sér. Hún hefði lengi talað fyrir svipaðri leið og Gylfi og reyndar hefði Gylfi líka orðað þetta eins og hún vildi hafa orðað það. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þau Gylfi og Ingibjörg eru sammála enda sagði Gylfi alla verkalýðs- hreyfinguna styðja Ingibjörgu þegar hún keppti við Össur um formannsstólinn í Samfylkingunni. Björn breytir „Ég óska Kínverjum til hamingju með fyrsta daginn,“ ritar Björn Bjarnason á heimasíðu sína um Ólympíuleikana í Kína. „Sjálfsagt er, að Þorgerður Katrín fari sem ráðherra íþróttamála,“ skrifar hann enn fremur. Athygli hefur vakið að fyrst þegar dagbókarfærslan rataði á vefinn leit hún öðruvísi út. Þar lauk klausunni nefnilega á setningunni: „Önnur opinber þátt- taka af [hálfu] Íslands er óþörf.“ Setningin er nú horfin, en ekki þarf að leita lengi að því að hverjum orðin beindust. Eini opinberi þátttakandinn annar er forsetinn. olav@frettabladid.is, stigur@frettabladid.is BYLGJAN BER AF Samkvæmt könnun Capacent í aldurshópnum 18-54 ára á tímabilinu 1. janúar til 29. júní 2008. Hlutdeild - hlustun í mínútum á dag.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.