Fréttablaðið - 12.08.2008, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 12.08.2008, Blaðsíða 28
 12. ÁGÚST 2008 ÞRIÐJUDAGUR8 ● fréttablaðið ● sjávarútvegur Óskalagaþáttur sjómanna, Á frívaktinni, naut ómældra vin- sælda í áratugi í Ríkisútvarpinu enda hljómuðu þar öll nýjustu dægurlögin í bland við önnur eldri. „Ólafur Ísleifsson á mótorbátnum Von fær ástar- og saknaðarkveðjur frá Ingu með laginu Hvítir mávar sem Helena Eyjólfsdóttir syngur.“ Eitthvað þessu líkt hljómuðu kveðjurnar sem lesnar voru í óska- lagaþætti sjómanna, Á frívaktinni. Hann hóf göngu sína árið 1956 og fyrsti stjórnandi hans var Guðrún Erlendsdóttir, síðar hæstaréttar- dómari. „Ég varð stúdent þetta vor og það kom fram í einhverju blaði að ég væri sjómannsdóttir. Í fram- haldi af því hringdi Guðmundur Jónsson óperusöngvari í mig. Hann var deildarstjóri í útvarpinu og spurði hvort ég væri til í að taka að mér þennan nýja þátt. Þá var einn óskalagaþáttur fyrir. Ingibjörg Þorbergs var með Óska- lög sjúklinga strax eftir hádegi á laugardögum. Sjómannaþátturinn var settur á fimmtudaga og varð strax ákaflega vinsæll, ekki bara meðal sjómanna og fjölskyldna þeirra heldur allra landsmanna. Það var svo lítið um létt lög í út- varpinu þá.“ Sjómennirnir voru hetjur hafs- ins sem öll þjóðin leit upp til. Guð- rún segir ógrynni bréfa hafa bor- ist þættinum enda voru kveðj- urnar bæði til sjómanna og frá þeim, sumar eldheitar ástarkveðj- ur elskenda. „Ég kom aldrei nærri öllum kveðjunum að og það þótti mér slæmt,“ rifjar hún upp. Guð- rún var með þáttinn Á frívaktinni til 1960 meðfram námi sínu í lög- fræðinni. Byrjaði í Landsímahús- inu og flutti síðan á Skúlagötu 4. „Þættirnir voru í beinni útsend- ingu eins og flest var þá,“ segir hún og kveðst hafa sett plöturn- ar á fóninn sjálf. „Þetta voru stór- ar vínylplötur og maður varð að passa að hitta á réttu skoruna,“ rifjar hún upp. En hver voru vinsælustu lögin á þessum árum? Draumur fang- ans og önnur lög með Erlu Þor- steins, Síldarvalsinn með Sigurði Ólafssyni og Landleguvalsinn með Hauki Morthens koma upp í hugann. Sjómannavalsinn var spilaður í hverjum þætti og líka Hraustir menn.“ - gun Hraustir menn í hverjum þætti „Ég kom aldrei nærri öllum kveðjunum að og það þótti mér slæmt,“ segir Guðrún, sem hér er með dóttursoninn Þorstein Ara Þorsteinsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Við hljóðnemann. Guðrún var yfirleitt alltaf í beinni útsendingu og setti plöt- urnar sjálf á fóninn, eina í einu. MYND/ÚR EINKASAFNI Það gefur á bátinn við Grænland og gustar um sigluna kalt, en togarasjómanni tamast það er að tala sem minnst um það allt. En fugli sem flýgur í austur, er fylgt yfir hafið með þrá. Og vestfirskur jökull sem heilsar við Horn í hilling með sólroðna brá, segir velkominn heim, segir vel- kominn heim, þau verma hin þögulu orð. Sértu velkominn heim, yfir hafið og heim. Þá er hlegið við störfin um borð. En geigþungt er brimið við Græn- land og gista það kýs ekki neinn. Hvern varðar um draum þess og vonir og þrár, sem vakir þar hljóður og einn? En handan við kólguna kalda býr kona, sem fagnar í nótt og raular við bláeygan, sofandi son og systur hans, þaggandi hljótt: Sértu velkominn heim, sértu vel- kominn heim. Að vestan er siglt gegnum ís. Sértu velkominn heim, yfir hafið og heim. Og Hornbjarg úr djúpinu rís. Texti: Kristján frá Djúpalæk. Lag: Svavar Benediktsson. Syngjandi sæll og glaður til síldveiða nú ég held. Það er gaman á Grímseyjarsundi við glampandi kvöldsólareld, þegar hækkar í lest og hleðst mitt skip við háfana fleiri og fleiri. Svo landa ég síldinni sitt á hvað, á Dalvík og Dagverðareyri. Seinna er sumri hallar og súld og bræla er, þá held ég fleyi til hafnar. Í hrifningu skemmti ég mér á dunandi balli, við dillandi spil og dansana fleiri og fleiri og nóg er um hýreyg og heillandi sprund á Dalvík og Dagverðareyri. Texti: Haraldur Sófaníasson. Lag: Steingrímur Sigfússon. Síldarvalsinn Sjómannavalsinn Sigurður er sjómaður, sannur Vesturbæingur. Alltaf fer hann upplagður út að skemmta sér. Dansar hann við dömurnar, dásamaður allstaðar, með ungar jafnt sem aldraðar út á gólfið fer. Í vínarkrus og vals og ræl hann vindur sér á tá og hæl, þolir ekki vol né væl, vaskur maður er. Kátur syngur Sigurður: „Svona er að vera einhleypur. Alltaf laus og liðugur líkar þetta mér.” Höfundur texta: Númi Þorbergsson Höfundur lags: Jónatan Ólafsson Laus og liðugur OPIÐ HÚS OPIÐ HÚS OPIÐ HÚS OPIÐ HÚS OPIÐ HÚS OPIÐ HÚS RE/MAX Lind - Bæjarlind 14-16 - 201 Kópavogur - Sími: 5209500 - www.remax.is Þórarinn Thorarensen Sölufulltrúi 770 0309 th@remax.is Páll Guðmundsson Sölufulltrúi 861 9300 pallb@remax.is Benedikt Ólafsson Sölufulltrúi 661 7788 benolafs@remax.is OPIÐ HÚS OPIÐ HÚS 93 124,8

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.