Fréttablaðið - 12.08.2008, Síða 19

Fréttablaðið - 12.08.2008, Síða 19
ÞRIÐJUDAGUR 12. ágúst 2008 3 Guðrún Guðjónsdóttir er nýkomin heim frá Mílanó þar sem hún stundaði nám í fata- hönnun og textíl. Guðrún flutti aftur til Íslands í síðasta mánuði eftir tveggja ára nám við hönnunarskóla í Mílanó. Námið tók þrjú ár en Guðrún fór strax inn á annað árið þar sem hún hafði þegar lokið klæðskeranámi frá Iðnskólanum í Reykjavík. Guðrúnu gekk einstaklega vel í skólanum. Hún útskrifaðist með láði með hæstu einkunn sem gefin var. „Ég vann líka undankeppni fyrir fyrirtækið Puma og svo tók ég þátt í nokkrum sérstökum verk- efnum, þannig að það má segja að mér hafi gengið vel,“ segir Guð- rún. Það er gaman frá því að segja að hún útskrifaðist einnig sem semi-dúx frá Iðnskólanum. Þegar Guðrún var að skoða skóla erlendis hafði hún augastað á Ítalíu. „Mig langaði til Mílanó og Instituto Europeo di Design-skól- inn varð fyrir valinu. Þar lærði ég allt í kringum fatahönnun; lita- samsetningar, sögu hönnunar og tískuljósmynda, meðhöndlun efna, mynsturs- og efnishönnun, svo eitthvað sé nefnt,“ útskýrir Guð- rún. Lokaverkefni Guðrúnar var mjög stórt. „Við gerðum stóra fatalínu og fullgerðum fjögur „outfit“ úr henni. Ég fékk svo Óskar Ómarsson áhugaljósmynd- ara til að taka flottar myndir af afrakstrinum,“ segir Guðrún. Í augnablikinu er Guðrún að vinna í búningadeild Íslensku óperunnar, en í framtíðinni langar hana til Danmerkur og fá vinnu hjá einhverju af stóru tískuhúsun- um. „Mig langar að fara út og fá reynslu við að vinna hjá öðrum. Ég stefni samt að því að enda hér heima og jafnvel stofna mitt eigið fyrirtæki,“ segir Guðrún. Guðrún mun taka þátt í tísku- sýningu á Blómstrandi dögum í Hveragerði á fimmtudag og sunnudag í næstu viku þar sem hún mun kynna fatnað sinn. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér það nánar er bent á heimasíðuna www. hveragerdi.is. klara@frettabladid.is Útskrifaðist með láði Lokaverkefnið hennar Guðrúnar var mjög stórt en hún hannaði heila fata- línu. MYND/ÓSKAR ÓMARSSON Þetta sérstaka pils er hluti af lokaverk- efninu og hefur vakið mikla athygli. MYND/ÓSKAR ÓMARSSON Guðrún Guðjónsdóttir er nýkomin heim frá Ítalíu þar sem hún lauk námi í fatahönn- un og textíl. FRETTABLAÐIÐ/GVA Kaffitár í Bankastræti er nýfarið af stað með opin tangókvöld á miðvikudags- kvöldum. Svokölluð Milongas-tangókvöld eru alla miðvikudaga á kaffihús- inu Kaffitári í Bankastræti og eru þessi kvöld opin öllum. Milonga er alþjóðlegt heiti yfir þá staði þar sem fólk kemur saman til að dansa tangó. Tangó- kvöldin hefjast klukkan átta en þá er opinn tími fyrir byrjendur þar sem þeir fá leiðsögn frá reyndum tangódönsurum frá Tangófélaginu. Þegar líða tekur á kvöldið koma reyndari dansar- ar og taka snúning. Að sögn starfsfólks Kaffitárs hefur aðsóknin verið að aukast jafnt og þétt og stemningin verið góð. Ekki er nauðsynlegt að mæta með dansfélaga með sér, allir geta mætt og spreytt sig í þessum tignarlega dansi. Áður voru þessi tangókvöld haldin í Alþjóðahúsinu, en hafa nú flutt sig yfir í Bankastrætið. Aðgangseyrir er fimm hundruð krónur og er leiðsögn inni falin í verðinu. - kka Tangó á Tárinu Tangó er seiðandi og tignarlegur dans. S Ö N G N Á M S K E IÐR Söngskólinn er einnig umboðs- skrifstofa fyrir börn og unglinga á öllum aldri. Fjöldinn allur af efnilegum nemendum hefur sungið á hljómplötum, í sjónvarpi, tekið þátt í auglýsingum, leikhúsi, bíómyndum, og fleira. Skráning og upplýsingar: Sími: 588 1111 & 897 7922 poppskolinn@poppskolinn.is Fákafeni 11 www.poppskolinn.is Allar nánari upplýsingar á www.poppskolinn.is S á Markmið söngkennslunnar er að þjálfa nemendur í túlkun, raddbeitingu, sjálfsstyrkingu og framkomu. Skólinn leitast við að veita nemendum sínum tækifæri til að koma fram opinberlega, svo sem við hljóðritanir, framkomur í sjónvarpi og á öðrum vettvangi. Skólinn leitast við að hafa sérþjálfað starfslið sem eru atvinnumenn hver á sínu sviði. Margir þjóðkunnir listamenn hafa hafið sinn feril hjá Söngskólanum m.a. Ragnheiður Gröndal, Jóhanna Guðrún, Klara Elíasdóttir (Nylon), Emilía Björg (Nylon) og Alma Guðmundsdóttir (Nylon) og margir aðrir frábærir söngvarar. María Björk Skólastjóri/Söngkona Regína Ósk Yfirkennari/Söngkona Sessý Söngkona/Kennari Yohanna Söngkona/Kennari Guðrún Árný Söngkona/Kennari Guðbjörg Söngkona/Kennari Ágústa Ósk Söngkona/Kennari Agnar Jón Egilsson Leikstjóri/Leiklist hjá Leynileikhúsinu. nánarar á leynileikhusid.is ERUM ENNÞÁ MEÐ BESTA VERÐIÐ! 14 ÁRA REYNSLA HAUSTÖNNIN HEFST Í SEPTEMBER Söngvaborg kemur í heimsókn til yngstu krakkana. Á haustönn verður boðið upp á: Forskóli: Forskóli fyrir 3-5 ára krakka. 5 ára og eldri: Byrjenda- og framhaldsnámskeið. Unglingar: Byrjenda- og framhaldsnámskeið. Fullorðnir: Byrjenda- og framhaldsnámskeið. Aldursskiptir hópar. Haldnir verða tónleikar á námskeiðinu og nemendur fá upptöku með söng sínum á geisladiski í lok námskeiðs.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.