Fréttablaðið - 12.08.2008, Side 24
12. ÁGÚST 2008 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● sjávarútvegur
Mikilvægt er að skip fari reglu-
lega í skipakví til yfirferðar og
viðgerða.
Eiríkur Ormur Víglundsson,
forstjóri Vélsmiðju Orms og
Víglundar, sem sérhæfir sig í þjón-
ustu og viðhaldi á skipum og bátum
og veitir heildarþjónustu við
útgerðar fyrirtæki, segir að öllum
skipum sé skylt að koma reglulega
í slipp til skoðunar. „Þegar skip
koma í slippinn er allt yfirfarið.
Gamla botnmálningin er alltaf
þvegin af og skipin botnmáluð að
nýju. Svo er alltaf skipt um sink-
kubba, en þeir gera það að verkum
að skipin tærast ekki, heldur eyð-
ast sink kubbarnir í staðinn. Stýrið
og skrúfubúnaður eru að sama
skapi ætíð yfirfarin til að ganga úr
skugga um að þau séu í fullkomnu
lagi.
Að sögn Eiríks er misjafnt eftir
aldri skipanna hversu oft þau þurfa
skoðun. „Eðlilega þurfa nýrri skip
að fara sjaldnar í skoðun. Það er
yfirleitt miðað við að þau eldri fari
einu sinni á ári en ný skip á þriggja
ára fresti,“ segir hann.
Eiríkir segir líka misjafnt eftir
Hagstætt að fara o
Eldglæringarnar flugu um loftið þegar ljósmyndari Fréttablaðsins leit við í Vélsmiðjunni.
Skipakvíin í Hafnarfirði er vígaleg að sjá.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Hjálmar og líflínur eru eini
öryggisbúnaðurinn sem sjómönn-
um er skylt að nota við störf sín að
sögn Hilmars Snorrasonar, skóla-
stjóra Slysavarnaskóla sjómanna.
Hilmar segir litlar breytingar eða
þróun hafa orðið á öryggisbúnaði
þeirra.
„Ástæðan er sú að stöðugt erf-
iðara er að koma nýjum öryggis-
búnaði inn á markað vegna allra
þeirra Evrópureglna sem gerðar
eru fyrir hann,“ segir hann. „Þetta
er ekki eins og áður þegar menn
voru að hanna og finna upp ýmsar
nýjungar í björgunarbúnaði hér
á landi. Þetta er ekki jafn auð-
velt í dag og var þá út af Evrópu-
tilskipunum sem við búum við. Út
af þeim verður búnaður sem nota
á í skip að fara í gegnum ákveð-
ið ferli og fá ákveðna viðurkenn-
ingu sem er mjög kostnaðarsamt.
Þess vegna hefur dregið úr þróun
á öryggisbúnaði á vegum einstakl-
inga.“
Spurður út í mikilvægasta
öryggisbúnaðinn segir Hilmar
skipið sjálft skipta mestu máli.
„Við í Slysavarnarskóla sjómanna
erum alla daga að kenna sjómönn-
um að verja skipið. Í sambandi við
öryggisbúnað sjómanna þá kemur
alltaf eitthvað betra fram á sjón-
arsviðið, eins og betri hlífðarfatn-
aður.“
Hvað hlífðarfatnaði viðvíkur
segir Hilmar þó áríðandi að end-
urskoða hjálma vel, þar sem engir
hjálmar séu sérstaklega hannaðir
fyrir þá sem starfa á skipum. „Það
er skylda við vinnu á þilförum að
nota öryggishjálma og skipstjór-
inn á að tryggja það sé gert. Sjó-
menn hafa nú val um tvær gerð-
ir hjálma, svokallaða skíðahjálma
eða verkamannahjálma. Mikil þörf
er á því að framleiðendur hanni
hjálma sem eru ætlaðir til notk-
unar í skipum. Allir vita að mik-
ill munur er á hjálmi sem hann-
aður er fyrir skíðafólk og hjálmi
ætluðum fyrir hættuleg störf eins
og eru til sjós.“
Hilmar bendir jafnframt á að
þótt banaslysum á sjó hafi fækk-
að verulega þurfi menn að vera
stöðugt á varðbergi og þá einna
helst sjómenn. „Yfirmaður Al-
þjóðasiglingamálastofnunarinnar
komst vel að orði þegar hann sagði
að öryggi skipa væri í góðum far-
vegi, en það sem við þyrftum að
taka verulega á væri mannlegi
þátturinn um borð‘.“
-stp
Reglurnar hægja á þróun
Hjálmar og líflínur eru eini öryggisbúnaðurinn sem sjómönnum er skylt að nota að
sögn Hilmars Snorrasonar, skólastjóra Slysavarnaskóla sjómanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Löndun ehf. - Kjalarvogi 21, 104 Reykjavík - Sími 552 9844 - Fax 562 9844 - londun@londun.is
Löndun ehf sér um skipaafgreiðslu í Reykjavík og
Hafnarfjarðarhöfn. Fyrirtækið veitir vandaða og skjóta
þjónustu. Býður einnig upp á nauðsynlegan tækjabúnað
og úrval manna sem reiðubúnir eru með stuttum
fyrirvara að landa úr skipum.
Fyrirhyggja, lipurð
og samviskusemi
einkenna þá
þjónustu sem
við veitum