Fréttablaðið - 12.08.2008, Síða 42
26 12. ágúst 2008 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
PEKING 2008 Erla Dögg Haralds-
dóttir varð í 35. sæti af 38 kepp-
endum í 200 metra fjórsundi í
gær. Erla kom í mark á tímanum
2:20,53 mínútur sem er tæpum
tveim sekúndum frá Íslandsmeti
hennar en samt næstbesti tími
hennar í greininni frá upphafi.
„Ég hef verið að bæta mig
mjög mikið á þessu ári og í raun
fór ég úr 2:21 mínútu í 2:18 þegar
ég sló Íslandsmetið. Þetta er sem
sagt næstbesti tíminn minn frá
upphafi sem ég er svona þokka-
lega sátt við en ég hef ekki getað
æft mig nógu mikið í þessari
grein,“ sagði Erla við Frétta-
blaðið skömmu eftir sundið.
„Ég hefði viljað einbeita mér
almennilega frá því í apríl er ég
náði lágmarkinu. Þar sem hægt
var að ná lágmörkum til 15. júní
gat ég ekki einbeitt mér nógu vel
að þessu sundi fyrr en þetta seint.
Ef svo hefði ekki verið hefði ég
hugsanlega toppað hér. Maður
veit það ekki,“ sagði Erla en er
hún ánægð með leikana hjá sér?
„Eiginlega ekki. Ætla það sé
ekki svona sex til sjö á skalanum
til tíu. Ég hefði ekki viljað breyta
neinu stórkostlegu í undirbún-
ingnum. Það er ákveðinn léttir
að þetta sé búið. Það eru spenn-
andi tímar fram undan og það er
alveg pottþétt að ég kem aftur á
Ólympíuleikana eftir fjögur ár í
London. Þá ætla ég að standa mig
betur,“ sagði Erla Dögg. - hbg
Erla fjarri sínu besta en á sínum næstbesta tíma:
Ætla að standa mig
betur í London
ERLA Syndir hér í Peking í gær en hún
var nokkuð frá sínum besta tíma.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Lögmál 1: Bikarinn skal vera tandurhreinn, þveginn
upp úr fitulausri sápu og skolaður í köldu vatni þar
til hann nær sama hitastigi og ölið. Þannig verður
froðan þéttari og heldur hvítum hlífiskildi sínum
lengur yfir hinum dýrmæta vökva. Minnstu óhrein-
indi geta spillt fyrir og mengað fullkomin bragðgæði
Stellu Artois.
Lögmál 2: Þegar byrjað er að hella er bikarnum hallað um
45 gráður. Þá sjáum við hvernig dýrmætur vökvinn hringar
sig ofan í bikarinn og myndar iðuna sem er galdurinn við
fljótandi gullgerðarlist. Þegar ölið kemst í samband við súr-
efni myndast smám saman þétt froða sem innsiglar inni-
haldið og verndar það frá fyrsta sopa til hins síðasta.
Lögmál 3: Þegar bikarinn, sem
hingað til hefur hallað um
45 gráður, hefur verið fylltur að
þremur fjórðu skal hann réttur
við. Með jafnri hreyfingu er hann
samtímis færður niður frá flösku-
opi um sem nemur hæð bikarins.
Þannig krýnum við ölið þéttri
froðu sem skýlir innihaldi bikars-
ins og tryggir ferskleika og líf
þessa fljótandi gulls.
ÍA 1-4 KEFLAVÍK
0-1 Símun Samuelsen (9.), 0-2 Guðm.
Steinarsson (19.),1-2 Arnar Gunnlaugs.
(49.), 1-3 og 1-4 Patrik Redo (76. og 82.)
Akranesvöllur, áhorf.: óuppgefið
Eyjólfur M. Kristinsson (5)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 14–18 (9–9)
Varin skot Esben 5 – Ómar 6
Horn 7–9
Aukaspyrnur fengnar 12–16
Rangstöður 2–4
ÍA 4–5–1 Esben Madsen 4, Árni Guðmunds 5,
Heimir Einarsson 6, Dario Cingel 4 (46. Helgi Magn-
ússon 7), Guðjón H. Sveinsson 6, Þórður Guðjóns. 4
(67. Aron Pétursson 5), Pálmi Haraldsson 6, Arnar
Gunnlaugsson 8, Guðmundur B. Guðjóns. 5 (46. Árni
Pjet. 5), Björn Sigurðarson 6, Stefán Þórðarson 5.
Keflavík 4–3–3 Ómar Jóhannsson 8, Guðjón Árni
Antoníusson 6, Kenneth Gustafsson 7, Hallgrímur
Jónasson 7, Brynjar Guðmundsson 6, Hólmar Rún-
arsson 8, Jóhann B. Guðmundsson 5 (61. *Patrik
Redo 8), Hans Mathiesen 5, Símun Samuelsen
6, Guðmundur Steinars. 7 (75. Einar Einarsson -),
Hörður Sveinsson 7 (82. Þórarinn B. Kristjánsson -).
> Helena stigahæst á NM 2008
Helena Sverrisdóttir er stigahæsti leikmaður Norður-
landamóts kvenna í körfubolta sem lauk um helgina í
Danmörku. Helena skoraði 69 stig í fjórum leikjum sem
gera 17,3 stig að meðaltali en hún varð
einnig önnur í stoðsendingum, í fjórða
sæti í stolnum boltum og í 5. sæti í
fráköstum samkvæmt opinberri tölfræði
mótsins. Helena var með 8,0 fráköst
og 6,0 stoðsendingar að meðaltali
í leik. Signý Hermannsdóttir tók
flest fráköst og varði flest skot
á mótinu og Petrúnella Skúla-
dóttir hitti best allra fyrir utan
þriggja stiga línuna.
Fjölnismenn töpuðu sínum fjórða leik í röð þegar þeir
lágu 2-3 fyrir Íslandsmeisturum Valsmanna á Fjölnisvellin-
um í gær. Fjölnismenn voru miklu meira með boltann og
sköpuðu sér fjölda færa en Valsmenn nýttu færin sín
vel, komust þrisvar yfir í leiknum og þriðja markið
nægði til þess að tryggja liðinu fjórða útisigurinn
í röð. Það var ekki nóg með að sigurmarkið kæmi
gegn gangi leiksins heldur var af því mikil rangstöðu-
lykt.
„Ég er ánægður með leikinn heilt yfir og það var
alveg klárt mál að við áttum að fá eitthvað út úr þessu.
Þetta var með stærri ránum sumarsins,“ sagði Ásmundur
Arnarsson, þjálfari Fjölnis, eftir leik.
„Auðvitað þarf að fara betur yfir þetta mark en frá
mínum bæjardyrum séð,“ sagði Ásmundur um hvort
sigurmarkið hefði verið rangstaða. „Ég sé ekki hvort
hann er rangstæður en það er gríðarleg lykt af þessu.
Mér finnst stóru liðin njóta vafans hjá dómurunum
og mér fannst full mikil virðing fyrir Valsmönnum í
dag,“ sagði Ásmundur, sem var samt ánægður með sína stráka. „Við
náðum góðu taki á leiknum og stjórnuðum honum mjög vel. Við
áttum að klára þetta en niðurstaðan er fínn leikur en engin stig.“
Sigurbjörn Hreiðarsson var mun léttari enda nýbúinn að tryggja
Valsmönnum þrjú stig. „Þetta var mjög mikilvægur sigur en þeir
voru betri í þessum leik. Við kunnum að klára svona leiki þar
sem við erum ekki endilega betri aðilinn. Við vorum ekki að
spila nægilega vel en fögnum stigunum,“ sagði hetja Vals-
manna eftir leikinn.
Sigurbjörn skoraði sigurmarkið sjö mínútum fyrir leikslok
og var það fyrsta deildarmark hans fyrir Val síðan 29. maí
2006. „Baldur var að sóla mann og annan fyrir utan teig og
svo kom boltinn fyrir. Ég held að þetta hafi örugglega átt að
vera sending frá honum. Ég var alveg einn inni í teig og ég get
ekki sagt hvort ég hafi verið rangstæður eða ekki. Ég er ekki
búinn að skora í langan tíma enda búinn að færa mig aftar á
völlinn. Þetta var langþráð mark,“ sagði Sigurbjörn. „Ég skoraði
líka þegar ég spilaði hérna síðast,“ bætti miðjumaðurinn við í
léttum tón. - óój
ÁSMUNDUR ARNARSSON, ÞJÁLFARI FJÖLNIS: ENN Á NÝ ELTIR SEINHEPPNIN NÝLIÐANA ÚR GRAFARVOGI
Þetta var með stærri ránum sumarsins
FÓTBOLTI „Gæðin hjá sumum leik-
mönnum eru alls ekki nógu góð.
Það er ekkert flóknara en það og
það er klúbbnum til skammar.
Félög eins og ÍA eiga ekki að sætta
sig við miðlungsleikmenn. Það eru
kannski hörð orð en það er sann-
leikurinn. Nú þurfum við að taka
erfiðar ákvarðanir en við sáum í
þessum leik hverjir eru tilbúnir og
hverjir ekki.“
Það var vitanlega þungt hljóðið í
Arnari Gunnlaugssyni, öðrum
þjálfara ÍA, eftir leik sinna manna
gegn Keflavík í gær. Keflvíkingar
unnu 4-1 sigur en í stöðunni 2-1
voru Skagamenn nálægt því að
jafna metin. Þeir vildu til að mynda
fá víti en er ekkert var dæmt
brugðust þeir illa við og Bjarki,
bróðir Arnars og hinn þjálfari ÍA,
fékk fyrir vikið að líta rauða spjald-
ið. Hann var þó ekki að spila í gær.
„Við ætlum ekki að kenna dóm-
aranum um okkar ófarir. Þetta
jafnast allt saman yfir tímabilið.
Ætli við fáum ekki bara víti í næsta
leik,“ gantaðist Arnar.
Keflavík fékk óskabyrjun í leikn-
um og komst 2-0 yfir eftir nítján
mínútur. Fyrst skoraði Símun
Samuelsen eftir hroðaleg mistök
Esben Madsen í markinu og síðar
Guðmundur Steinarsson beint úr
aukaspyrnu.
Arnar svaraði með marki sem
kom einnig beint úr aukaspyrnu og
hófst þá ótrúlegur leikkafli þar
sem bæði lið óðu í færum – sér-
staklega heimamenn. En þá kom
varamaðurinn Patrik Redo inn á og
kláraði leikinn með tveimur mörk-
um í lokin.
„Ég var ekki ánægður með að
missa leikinn í 2-1,“ sagði Kristján
Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur.
„Ég verð samt að vera sáttur við
niðurstöðuna. Leikmenn eiga allir
sína góðu og slæmu daga en aðal-
málið er að þetta var góður sigur á
útivelli.“
„Eftir að þeir minnkuðu muninn
var komið að þætti Ómars (Jóhann-
sonar markvarðar) og hann hélt
okkur inn í þessum leik þar til
seinni mörkin tvö komu. Við hefð-
um samt getað skorað fleiri mörk í
leiknum, rétt eins og þeir.“
Arnar sagði að Keflavík hefði
verið lengst af betri aðilinn í fyrri
hálfleik. „Við áttum svo seinni hálf-
leikinn og hefðum átt að jafna. En á
móti liði eins og Keflavík er hættu-
legt að skilja eftir göt í vörninni
sem þeir nýttu sér vel.“
Keflavík minnkaði þar með mun-
inn í eitt stig á topplið FH en Kristj-
án segir að það sé enginn streita
kominn í mannskapinn út af topp-
slagnum.
„Á meðan við erum einbeittir að
okkar markmiðum sem við erum
búnir að setja fyrir liði sem og ein-
staklingana er þetta í lagi og allt
annað ekkert mál.“ eirikur@frettabladid.is
Erfiðar ákvarðanir bíða ÍA
Arnar Gunnlaugsson sagði eftir tap sinna manna fyrir Keflavík í gær að nú
þyrfti að taka erfiðar ákvarðanir. ÍA tapaði sjöunda leiknum í röð í gær.
KJÚKLINGASALAT Stuðningsmenn ÍA
sendu Guðjóni Þórðarsyni skýr skilaboð
með því að bjóða upp á kjúklingasalat
fyrir áhorfendur í gær. Guðjón sagði
fyrir skömmu að „ekki væri hægt að
búa til kjúklingasalat úr kjúklingaskít,“
um Skagaliðið. Ummælin féllu í grýttan
jarðveg hjá Skagamönnum sem gerðu
þarna stólpagrín að Guðjóni fyrir vikið.
FRÉTTABLAÐIÐ/E. STEFÁN
TÆKLAÐ ÁN ÁRANGURS Skagamaðurinn
Árni Ingi Pjetursson reynir hér að ná bolt-
anum af Herði Sveinssyni, án árangurs.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/F
Ó
TB
O
LT
I.N
ET