Fréttablaðið - 02.09.2008, Qupperneq 18
2. september 2008
ÞRIÐJUDAGUR
2
Kynfræðiráðstefna á vegum Sam-
taka norrænna kynfræðifélaga
verður haldin á Grand Hótel í
Reykjavík fimmtudaginn 4. sept-
ember og stendur til 7. september.
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir kyn-
fræðingur og Sólveig Anna Bóas-
dóttir, guðfræðingur og siðfræð-
ingur, sitja í undirbúningsnefnd að
henni.
„Ráðstefnan er árleg og er þetta
í annað sinn sem hún er haldin hér
á landi en Norðurlöndin skiptast á
að halda hana,“ segir Jóna og bætir
við að kynfræði sé vaxandi fræði-
grein sem snúist um kynverund
mannsins, en hugtakið nær yfir
kynlífsathafnir okkar, hugsanir, til-
finningar og alla þá reynslu sem
felst í því að vera kynvera. Að
hennar sögn hefur fræðigreinin
þróast með ólíkum hætti eftir lönd-
um.
Þemað í ár er rannsóknir og nám
í kynfræði. „Dagskráin skiptist í
þrennt,“ segir Jóna. „Við byrjum á
glæsilegri vinnusmiðju sem dr.
Sólveig Anna Bóasdóttir stýrir um
kynfræði og siðfræði. Annar hlut-
inn snýst um rannsóknir og rann-
sóknarniðurstöður verða kynntar.
Þar kemur margt spennandi fram,
eins og árangur af kynlífsmeðferð,
kynhegðun unglinga og þróun kyn-
lífsrannsókna. Í þriðja hlutanum
verður farið í þróun náms í faginu
og hvernig það hefur skilað sér, til
dæmis til heilbrigðisstétta. Nám í
kynfræðum verður einnig kynnt,
bæði hér heima og á Norðurlönd-
unum.“
Um þrjátíu erindi verða flutt á
ráðstefnunni en fyrirlesararnir
koma fyrst og fremst frá Norður-
löndunum. Sólveig Anna bendir á
að þó nokkur íslensk erindi verði
flutt á ráðstefnunni, sem hún segir
vera nýbreytni því Íslendingar hafi
ekki mikið látið að sér kveða á
þessum ráðstefnum.
Jóna og Sólveig eru sammála um
að ekki veiti af aukinni faglegri
umræðu hérlendis um þetta mál-
efni. „Það er svo mikið ósamræmi
milli þeirrar miklu kynlífsvæðing-
ar sem er í gangi og faglegrar
þekkingar,“ segir Sólveig. „Mín
nálgun er önnur en hjá hinum
klínísku kynfræðingum. Ég tek
kynfræðina út frá heimspekilegri
og siðferðislegri nálgun. Mikil-
vægt er að koma inn með sýnina á
manneskjuna sjálfa, hvað henni er
eðlilegt og hverjar þarfir hennar
eru. Neikvæð sýn á manneskjuna
sem kynveru hefur til dæmis verið
hluti af guðfræðilegri kristinni
hefð og hefur haft mjög slæmar
afleiðingar í för með sér.“
Þess má geta að undirbúningur
stendur nú yfir að háskólanámi í
kynfræðum hérlendis og að sögn
Jónu er vonast til að það fari af
stað strax næsta haust. Jóna, Sól-
veig, Áslaug Kristjánsdóttur kyn-
fræðingur og Sóley Bender, dósent
í hjúkrunarfræði, standa að undir-
búningi þess.
Ráðstefnan er opin bæði fagfólki
og almenningi og hægt er að kaupa
sig inn á alla ráðstefnuna, sem og
dagpassa á einstaka viðburði. Þeim
sem vilja kynna sér dagskrána er
bent á heimasíðuna www.kynstur.
is. Einnig er hægt að hafa samband
á netfangið nacs2008@iii.is.
klara@frettabladid.is
Þekkingin bætir kynlífið
Samtök norrænna kynfræðifélaga heldur ráðstefnu á Grand Hótel 4. september. Þetta er í annað sinn
sem ráðstefnan er haldin hérlendis. Að sögn Jónu Ingibjargar Jónsdóttur kynfræðings er mikil þörf á
faglegri þekkingu á þessu málefni hérlendis.
Sólveig Anna Bóasdóttir og Jóna
Ingibjörg Jónsdóttir kynfræðingur
standa að undirbúningi náms í
kynfræði á háskólastigi hérlendis.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
NIÐURSTÖÐUR úr rannsókn sem gerð var við Háskólann í Edinborg sýna að
notkun barnshafandi kvenna á ilmvötnum eða snyrtivörum, sem kunna að inni-
halda ilmefni, geti aukið hættu á ófrjósemi ófæddra barna þeirra. Frá þessu er
greint á www.bbc.co.uk.
Original Arctic Root
Ein vinsælasta lækningajurt heims
Original Arctic Root öðru nafni Burnirót er ein vinsælasta lækningajurtin í
heiminum í dag. Klínískar rannsóknir hafa leitt í ljós að hún eflir einbeitingu,
úthald og vinnur gegn streitu og álagi.
Vinnur gegn streitu og álagi
Original Arctic Root er fljótverkandi og þeir sem nota hana finna jákvæða
breytingu á einbeitingu og úthaldi á skömmum tíma. Original Arctic Root hefur
svo sannarlega slegið í gegn á Íslandi og nýtur nú mikilla vinsælda.
Fæst í apótekum og heilsubúðum.
Heilsuvara ársins
í Svíþjóð
2003, 2004 og 2005
Kynningarnámskeið um grundvallaratriði lífsins
Kynnt verður aðferð sem gerir kleift að liaóttalaus með öllu, hafa sterkan tilgang í tilverunni, fullur trausts a sjálfum sér og öðrum. Þetta er fyrsta skrefi ð í þjálfunarferli sem fjölmargir nota viða
um heim. Fyrsta helgarnámskeiðið verður svo 20.og 21 sept n.k. Ferlið er fyrir þá sem vilja fá meira útúr lífi nu og láta gott af sér leiða. Leiðbeinandi er Pétur Guðjónsson, höfundur marga bóka,
m.a. “Bókin um hamingjuna”, “Að lifa er list”, “Leitað að Guði”.....
Staður.... Grand Hotel
Stund .... Fimmtudagur 11sept, kl 20-23.
Verð... 2500 kr, innifalið kaffi og meðlæti
Áhugasamir bóki þátttöku á petur@islandia.is
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Airfree lofthreinsitækið
Byggir á nýrri tækni sem eyðir
• Svifryki, myglusveppi og ólykt
• Gæludýraösu og bakteríum
• Vírusum og öðrum örverum
• Er hljóðlaust og viðhaldsfrítt
• Tilvalið á heimilið og skrifstofuna
Hæð aðeins 27 cm
Betra loft
betri líðan
• 5 tímar í skvass
• 5 tímar í Golf
• máltíð á BK Kjúkling
• 5 tímar í ljós
• frítt í allar ÍTR sundlaugarnar
• frír mánuður fyrir vin
• tækjakennsla
• bolur
• brúsi
Sport
Klúbburinn