Fréttablaðið - 02.09.2008, Side 19
ÞRIÐJUDAGUR 2. september 2008 3
Auglýsingasími
– Mest lesið
ÍSLENSKUNÁMSKEIÐ fyrir útlendinga hefjast 15. og 16.
september hjá Mími símenntun. Námskeiðin eru á fimm stigum auk
sérstakra tal- og ritunarnámskeiða. Hægt er velja um morgun- og
kvöldtíma. Upplýsingar og skráning í síma 580 1808 eða á mimir.is.
„Það er auðvelt að koma heim með
vitlausa vínflösku þegar halda á
matarboð,“ segir Sædís Gísladóttir
vínráðgjafi, sem útskrifaðist með
gráðu í vínfræðum frá hinum virta
skóla Wine and Spirit Education
Trust (WSET) á Englandi í vor.
„Við útskrifuðumst þrjár konur
að þessu sinni, en áður höfðu
útskrifast fjórir karlar. ÁTVR er
samstarfsaðili WSET og námið fer
fram hér heima, en náms- og próf-
gögn eru send að utan, sem og próf-
skírteini,“ segir Sædís, sem í sjö ár
hefur starfað hjá ÁTVR.
„Nám í vínráðgjöf býðst þeim
sem hafa lokið námskeiðum í Vín-
skóla ÁTVR með ágætiseinkunn.
Hjá WSET lærðum við um lönd,
þrúgur, veðurfar, jarðveg og annað
sem lýtur að víngerð og kom á óvart
hversu mikill vísdómur liggur að
baki. Námið var ótrúlega skemmti-
legt, en virkilega strembið. Í verk-
lega hlutanum er smökkun fyrir-
ferðarmikil, enda þurfa
vín ráðgjafar að geta skilgreint upp-
byggingu víns og uppruna af
nákvæmni með lyktar- og bragð-
skyni sínu,“ segir Sædís.
„Vínráðgjafar leiðbeina um val á
víni fyrir hvert og eitt tilefni með
sérþekkingu sinni, hvort sem það
er léttvín, bjór eða sterkt vín. Vín-
ráðgjöf nýtur mikilla vinsælda,
enda margt sem spilar inn í hvað
varðar vínið sjálft, en einnig mat
og meðlæti sem á að njóta með vín-
glasi. Fólk kýs í auknum mæli að
drekka lífræn vín og er vínheimur-
inn að koma til móts við þá eftir-
spurn með því að hafa afurðir sínar
eins náttúrulegar og hægt er. Það
er bæði dýrara og áhættusamara
fyrir framleiðendur, en þó hefur
vín ekki hækkað að ráði hérlendis í
mörg ár. Ódýr vín þykja dýr í
saman burði við nágrannalöndin, en
dýr vín eru ódýrari, og reyndar svo
mjög að hingað koma safnarar til
að kaupa fínustu vín í heimi,“ segir
Sædís og staðfestir að frönsk vín
þyki enn þau bestu á heimsvísu.
„Frakkar stunda vínrækt við
kjöraðstæður með gamla siði að
vopni. Útkoman er spennandi og
aldrei tvisvar eins, og fer eftir
veðri. Það hefur loðað við vín frá
Nýja heiminum að vera keimlík
milli ára, en vín Frakklands, Ítalíu
og Spánar eru margbreytileg og
alltaf jafn spennandi að bíða nýrrar
uppskeru þaðan,“ segir Sædís, sem
starfar við vínráðgjöf í nýjustu
verslun ÁTVR í Skútuvogi 2.
thordis@frettabladid.is
Vísdómur og vín
Að velja hið fullkomna vín fyrir rétta tilefnið er þrautin þyngri fyrir
leikmenn í hillum vínbúða, en þar koma vínráðgjafar til hjálpar með
sérþekkingu á flóknu samspili víns og matar.
Sædís Gísladóttir er nýútskrifaður vínráðgjafi og starfar í nýjustu 1.000 tegunda
verslun ÁTVR í Skútuvogi. Hún er ein þriggja kvenna og fjögurra karla sem lokið hafa
námi í vínráðgjöf frá hinum virta vínskóla WSET á Englandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Stefnumótun, vöru- og þjónustuþró-
un, markaðsmál, fjármál og stjórn-
un auk annarra hagnýtra atriða við
stofnun og rekstur fyrirtækja er á
meðal þess sem kennt er á nám-
skeiðinu Brautargengi, sem hefst á
Akureyri, Reyðarfirði og Reykja-
nesbæ hinn 13. september.
Námskeiðið, sem Impra hefur
haldið síðan árið 1996, er ætlað
athafnakonum sem vilja hrinda við-
skiptahugmyndum sínum í fram-
kvæmd.
Markmið námskeiðsins eru að
konurnar vinni viðskiptaáætlun,
kynnist grundvallaratriðum í stofn-
un fyrirtækis, öðlist innsýn og þekk-
ingu á atriðum er lúta að rekstri
fyrirtækis, til að mynda á stefnu-
mótun, markaðsmálum, fjármálum
og stjórnun. Það byggist upp á fyr-
irlestrum og verkefnatímum.
Námskeiðið er sjötíu tímar og
kennt einu sinni í viku í fimmtán
vikna lotu, 4,5 tíma í senn. Nánari
upplýsingar um Brautargengi er að
finna á heimasíðu Impru, www.
impra.is, eða með því að hafa sam-
band við Selmu Dögg Sigurjóns-
dóttur, selma@nmi.is eða sími 460
7970.
Konur á framabraut
Brautargengi er ætlað athafnakonum.
NORDICPHOTOS/GETTY
Nám í búvísindum
undirbýr nemendur
fyrir alls kyns störf
tengd landbúnaði, svo
sem búrekstur, leið-
beiningar, þjónustu,
kennslu,
rannsókna-
störf og
fleira.
www.land-
bunadur.is.
Tungumál
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
Áhersla á talmál
Kennt er í byrjenda -
framhalds –
og talæfi ngafl okkum
ENSKA
DANSKA
NORSKA
SÆNSKA
FRANSKA
ÍTALSKA
SPÆNSKA
ÞÝSKA
Íslenska
fyrir útlendinga I - V
9 vikna námskeið
50 kennslustundir
Icelandic
for foreigners I - V
9 weeks courses
50 class hours
Nauka jezyka
islandzkiego dla
obcokrajowcow I – V
Kurs 9-tygodniowy
50 godzin lekcyjnych
Verklegar greinar
Bókband
Frístundamálun
Glerbrennsla
Silfursmíði
Skrautritun
Trésmíði
Útskurður
Saumanámskeið
Að endursauma föt
og hanna að nýju
Crazy quilt
Fatasaumur/
Barnafatasaumur
Skrautsaumur
Baldering
Skattering
Þjóðbúningur - saumaður
Tölvunámskeið
Fingrasetning
Tölvugrunnur
Tölvugrunnur II
Word
Ritvinnsla
Garðyrkjunámskeið
Garðurinn allt árið
NÁMSKEIÐ Á HAUSTÖNN 2008
Matreiðslunámskeið
Gómsætir bauna – pasta –
og grænmetisréttir
Gómsætir hollir suðrænir réttir
frá Miðjarðarhafslöndunum
Hráfæði
Matarmiklar súpur og
heimabakað brauð
Matargerð fyrir karlmenn I
Grunnnámskeið
Matargerð fyrir karlmenn II
Framhaldsnámskeið
Bökur
Fríðubökur
Förðunarnámskeið
Förðunarnámskeið
Að farða sig og aðra
Innritun í síma 564 1507
á vef skólans http:// kvoldskoli.kopavogur.is eða á skrifstofu Kvöldskólans í Snælandsskóla
Nánari upplýsingar eru einnig á vefsíðu skólans
Vefsíða:http:// kvoldskoli.kopavogur.is Netfang: kvoldskoli@kopavogur.is
554 7212 / 865 5890
Trommuskóli Gunnars Waage
Innritun stendur yfir fyrir byrjendur og lengra komna
Undirbúningsdeild
Diplomanám á háskólastigi
t ro m m u s k o l i n n . i s