Fréttablaðið - 02.09.2008, Page 26
2. SEPTEMBER 2008 ÞRIÐJUDAGUR10 ● fréttablaðið ● skólar og námskeið6
Fyrirtækið Verkefnalausnir býður upp á
MindManager-hugbúnaðinn sem nýtist
við verkefnastjórnun, skipulagningu og
fleira. NORDICPHOTOS/GETTY
Fyrirtækið Verkefnalausnir, sem
sérhæfir sig í hagnýtum lausnum
á sviði verkefnastjórnunar,
býður meðal annars upp á Mind
Manager-hugbúnaðinn. Að sögn
Elínar Þ. Þorsteinsdóttur, fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins, nýt-
ist hann við verkefnastjórnun og
skipulagningu, hugarflug, fundar-
stjórnun, kynningar, skýrslugerð
og til að halda utan um upplýsing-
ar.
Fyrirtækið stendur reglulega
fyrir opnum námskeiðum í notk-
un búnaðarins en annars vegar
er um að ræða hraðnámskeið sem
eru ætluð mjög tölvufærum not-
endum og hins vegar grunn- og
framhaldsnámskeið. Þá er einnig
haldinn fjöldi námskeiða innan
fyrirtækja og stofnana. „Með hug-
búnaðinum, sem er mjög notenda-
vænn, getur fólk skapað yfirsýn
yfir verkefni sín, sparað tíma og
aukið afköst,“ segir Elín.
Hinn 27. október næstkomandi
mun fyrirtækið standa fyrir
morgunverðarfundi sem ber yfir-
skriftina Mind Manager í skóla-
starfi. Þar er ætlunin að fjalla
um hvernig hugbúnaðurinn getur
nýst skólastjórnendum, kennur-
um og nemendum í skólastarfi á
öllum stigum. - ve
Betri yfirsýn og afköst
● LIST Í ALMENNINGSRÝMI Saga útilistaverka í
Reykjavík verður rakin á námskeiði sem Listasafn Reykjavíkur
stendur fyrir dagana 24. september og 1., 8. og 11.
október. Ljósi verður varpað á helstu strauma
og stefnur sem einkennt hafa list í almennings-
rými á síðari árum og sérstakur gaumur gefinn
verkum nokkurra listamann sem eiga áhugaverð
verk í borginni. Námskeiðinu lýkur með vettvangsferð
þar sem útilistaverk í borginni verða skoðuð.
Í haust geta iðnaðarmenn úr
flestum greinum bætt enda-
laust við sig þegar kemur
að spennandi námskeiðum
Iðunnar.
„Iðan er orðin tveggja ára og
vex hratt á milli ára, en heildar-
fjöldi námskeiða hefur vaxið um
58 prósent og fjöldi þátttakenda
um 37 prósent,“ segir Hildur Elín
Vignir, framkvæmdastjóri Iðunnar
fræðsluseturs, sem varð til við
samruna fjögurra fræðslumið-
stöðva í iðnaði og ferðaþjónustu
vorið 2006. Hlutverk Iðunnar er að
bæta hæfni fyrirtækja og starfs-
manna í bíl-, bygginga- og málm-
iðngreinum, prentiðnaði, matvæla-
og veitingagreinum, og nú síðast
hárgreiðslugreinum.
„Úrval námskeiða í haust er
geysilega spennandi og fjölbreytt.
Með tilkomu hárgreiðsluiðnar
bjóðum við í fyrsta sinn nám-
skeið í herraklippingu fyrir fag-
fólk, en hingað til hafa slík nám-
skeið verið á vegum heildsala. Við
leggjum áherslu á að fá til liðs við
okkur bestu fáanlegu sérfræðinga
og verðum meðal annars með nám-
skeiðið Græn hársnyrtistofa sem
Johan Galster kennir hérlendis.
Danir eru í fararbroddi þegar
kemur að þróun vistvæns fyrir-
tækjareksturs og Johan kennir
nýja hugsun og aðferðir í vistvænni
efnanotkun,“ segir Hildur Elín.
„Í haust bjóðum við aukið fram-
boð í almennum og rekstrarstjórn-
unarnámskeiðum. Þar má nefna
námskeið sem nú er brýn þörf fyrir,
eins og skuldastýringu, gengis-
varnir, birgðahald, vörustjórnun
og framleiðslustýringu í iðnaði. Þá
erum við með námskeið fyrir bíl-
greinar, örnámskeið fyrir minni
fyrirtæki og réttindanámskeið
fyrir bifvélavirkja til að verða lög-
giltir tjónamenn. Óupptalin eru
námskeið á málm- og véltækni-
sviði, almenn og sérhæfð tölvunám-
skeið, og sameiginleg verkefni þar
sem við nýtum þekkingu úr einni
iðngrein í aðra, eins og með því að
bjóða upp á rafmagnsfræði og iðn-
tölvustýringu fyrir prentiðnað sem
mjög er að tæknivæðast. Síðast
en ekki síst bjóðum við spenn-
andi matreiðslunámskeið um nor-
ræna eldhúsið með einum fremsta
matreiðslumeistara Norðurlanda,
Mattias Dalhgren frá Grand Hotel í
Stokkhólmi,“ segir Hildur Elín.
„Á haustdögum bryddum við upp
á þeirri nýjung að vera með viku sí-
menntunar á Norður- og Austur-
landi, til að sinna betur okkar fólki
á landsbyggðinni. Þar bjóðum við
ýmis námskeið fyrir iðngreinar, en
færum líka heim í hérað stjórnunar-
og þjónustunámskeið, auk átaks
fyrir okkar félagsmenn í almenn-
um tölvunámskeiðum.“
Námskeið eru að byrja og
verða áfram í allt haust hjá Iðunni
fræðslusetri. Nánari upplýsingar á
www.idan.is. - þlg
Græn hárgreiðsla framtíðin
Hildur Elín Vignir er
framkvæmdastjóri
Iðunnar sem býður upp
á frábært úrval nám-
skeiða fyrir hinar ýmsu
iðngreinar í haust.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
RN
ÞÓ
R
FYRIR EFTIR
OPNI HÁSKÓLINN
í háskólanum í reykjavík
HAGNÝTT NÁM FYRIR STJÓRNENDUR:
OPNI HÁSKÓLINN – StjórnMennt
Gull í mund – þekkingaráskrift
Einstakt tækifæri fyrir fyrirtæki
og stofnanir til að senda valinn
hóp stjórnenda á erindi átta
leiðbeinenda í heimsklassa og
skerpa þannig á áherslum í
stjórnun og rekstri (8 skipti).
opnihaskolinn.is
Auðlind einstaklinga – Auðlind atvinnulífsins
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-1
2
4
6
7 venjur til árangurs
Vinnustofa sem byggir á verkum Stephen
R. Covey, The 7 habits of highly effective
people/The 8th habit – From Effectiveness
to Greatness.
Við leggjum rækt við grunngildi, viðhorf
og verklag þitt þannig að þú uppskerir
aukinn árangur í starfi, rekstri og lífi!
Næsta opna vinnustofa er 29.-31. október
(20 klst).
Leiðtoginn og samskiptahæfni
9. september (33 klst.)
Fjármál stjórnandans
9. september (42 klst.)
Grunnþættir í mannauðsstjórnun
10. september (36 klst.)
Stjórnun og forysta í ferðaþjónustu
23. september (56 klst.)
Stjórnun og forysta í skólaumhverfi
18. september (30 eininga ECTS-nám)
Stjórnendur framtíðar
9. október (81 klst.)
Persónuleg forysta – 7 venjur
til árangurs
29. til 31. október (20 klst.)
Coaching Clinic – Að laða fram
það besta í öðrum
16. og 17. október (2 dagar)
Í samstarfi við
Kynntu þér þessi námskeið nánar á heimasíðu Opna háskólans.