Fréttablaðið - 02.09.2008, Síða 41
ÞRIÐJUDAGUR 2. september 2008 25
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 2. september
➜ Tónleikar
20.30 Almanaksljóð Gerður
Bolladóttir sópran, Pamela De
Sensi flautuleikari og Sophie Marie
Schoonjans hörpuleikari halda
tónleika í Sigurjónssafni. Meðal
verka er nýtt tónverk eftir Önnu S.
Þorvaldsdóttur við Almanaksljóð
séra Bolla Gústavssonar.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
Laugarnestanga 70.
➜ Tónlist
20.00 Við slaghörpuna Jónas
Ingimundarson
kynnir tónleika-
röðina TÍBRÁ
og komanda
starfsár í Salnum
með spili og
spjalli eins
og honum
einum
er lagið.
Aðgangur
ókeypis.
Salurinn,
tónlistarhús
Kópavogs.
➜ Myndlist
Hlynur Hallsson er með yfirlits-
sýningu sem samanstendur af eldri
og nýrri verkum. Sýningin stendur
yfir til 28. september. Nýlistasafnið,
Laugavegi 26. Opnunartími mán.-fös.
10-17, lau. 12-17.
Sigga Björg Sigurðardóttir sýnir í
101 Gallery, Hverfisgötu 18a. Sýnigin
stendur til 5. október.
Sjóndeildarhringir Málverk eftir
Bjarna Sigurbjörnsson og högg myndir
eftir Svövu Björnsdóttur og Kristinn
E. Hrafnsson. Sýningin stendur til
21. september. Listasafn Kópavogs,
Gerðasafn.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Beautiful Future er níunda plata
Primal Scream á rúmlega tuttugu
ára ferli. Plötur sveitarinnar eru
ólíkar. Hún hefur flakkað á milli
rokks, dubs, sýru og danstónlist-
ar. Stundum hafa rokkslagararn-
ir verið ráðandi, stundum sýran
eða danstónlistin. Það sem hefur
haldist í gegnum allan ferilinn er
töffaraskapur og smekkvísi
Bobby Gillespie, söngvara og
höfuðpaurs sveitarinnar.
Smekkvísin er á sínum stað á
Beautiful Future. Þetta er popp-
aðasta Primal Scream-platan
hingað til og eins og stundum
áður er sótt í riff og frasa úr rokk-
sögunni með ágætum árangri.
Það eru nokkur fín lög, til dæmis
titillagið, Uptown og Suicide
Bomb, en á heildina litið stendur
platan bestu plötum Primal
Scream töluvert að baki. Hún er
of flöt og tilþrifalítil til að ná að
halda athyglinni að fullu. Hún er
ekki vonlaus, en það er ekkert
nógu afgerandi á henni til að hún
fari í hóp með Screama delicu,
Vanishing Point, XTRMNTR eða
Evil Heat. Trausti Júlíusson
Smekklegt
TÓNLIST
Beautiful Future
Primal Scream
★★★
Þó að smekkvísin sé á sínum stað
á Beautiful Future þá er platan of
tilþrifalítil til að komast í hóp með
bestu plötum Primal Scream.
Brúðguminn, kvikmynd Baltasars
Kormáks, hefur hlotið tilnefningu
til kvikmyndaverðlauna Norður-
landaráðs í ár. Myndin er byggð á
leikriti Antons Tsjekhov og hlaut
afar góða aðsókn hér á landi fyrr á
árinu. Baltasar skrifaði einnig
handritið ásamt Ólafi Agli Ólafs-
syni og framleiddi myndina ásamt
Agnesi Johansen fyrir Sögn ehf.
Alls eru fimm myndir tilnefndar,
ein frá hverju Norðurlandanna, og
fær vinningsmyndin í sinn hlut 350
þúsund danskar krónur. Dóm-
nefndin er skipuð fagfólki frá
hverri Norðurlandaþjóð, en það er
rithöfundurinn Sjón sem er full-
trúi Íslands í henni. Vara-
maður er Sif Gunnarsdóttir
kvikmyndagagnrýnandi. Í
umsögn þeirra um Brúð-
gumann segir að myndin sé
án efa besta kvikmynd Baltasar
Kormáks. „Í Brúðgumanum kemst
hann til fulls þroska sem kvik-
myndagerðarmaður á sama tíma
og hann nýtir sér uppruna sögunn-
ar til að auðga kvikmyndalist sína
með tuttugu ára reynslu úr leik-
húsinu, bæði í myndrænni útfærslu
og frásagnarbrögðum.“
Hinar myndirnar sem eru til-
nefndar eru Fyrstu árin – Erik
Nietzsche – 1. hluti frá Danmörku,
þar sem Jacob Thuesen leikstýrir
handriti Lars Von Trier, hin finnska
Heimili dökku fiðrildanna í leik-
stjórn Dome Karukoski, Maðurinn
sem unni Yngvari frá Noregi í
leikstjórn Stian Kristiansen
og hin sænska Þið sem lifið
eftir Roy Andersson. Mynd-
irnar fimm verða til sýn-
ingar í Háskólabíói helgina
13. og 14. september á
vegum Græna ljóssins.
Tilkynnt verður um
úrslitin 15. október, en
verðlaunaafhending
fer fram í Helsinki 28.
október, þar sem
einnig verða afhent
önnur verðlaun Norður-
landaráðs. - sun
Brúðgumi Baltas-
ars tilnefndur
TILNEFNDUR TIL VERÐ-
LAUNA NORÐUR-
LANDARÁÐS Mynd
Baltasars Kormáks,
Brúðguminn,
er tilnefnd til
kvikmyndaverð-
launa Norður-
landaráðs í ár.