Fréttablaðið - 02.09.2008, Blaðsíða 46
30 2. september 2008 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. áfall, 6. frú, 8. klettasprunga, 9.
pfn., 11. fæddi, 12. útlit yfirborðs,
14. hégómi, 16. í röð, 17. yfirgaf, 18.
samhliða, 20. bókstafur, 21. nabbi.
LÓÐRÉTT
1. útmá, 3. einnig, 4. kassabók, 5.
blekking, 7. rauðber, 10. litningar, 13.
skarð, 15. æti, 16. tunna, 19. tveir
eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lost, 6. fr, 8. gjá, 9. mig,
11. ól, 12. áferð, 14. snobb, 16. áb, 17.
fór, 18. með, 20. ká, 21. arða.
LÓÐRÉTT: 1. afmá, 3. og, 4. sjóðbók,
5. tál, 7. rifsber, 10. gen, 13. rof, 15.
bráð, 16. áma, 19. ðð.
„Oftast nær
er ég með
kveikt á
www.hypem.
com sem er
svona music-
blog síða en
að öðrum
kosti er ég
mjög hrifinn
af því að
hlusta á folk
og/eða blús
við vinnuna.
The Jon Spencer Blues Explosion
eða Scott Biram. Síðan hlusta
ég mikið á swing, en það er
ákveðin heimavinna fyrir Lindy-
Hoppið.“
Þórgnýr Thoroddsen vinnur við eftir-
vinnslu kvikmynda.
Þrátt fyrir frásagnir um margboðaðan dauða
geisladisksins lifir hann enn ágætu lífi. Í ár hefur
sala á tónlist á CD verið svipuð og í fyrra. Geisla-
diskurinn er enn lang söluhæsta form útgáfu á
tónlist, netsala er einungis 5-10 prósent af heildar-
sölunni og sala á vínyl, sem þó þykir mest kúl, er
vart mælanleg.
Helgi Björns og Sigur Rós eiga söluhæstu
innlendu titla ársins. Hestamannaplata Helga,
Ríðum sem fjandinn, hefur selst í tæplega 6.000
eintökum og Sigur Rósar-platan Með suð í eyrum við
spilum endalaust hefur selst í rúmlega 5.000
eintökum. Sigurður Guðmundsson með Oft ég spurði
mömmu og Garðar Cortes með Cortes eru báðir
komnir í 3.500 eintök og Megasar-platan Á morgun
hefur selst í 3.200 eintökum. Athyglisvert er að
Helgi, Sigurður, Garðar og Megas eru allir með
tökulagaplötur, svo það hlýtur að mega draga þá
ályktun að Íslendingar vilji helst kaupa það sem þeir
hafa heyrt áður.
Árangur Megasar á vinsældalistunum vekur
athygli. Hann er ótvírætt inni í hlýjunni um þessar
mundir. Tökuplatan hans hefur selst í 3.200 eintök-
um á aðeins einum mánuði. „Mér sýnist þetta vera
sú Megasarplata sem hraðast hefur selst,“ segir
Rúnar Birgisson, umboðsmaður Megasar. „Plöturnar
hans í fyrra seldust í 5-6.000 eintökum hvor, en ég
gæti trúað að þessi færi í 7-8.000 áður en árið er á
enda.“
Á meðan Megas raðar sér í innkaupapokana á
Bubbi Morthens ekki eins upp á pallborðið. Fjórir
naglar, fyrsta platan hans með frumsömdu efni í
þrjú ár, hefur selst í um 3.000 eintökum á þremur
mánuðum. „Jú, þetta er nokkuð undir væntingum,“
viðurkennir Eiður Arnarsson hjá Senu, sem gefur
Bubba út. „Bubbi hefur reyndar alltaf selst betur á
veturna en sumrin – einhverra hluta vegna – og ég
er viss um að þessi plata á mikið inni.“ Kannski
Bubbi ætti að syngja gömul íslensk dægurlög næst?
Aðrar íslenskar plötur standa þessum nokkuð að
baki. Bang Gang hefur selst í 2.000 eintökum og
Dísa í 1.500 eintökum. Vel kynnt plata Merzedes
Club slefar hins vegar aðeins í þúsund eintök. Platan
kom einfaldlega allt of seint út til að geta nýtt sér
þann meðbyr sem vöðvabúntin höfðu í kringum
Eurovision-keppnina.
Safnplötur gera það gott. Kassinn 100 bestu lög
lýðveldisins hefur farið í 5.500 eintökum þrátt fyrir
umdeilt lagaval, Pottþétt 47 í 4.500 eintökum og
Laugardagslögin í 3.000 eintökum. Þá hefur kassi
Þursaflokksins selst í 1.500 eintökum á meðan
kassar Sálarinnar hafa selst í um 500 eintökum hvor
kassi.
„Á þessari öld hefur sala á geisladiskum haldist
nánast óbreytt á milli ára,“ segir Ásmundur Jónsson
hjá Smekkleysu. „Aðalbreytingin er sú að sala á
erlendri tónlist hefur dregist mikið saman en íslensk
tónlist bara tekið stærri sneið af kökunni í staðinn.“
Eiður hjá Senu tekur undir þetta: „Erlend tónlist
selst töluvert minna í ár en í fyrra, sem var aftur
minna en árið þar á undan. Þessi sama þróun á sér
stað um allan heim.“
Þrátt fyrir þetta er mest selda plata ársins erlend:
gömul Abba-lög í nýjum búningi úr bíómyndinni
Mamma Mia. Platan er um þessar mundir söluhæsta
platan hvarvetna í hinum vestræna heimi og
íslenskar konur gefa þeim erlendu ekkert eftir í
Abba-æðinu, 6.700 eintök eru þegar seld á Íslandi.
gunnarh@frettabladid.is
EIÐUR ARNARSSON: SÖGUR AF DAUÐA GEISLADISKSINS STÓRLEGA ÝKTAR
Megas selur meira en Bubbi
Tímaritið Samúel snýr aftur í
mánuðinum, í tæka tíð fyrir fjöru-
tíu ára afmæli blaðsins. „Forveri
Samúels byrjaði á því sögufræga
ári 1968, þannig að ég miða afmæl-
ið við það ár,“ segir ritstjórinn
Þórarinn Jón Magnússon, sem ýtti
blaðinu úr vör á sínum tíma. Það
verður þó með eilítið öðru sniði
núna. „Strákurinn minn vinnur í
netheimum og hann er að koma
mér inn í nútímann og dusta af
mér rykið. Þetta verður netútgáfa,
því það eru allir inni á netinu nú til
dags,“ útskýrir Þórarinn.
Á síðunni samuel.is má sjá
brotabrot af því sem koma skal, en
upp úr miðjum mánuði geta not-
endur farið að lesa bæði gamalt
efni og nýtt. „Blaðið kom út sam-
fleytt í heilan aldarfjórðung og
náði að verða sjö þúsund blaðsíð-
ur. Það er því af nógu að taka, og
greinilegt að nostalgían er vin-
sæl,“ segir Þórarinn kíminn.
„Maður sér það bara á þessum
gömlu rokkstjörnum sem flæða
yfir okkur,“ bætir hann við, en
Þórarinn og starfsfólk hans safna
nú efni í möppur af miklum móð
og stefna að því að geta bætt nýju
efni inn á heimasíðuna daglega í
eitt ár.
Samúel var á sínum tíma „karl-
rembublað“, eins og Þórarinn
orðar það sjálfur, og mun halda
því striki. Margir tengja blaðið
eflaust einnig við nektarmyndir,
en þar birtust reglulega myndir af
fáklæddum fegurðardísum.
„Menn hafa kannski tekið best
eftir því, en það fer nú eftir áhuga-
sviði hvers og eins. Það var tölu-
vert meira í blaðinu, það fjallaði
um skemmtanalíf og tísku, ferða-
lög og bílasport, kvikmyndir og
tónlist,“ útskýrir Þórarinn. - sun
Nútímalegri Samúel á netið
SAMÚEL SNÝR AFTUR Þórarinn Jón
Magnússon stefnir á að birta bæði
gamalt efni og nýtt á vefsíðunni www.
samuel.is innan skamms. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Séra Pálmi Matthíasson, sóknarprestur í
Bústaðakirkju, gerði sér lítið fyrir og fór holu í
höggi á Öndverðarnesvelli hinn 16. júlí
síðastliðinn.
Pálmi, sem byrjaði í golfinu í fyrra með konu
sinni Unni Ólafsdóttur, segist hafa hitt ofan í
fyrir algjöra tilviljun. „Ég held að þetta sé
algjör byrjendaheppni eða þá að það hafi
einhver góður verið með mér í liði,“ segir hann
og á þar vitaskuld við Guð almáttugan. „Ég
þakka honum fyrir hvern dag sem ég fæ að lifa
og þakka honum fyrir þetta eins og annað.“
Höggið örlagaríka átti sér stað á elleftu
braut sem er par þrjú hola. „Maður sér ekki
holuna því það er hlaðinn veggur í kring. Ég
leitaði að boltanum um allt en fann hann
hvergi. Mér hafði aldrei dottið í hug að líta
ofan í holuna og það hefði verið skemmtilegra
að sjá kúluna fara ofan í. Þeir sem hafa séð það
segja að það sé góð tilfinning.“ Pálmi segir
bráðnauðsynlegt að hafa konuna með sér í
golfinu, annað gangi einfaldlega ekki upp. „Ég
þekki það í mínu starfi að þetta er ekki mjög
gott sport þegar annað hjónanna er í þessu. Þá
er þetta eiginlega bara tilræði við sambandið.
En þetta er ótrúlega skemmtileg íþrótt því þú
ert alltaf að glíma við sjálfan þig.“
Pálmi vill ekki viðurkenna að prestsstarfið
gefi honum forskot á aðra þegar kemur að
golfinu. „Ég held að það sé ágætt að vera
prestur í lífinu yfirhöfuð og ég er mjög
þakklátur fyrir að vera það. Það er margt sem
maður lærir í mínu starfi sem gerir mann
þakklátari en ella.“ - fb
Pálmi þakkar Guði fyrir holu í höggi
GOLFARI AF GUÐS NÁÐ Séra Pálmi Matthías-
son gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á
Öndverðarnesvelli fyrr í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
ALDREI SELST JAFN HRATT
Megas er inni í hlýjunni
þessa dagana og selur
plötur sem aldrei fyrr.
UNDIR VÆNTINGUM Þrátt fyrir að
vera með fyrstu frumsömdu
plötuna sína í þrjú ár hefur
Bubbi selt minna en búist
var við. Hann á þó
væntan lega mikið inni.
www.takk. is
Það hefur ekki beint verið hátt risið
á íslenskum tónleikahöldurum eftir
sumarið. Fæstir tónleikar gengu sem
skyldi og átti gengishrun krónunnar
stóran þátt í því. Grímur Atlason
segist hættur tónleikahaldi og aðrir
segja að engir tónleikar séu fyrir-
hugaðir á næstunni. Þrátt fyrir það
heyrast sögur að þau Ragnheiður
Hanson og Halldór Kvaran í RR
hafi ekki lagt árar í bát. Heyrst hefur
að rokkgoðin í AC/DC og Metallica
séu efst á vinsældalistanum þar á
bæ enda eru báðar sveitirnar á leið
í stór tónleikaferðalög.
Halldór sagði í samtali
við Fréttablaðið að
þessi tvö nöfn væru
á meðal þeirra sem
þau hefðu spurst fyrir
um en ekkert væri
hins vegar frágengið
að svo stöddu.
Quarashi-hópurinn spilaði sitt
síðasta gigg á „glötuðu giggi“ á
Akureyri 2005. Í fyrra bauð Glitnir
banki bandinu að koma saman á
ný gegn myndarlegri greiðslu en
því var hafnað. Sölvi Blöndal aftók
það með öllu og sagði bandið
hætt. Ekkert bólar því á kombakki
þótt aldrei skuli segja aldrei. Sölvi
klárar um þessar mundir hagfræði-
nám í Svíþjóð en Ómar Swarez
er í auglýsingabransanum.
Rapparann Steina mátti
svo sjá í Kolaportinu
um helgina þar sem
hann seldi hluti úr
einkaeign. Hann er
á leið til Skotlands
í nám og fannst
tilvalið að létta á
innbúinu af því
tilefni.
Umræða um borgarmálin hefur
hvergi nærri lognast út af. Nú hefur
ný rödd kvatt sér til hljóðs, því í vef-
samfélaginu Facebook hefur verið
stofnaður hópurinn „Unni Birnu
sem borgarstjóra“. Á heimasvæði
hópsins má lesa að með-
limir telji „Reykjavíkur-
borg betur stjórnað
af Unni Birnu heldur
en Hönnu Birnu“.
Hópurinn fer stækk-
andi, en telur nú
um 78 manns.
Unnur Birna er
ekki þeirra á
meðal.
- hdm, glh, sun
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Gústav.
2 Femínistafélag Íslands.
3 Guðný Halldórsdóttir.