Fréttablaðið - 18.09.2008, Blaðsíða 72
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
ANKARBAKÞ
Dr. Gunna
Æi, hættu nú þessu væli! Næstagóðæri verður enn unaðs-
legra en það síðasta, sannaðu bara
til. Og það kemur áður en þú veist
af!
Í NÆSTA góðæri verða einkaþot-
ur eitthvað svo 2007. Þá dugar
ekkert nema ein Stealth á mann,
sumir fá sér kjarnorkukafbáta.
Wagyu-steik verður öreigamatur,
sneið af nýslátruðum pandabirni
verður lágmarkskrafa þeirra
nýríku.
STARFSLOKSAMNINGAR
þeirra æðislegustu verða ekki
mældir í hundruðum milljóna
króna heldur í hundruðum millj-
ónum evra. Þegar halda skal partí
verður ekki boðið upp á lítilfjör-
legt lið eins og Elton John og
Duran Duran; tónleikar með Roll-
ing Stones og Bítlunum (þeim
dánu verður skipt út fyrir afkvæmi
sín) verða hinn nýi staðall.
KNÚINN áfram af stórkarlaleg-
um afrekssögum af hinum æðis-
legustu og almennri bjartsýni á
áframhaldandi unaðstíð mun
almenningur ekki láta sitt eftir
liggja í gleðinni. Góði hirðirinn
fyllist af pönnukökusjónvörpum
og pallbílum, einkabíósalir og vöru-
bílar verða málið. Í umferðinni
göslast millistjórnendur áfram á
vörubílunum sínum, alltaf með
pallinn galtóman. Auðvitað þarf
enginn á vörubíl að halda, ekki
frekar en pallbíl, en það verður
bara svo hagstætt að fá sér vörubíl
að það verður rugl að sleppa því.
Það verður nefnilega aftur „offram-
boð á peningum“ eins og hér var
fyrir nokkrum árum þegar „endur-
fjármögnun“ var lausnarorðið.
EINGÖNGU lúðar og sveitafólk
klikkar á að fá sér fjórðu kynslóð
farsíma (nú verður hægt að velja
um mismunandi lykt af orminum í
Snake) og enn frábærari verslun-
armiðstöðvar rísa. Ber þar bók-
staflega hæst Esjuhöll ofan á
Esjunni, sem slær öllu öðru út í
mikilfengleika. Á hverju kvöldi
verður kveikt á Ólafs Ragnarsfossi
í miðri höllinni sem spýtist mislit-
ur upp í loftið íbúum góðærislands-
ins til upplyfingar. Ólafur Elíasson
hannar vitaskuld fossinn.
ÞETTA eru auðvitað bara getgátur
og ekkert víst að þetta rætist, nema
að hluta. Aðeins eitt er alveg
öruggt. Laun í umönnunargeiran-
um verða áfram þau lægstu með
áframhaldandi óánægju og skertri
þjónustu. Það skiptir nefnilega
engu máli hvort það sé samdráttur
eða þensla, góð- eða hallæri, aldrei
er „rétti tíminn“ til að gera það
sem blasir við öllu almennilegu
fólki: að jafna kjörin.
Næsta góðæri
Í dag er fimmtudagurinn
18. september, 262. dagur ársins.
7.00 13.22 19.41
6.43 13.07 19.28
Endurvinnsla
– í þínum
höndum
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Engin
útborgun!
Frábær símatilboð hjá Vodafone. Þú borgar ekkert út,
afborganir dreifast á 12 mánuði á kreditkort. Auk þess
færðu 2.000 kr. inneign í hverjum mánuði í heilt ár.
Lifðu núna
*Gildir um gagnaflutninga innanlands.
Þú færð 2.000 kr. inneign á mánuði
Sony Ericsson W890i
• Afborgun 4.000 kr. á mánuði í 1 ár
• 2.000 kr. inneign á mánuði í 1 ár
• 500 MB niðurhal á mánuði í 1 ár*
0 kr. út
Sony Ericsson W910i
• Afborgun 4.000 kr. á mánuði í 1 ár
• 2.000 kr. inneign á mánuði í 1 ár
• 500 MB niðurhal á mánuði í 1 ár*
0 kr. út
Nokia E51
• Afborgun 3.000 kr. á mánuði í 1 ár
• 500 MB niðurhal á mánuði í 1 ár*
0 kr. út