Fréttablaðið - 22.09.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
MÁNUDAGUR
22. september 2008 — 258. tölublað — 8. árgangur
TVÍHÖFÐI LÍTUR UM ÖXL
Uppreisnin gegn endalausu
mali í útvarpi mistókst
Tvíhöfði gefur út nýjan geisladisk
FÓLK 30
Leikur víking fyrir ASÍ
Júlíus Brjánsson leikur
víkingahöfðingja í
nýrri sjónvarpsauglýs-
ingu fyrir ASÍ.
FÓLK 30
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Sá innanstokksmunur sem ég
tengist mest þessa dagana er
borðstofuborð sem ég á í ástar-
haturs-sambandi við,“ segir Davíð
Örn Halldórsson myndlistarmaður
þar sem hann situr og handmálar
á það borðdúk í tyrkneskum stíl.„Ég hef verið að mála litríkar
mottur beint á gólf og húsgögn
meðfram því að mála myndir, og
fékk þetta borð til mí í ff i
sýningunni Trommusóló í Kling
og Bang-galleríi 4. október,“ segir
Davíð Örn, viss um að sakna
borðsins sárt þegar það fer aftur
til sinna gömlu eigenda að sýningu
lokinni.
„Mér er farið að þykja vænt um
borðið en það er dálítið pirrandi
ástand að grúfa sig ofan í þ ð
daglangt þ
„Heimili mitt og vinnustofa eru
eitt og skreytt Ikea-húsgögnum
um allt. Mér hefur þótt gaman að
flikka upp á afkáraleg húsgögn
og hafa nokkrar kommóður og
litlir skápar sem ég hef fengist
við ratað heim til annarra, semallir virðast sáttiÖ
Ekkert fullkomnara en guð
Í gamla hluta Reykjavíkur situr listamaður með pensla og liti við gamalt borðstofuborð. Í hjarta hans
hrærist söknuður og fæð á mublu sem í framtíð mun færa öllum gleði en kostar nú streð, krafta og tíma.
Davíð segir það verða að koma í ljós hvort litadýrð og munsturgerð standist tímans tönn og kannski verði hógvær dúkur kominn
yfir handmálaðan borðdúkinn á jólum 2012.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BLÓM setja fallegan svip á heimilið og geta einnig stuðlað að jafnvægi í
réttu samhengi. Það er í það minnsta eitt af þeim atriðum sem talað er um í
feng shui-fræðunum en námskeiðið Feng shui fyrir heimili er í boði hjá Mími
símenntun 7.-14. október. Nánari upplýsingar er að finna á www.mimir.is.
Næsta
námskeið
hefst
26. sept. n.k.
fasteignir 22. SEPTEMBER 2008
Húsið, sem er í Reynilundi í Garðabæ, er teiknað af Albínu Thordarson arkitekt og skipt-ist niður með eftirfarandi hætti: Flísalagt anddyri með fataskáp, parketlagt hol og forstofuher-bergi. Því næst endurnýjað baðherbe i
önd. Eldhús, sem er opið við borð-stofu, með upprunalegri innrétt-ingu og góðu skápaplássi.Í húsinu er parketlagt hjóna-herbergi með fataskápum. Þaðan er gengið út á sólpalli
skemmtilegan svip á húsið. Við má bæta að húsinu fylgir tvöfaldur bílskúr. Hiti er í stétt-um við húsið og í bílaplani. Garðurinn er sé l
Endaraðhús með fallegum garði Heimili fasteignasala hefur til sölu endaraðhús á einni hæð í Garðabæ.
Parketlögð stofan er björt og rúmgóð og þaðan er útgengt á verönd.
HÚSIN Í BORGINNI • Klapparstíg 5 • 101 Reykjavík • Sími 511 5005 • www.husin.is
Fr
u
m
Telma Róbertsdóttir Löggiltur fasteignasali
… það borgar sig!
ÞARFT ÞÚ AÐ SELJA?Það kostar þig EKKERT að skrá eignina þína hjá okkur.Löggiltir fasteignasalar með þér alla leið. Sími 511 5005
OPIÐ LAUGARDAG KL:11-16
BORÐLAMPAR
DAVÍÐ ÖRN HALLDÓRSSON
Handmálar dúka og
mottur á húsgögn
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
FASTEIGNIR
Vel staðsett raðhús
ásamt fallegum garði
Sérblað um fasteignir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Breyta bakaríi í
hárgreiðslustofu
Hanna Kristín Jónsdóttir og Guð-
laug Helga Guðlaugsdóttir vinna
hörðum höndum að því að breyta
bakaríi í hárgreiðslustofu.
FÓLK 30
Stórsigur í
Noregi
Skáksveit Rima-
skóla er Norður-
landameistari
grunnskóla 2008.
TÍMAMÓT 16
49,65%
33,47%
72,34%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
24
s
tu
nd
ir
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fréttablaðið er með 46% meiri
lestur en 24 stundir og 116%
meiri lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í maí–júlí 2008.
LÖGREGLUMÁL Afskipti voru höfð af
um tvö hundrað einstaklingum í
sérhæfðri aðgerð gegn handrukk-
urum, sem gerð var að frumkvæði
Ríkislögreglustjóra, árin 2005 og
2006. Tugir einstaklinga höfðu
verið handteknir þegar aðgerðinni
var hætt. Yfirlögregluþjónn hjá
Ríkislögreglustjóra telur ástæðu
til að hrinda frekari aðgerðum af
stað. Fórnarlömb handrukkara eru
oft á tíðum skelfingu lostin og þora
ekki að segja sögu sína undir nafni
eða leita eftir aðstoð lögreglu.
Ríkislögreglustjóri ákvað í maí
árið 2005 að hrinda af stað sam-
eiginlegum aðgerðum sérsveitar-
innar og nokkurra lögregluliða
gegn handrukkurum. Ákvörðunin
var tekin eftir mikla umræðu í
samfélaginu á þeim tíma um
ofbeldisverk þeirra og einnig
vegna þess að komið hafði fram
ótti meðal þolenda við að leggja
fram kærur til lögreglu.
Jón F. Bjartmarz, yfirlögreglu-
þjónn hjá Ríkislögreglustjóra,
segir aðgerðina, sem var stefnt
gegn þekktum brotamönnum, hafa
staðið yfir í rúmt ár og að árangur
hafi verið góður. Þá komu upp tugir
fíkniefnamála við aðgerðina og
haldlögð voru barefli og vopn í
mörgum tilfellum. „Það skal tekið
fram að höfð voru afskipti af sömu
einstaklingum í fleiri en eitt skipti.
Það er vitað að þessir menn láta
sér ekki segjast og halda áfram
fyrri iðju þrátt fyrir afskipti lög-
reglu.“
Jón segir að ekki hafi verið um
samhæfðar aðgerðir að ræða síð-
ustu tvö ár. „Ég tel hins vegar að
full ástæða sé til að gera þetta með
reglubundnum hætti.“
Fréttablaðið hefur rætt við ein-
staklinga sem þekkja samskipti við
handrukkara. Þeir segja það mis-
skilning að þeir beiti sér eingöngu
til að ná inn fíkniefnaskuldum.
Vandinn sé mun útbreiddari og við-
skiptaskuldir sem og aðrar skuldir
komi við sögu. Viðmælendur blaðs-
ins áttu það sameiginlegt að hafa
ekki leitað liðsinnis lögreglu vegna
efasemda um hvernig meðferð
mála þeirra yrði háttað. - shá
Tugir ofbeldismanna
stunda handrukkun
Aðgerð lögreglu sýndi að tugir manna stunda handrukkun á höfuðborgar-
svæðinu. Yfirlögregluþjónn telur ástæðu til að hrinda frekari aðgerðum af stað.
VÍÐA SKÚRIR Í dag verða yfirleitt
suðvestan 8-13 m/s. Nokkuð bjart
lengst af í dag austan til á landinu,
annars rigning eða skúrir. Hiti 8-13
stig.
VEÐUR 4
8
9
10
12
10
UMHVERFISMÁL „Þetta er mikilvæg
aðgerð sem miðar að því að vekja
athygli á einu versta náttúrusóða-
vandamáli síðari tíma,“ segir Ari
Arnórsson leiðsögumaður, sem á
föstudaginn stóð fyrir vörtu-
hreinsun meðfram Krýsuvíkur-
vegi.
Vörtur eru vörður sem ferða-
menn hlaða á ferðamannastöðum.
Þó að flestar þeirra séu í smærri
kantinum var sú stærsta sem Ari
og félagar felldu á föstudaginn
einn og hálfur metri á hæð.
„Vörður og vörðubrot eru
menningarverðmæti sem ekki má
hrófla við en vörtur eru ómenn-
ingarlýti sem hreinsa þarf
jafnóðum,“ segir Ari. - ovd
Náttúrusóðavandamál:
Felldu ferða-
mannavörtur
VARTAN FELLD Ari og félagar felldu um
1.200 ferðamannavörtur við Krýsuvíkur-
veg á föstudaginn. MYND/STEFÁN HELGI VALSSON
VIÐSKIPTI Stjórnir fjármálafyrir-
tækjanna Glitnis og Byrs hafa
hafið viðræður um sameiningu
bankanna, að frumkvæði Glitnis,
og verður það formlega tilkynnt til
Kauphallar Íslands í dag. Gert er
ráð fyrir að viðræðurnar taki stutt-
an tíma, enda er umtalsverð hag-
ræðing talin nást með samrunan-
um, jafnvel allt að fjórir milljarðar
króna á ári. Er þá einkum horft til
lánskjara og rekstrarkostnaðar.
Markaðurinn greindi frá óform-
legum viðræðum um samrunann í
síðustu viku, en síðustu hindrun-
inni var rutt úr vegi á föstudag
þegar Fjármálaeftirlitið samþykkti
að Byr yrði hlutafélag.
Samkvæmt upplýsingum Mark-
aðarins hefur nánast verið gengið
frá fjármögnun Glitnis út 2009.
Nýr sameiginlegur banki verður
með eigið fé töluvert yfir tilskild-
um lágmörkum um eiginfjárhlut-
fall fjármálafyrirtækja; tæplega
þrettán prósent. Menn sem vel
þekkja til á bankamarkaði gerðu
því skóna í gærkvöld að hluthafar
Byrs fengju í sinn hlut tæpan fjórð-
ungshlut í sameinuðum banka.
Jafnvel er búist við að tilkynnt
verði í vikunni um samrunavið-
ræður Landsbankans og Straums,
en enn er beðið samþykkis eftir-
litsstofnana vegna samruna Kaup-
þings og SPRON. - bih
Fundað stíft um samruna íslenskra fjármálafyrirtækja um helgina:
Glitnir og Byr sameinast
BJÖRGUN Spænskur karlmaður,
sem bjargað var af hálendi
Íslands í fyrradag, er enn á
sjúkrahúsinu á Húsavík. Þar fær
hann meðal annars meðferð vegna
ofkælingar.
Gangnamenn fundu manninn
við Krossá í Bárðardal og hafði
hann þá verið villtur og matarlaus
í fjóra daga utan þess sem hann át
nokkur ber sem hann fann.
Búist er við að maðurinn verði
útskrifaður af sjúkrahúsinu á
morgun eða miðvikudag. - ovd
Villtur í fjóra daga:
Lifði á berjum
HK-ingar féllu
Fylkir bjargaði sér
frá falli úr Lands-
bankadeild í gær á
kostnað HK, sem er
fallið.
ÍÞRÓTTIR 24
VEÐRIÐ Í DAG
SPENNA FH-ingar héldu spennu í Landsbankadeild karla í knattspyrnu með því að leggja topplið Keflavíkur 3-2 í gær. Keflavík
dugði jafntefli til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Stuðningsmenn FH trylltust af fögnuði þegar Atli Viðar Björnsson
skoraði sigurmarkið á síðustu mínútu leiksins. - Sjá síður 24 og 26. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON