Fréttablaðið - 22.09.2008, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Sá innanstokksmunur sem ég
tengist mest þessa dagana er
borðstofuborð sem ég á í ástar-
haturs-sambandi við,“ segir Davíð
Örn Halldórsson myndlistarmaður
þar sem hann situr og handmálar
á það borðdúk í tyrkneskum stíl.
„Ég hef verið að mála litríkar
mottur beint á gólf og húsgögn
meðfram því að mála myndir, og
fékk þetta borð til mín í fóstur
fyrir nokkrum mánuðum síðan,
til að leiðbeina eigendum þess við
að mála á það munstur. En vopnin
hafa snúist í höndum mér og nú
er ég í kapphlaupi við tímann að
ljúka við borðdúkinn því borðinu
ætlum við að stilla fram á
sýningunni Trommusóló í Kling
og Bang-galleríi 4. október,“ segir
Davíð Örn, viss um að sakna
borðsins sárt þegar það fer aftur
til sinna gömlu eigenda að sýningu
lokinni.
„Mér er farið að þykja vænt um
borðið en það er dálítið pirrandi
ástand að grúfa sig ofan í það
daglangt þegar frekar ætti að
vera á því gómsætur matur. Ég er
þó með loforð upp á vasann um að
mega koma hvenær sem er og
snæða við borðið. Það verða
launin mín,“ segir Davíð Örn sem
heillast af munstrum sem rata
inn og út úr málverkum hans og
húsmunum.
„Heimili mitt og vinnustofa eru
eitt og skreytt Ikea-húsgögnum
um allt. Mér hefur þótt gaman að
flikka upp á afkáraleg húsgögn
og hafa nokkrar kommóður og
litlir skápar sem ég hef fengist
við ratað heim til annarra, sem
allir virðast sáttir,“ segir Davíð
Örn sem ljúka mun verkinu með
glæru lakki svo slitþolið verði
eins og á fínasta Formica-borði.
„Þetta verður gróft í speglun
og munstri, rétt eins og hefð er
fyrir á Tyrklandi þar sem að
minnsta kosti einn galli verður að
sjást í teppum því ekkert er full-
komið nema guð.“
thordis@frettabladid.is
Ekkert fullkomnara en guð
Í gamla hluta Reykjavíkur situr listamaður með pensla og liti við gamalt borðstofuborð. Í hjarta hans
hrærist söknuður og fæð á mublu sem í framtíð mun færa öllum gleði en kostar nú streð, krafta og tíma.
Davíð segir það verða að koma í ljós hvort litadýrð og munsturgerð standist tímans tönn og kannski verði hógvær dúkur kominn
yfir handmálaðan borðdúkinn á jólum 2012. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BLÓM setja fallegan svip á heimilið og geta einnig stuðlað að jafnvægi í
réttu samhengi. Það er í það minnsta eitt af þeim atriðum sem talað er um í
feng shui-fræðunum en námskeiðið Feng shui fyrir heimili er í boði hjá Mími
símenntun 7.-14. október. Nánari upplýsingar er að finna á www.mimir.is.
UPPLÝSINGAR O
s
ng Mjódd
Næsta
námskeið
hefst
26. sept. n.k.
• 5 tímar í skvass
• 5 tímar í Golf
• máltíð á BK Kjúkling
• 5 tímar í ljós
• frítt í allar ÍTR sundlaugarnar
• frír mánuður fyrir vin
• tækjakennsla
• bolur
• brúsi
Sport
Klúbburinn
Alla þriðjudaga