Fréttablaðið - 22.09.2008, Page 38
22 22. september 2008 MÁNUDAGUR
Fjöldi nýrra erlendra sjón-
varpsþátta verður sýndur
á Stöð 2, Skjá einum og í
Ríkissjónvarpinu í vetur.
Fréttablaðið tók saman þær
einkunnir sem hluti þeirra
hefur fengið hjá bandarísk-
um gagnrýnendum.
Einkunnirnar eru fengnar af
heimasíðunni Metacritic.com sem
tekur saman meðaltal einkunna
sem gagnrýnendur gefa sjónvarps-
þáttum sem eru sýndir vestanhafs.
Hæst eru gefin hundrað stig. Sam-
kvæmt síðunni eru bestu þættirnir
Reaper sem Ríkissjónvarpið sýnir
eftir áramót. Fjalla þeir um ungan
mann sem kemst að því að foreldr-
ar hans seldu kölska sál hans áður
en hann fæddist. Þar af leiðandi er
hann neyddur til að koma fólki
fyrir kattarnef það sem eftir er
ævinnar.
Versti þátturinn verður einnig
sýndur á RÚV eftir áramót. Nefn-
ist hann Carpoolers og fjallar um
hóp náunga úr bandarísku úthverfi
sem ákveða að keyra saman í bíl í
vinnuna.
Ljóst er að sjónvarpsáhorfendur
munu hafa úr nógu að moða í vetur
hvað erlenda þætti varðar, því
fyrir utan þá sem hér er minnst á
eiga fleiri nýir þættir eftir að bæt-
ast við síðar meir. Má þar nefna
Little Britain USA sem margir
bíða eftir með mikilli eftirvænt-
ingu. Einnig halda vinsælir þættir
áfram frá síðasta vetri, þar á meðal
House, Heroes, Lost, Ugly Betty,
American Idol og 24.
Dennis Quaid Ellen Page
Sarah Jessica Parker Thomas Haden Church
Frábær gamanmynd frá framleiðendum Sideways
ÁLFABAKKA SELFOSS
AKUREYRI
KEFLAVÍK
KRINGLUNNI
DIGITAL-3D
CHARLIE BARTLETT kl. 8:10 - 10:30 12
JOURNEY 3D kl. 5:50 - 8 - 10:10 L
DEATH RACE kl. 8:20 - 10:30 16
TROPIC THUNDER kl. 8:10 - 10:30 16
SVEITABRÚÐKAUP kl. 5:50 - 8 L
DARK KNIGHT kl. 5:30 - 10:10 12
DARK KNIGHT kl. 5:50 - 8:40 VIP
STAR WARS kl. 5:50 L
WALL-E m/ísl. tali kl. 5:50 L
CHARLIE BARTLETT kl. 5:50 - 8 - 10:10 12
JOURNEY 3D kl. 6 - 8:10 - 10:20 L
SMART PEOPLE kl. 8 - 10:10 12
GET SMART kl. 5:50 L
MIRRORS kl. 8 16
SVEITABRÚÐKAUP kl. 8 L
TROPIC THUNDER kl. 8 16
DEATH RACE kl. 10:20 16
SVEITA BRÚÐKAUP kl. 8 L
THE STRANGERS kl. 10:20 16
MAMMA MÍA Sýnd næst 27. og 28. sept. L
STEP BROTHERS kl. 8 - 10:10 12
MAMMA MÍA kl. 8 L
DEATH RACE kl. 10:10 16
DIGITAL-3D
- bara lúxus
Sími: 553 2075
PINEAPPLE EXPRESS kl. 5.45, 8 og 10.15 16
JOURNEY 3D - DIGITAL 3D kl. 4, 6 og 8 L
GRÍSIRNIR ÞRÍR - ÍSL. TAL kl. 4 L
MAMMA MIA kl. 4, 6.30, 9 og 10.15 L
UPPLIFÐU FERÐINA TIL
MIÐJU JARÐAR Í
M Y N D O G H L J Ó Ð
V.J.V – Topp5.is/FBL
S.V – MBL.
T.S.K. – 24 stundir
STÆRSTA MYND ÁRSINS
YFIR 100.000 GESTIR
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
16
16
16
12
L
L
L
PINEAPPLE EXPRESS kl. 8 - 10
JOURNEY TO THE CENTER EKKI Í 3D kl. 6 -8
STEP BROTHERS kl. 10
MAMMA MIA kl. 6
16
12
L
L
PINAPPLE EXPRESS D kl. 5.30 - 8 - 10.30
PINAPPLE EXPRESS LÚXUS - D kl. 5.30 - 8 - 10.30
MIRRORS kl. 8 - 10.30
STEP BROTHERS kl. 5.45 - 8 - 10.15
MAKE IT HAPPEN kl. 4 - 6
MAMMA MIA kl. 5.30 - 8 - 10.30
GRÍSIRNIR 3 kl. 4
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
16
12
16
L
L
PINAPPLE EXPRESS kl. 5.30 - 8 - 10.30
BRIDESHEAD REVISITED kl. 6 - 9
MIRRORS kl. 10.30
SVEITABRÚÐKAUP kl. 5.45 - 8 - 10.15
MAMMA MIA kl. 5.30 - 8
5%
5%
SÍMI 551 9000
12
16
L
12
L
STEP BROTHERS kl. 5.45- 8 - 10.30
TROPIC THUNDER kl. 5.30- 8 - 10.30
MAKE IT HAPPEN kl. 8 - 10.20
SKRAPP ÚT kl. 6 - 8 - 10
GRÍSIRNIR 3 kl. 6
SÍMI 530 1919
FRÁ BEN STILLER KEMUR EIN KLIKKAÐASTA
GRÍNMYND ÁRSINS!
Frábæra teiknimynd
fyrir alla fjölskylduna
með íslensku tali.
550kr.
fyrir börn
650kr.
fyrir fullorðna
ILLIR ANDAR HERJA Á
FJÖLSKYLDU HANS! KIEFER
SUTHERLAND Í MAGNAÐRI
SPENNUMYND!
ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA!
YFIR 100.000
MANNS
Troddu þessu í pípuna
og reyktu það !
Mögnuð mynd byggð á samnefndri
bók eftir Evelyn Waugh
Öllum freistingum fylgja afleiðingar.
Of gott er þriðja plata Sesars A.
Áður komu Stormurinn á undan
logninu (2001) og Gerðuþaðsjálf-
ur (2002). Sesar A er listamanns-
nafn Eyjólfs Eyvindarsonar en
hann er einn af brautryðjendum
íslenska rappsins og hefur sér-
staka og flotta rödd. Of gott var
nokkur ár í vinnslu, en Sesar
hefur dvalið töluvert í Evrópu
undanfarið, mest í Barcelona þar
sem hann nam kvikmyndaleik-
stjórn og var meðlimur í fjölþjóð-
legu rappsveitinni IFS. Platan
ber þess merki, en á henni er
rappað á a.m.k. sjö tungumálum.
Í laginu Worldwide sem er eitt af
flottari lögum plötunnar rappa
átta meðlimir úr IFS.
Það eru nokkur mjög flott lög á
Of gott, meðal þeirra fyrrnefnt
Worldwide sem Sesar semur
ásamt Gísla Galdri, Á sama stað
sem Diva de la Rosa syngur í,
lokalagið Takk fyrir og Hosur
grænar sem Sesar rappar ásamt
Kúbverjanum Mel Seme og Jap-
ananum Shinya. Sérstaklega
flottur taktur og viðlag í því. Tón-
listin er yfir það heila vel heppn-
uð. Fönkí taktar og sándið flott.
Textarnir eru hins vegar svolítið
misjafnir. Það vill loða við svona
alþjóðleg rappverkefni að menn
eru í svaka góðum fjölþjóðlegum
fíling en útkoman veður oft efn-
isrýr. Það eru samt ágætir textar
hér líka, t.d. Efnisleg gæði. Ástin
virðist vera Sesari efst í huga og
þaðan kemur kannski titillinn Of
gott. Gott fyrir hann auðvitað, en
óeftirminnilegt fyrir hlustendur
plötunnar.
Á heildina litið er þetta þokka-
legasta plata hjá Sesari. Unnend-
ur íslenskrar rapptónlistar ættu
að leita hana uppi.
Trausti Júlíusson
Brautryðjandinn snýr aftur
TÓNLIST
Of gott
Sesar A
★★★
Þó að textarnir á Of gott séu ekki
eftirminnilegir þá er tónlistin flott og
nokkur frábær lög, t.d. Worldwide og
Hosur grænar.
Reaper bestu þættirnir
REAPER Þættirnir Reaper, sem verða sýndir í Ríkissjónvarpinu eftir áramót, þykja
mjög góðir.
MAD MEN Sjónvarpsþátturinn Mad Men
fær bestu einkunnina af þeim þáttum
sem eru væntanlegir á Stöð 2.
90210 Sjónvarpsþátturinn
90210 fær slaka einkunn hjá
Metacritic.com, eða 46 stig af
100 mögulegum.
RÍKISSJÓNVARPIÐ
Reaper - 81
Eli Stone - 62
Greek - 62
Carpoolers - 37
SKJÁR EINN
Kitchen Nightmares - 66
In Plain Sight - 56
Swingtown - 49
90210 - 46
STÖÐ 2
Mad Men - 77
Chuck - 74
Terminator: Sarah Connor Chronic-
les - 74
Burn Notice - 69
Fringe - 67
Breaking Pad 74
The Big Bang Theory 57
Stúdentaleikhúsið hefur hafið
starfsemi haustannar. Leikstjóri
að þessu sinni er Víkingur
Kristjánsson. „Við ætlum að semja
leikritið sjálf, við erum sem sagt
ekki með handrit til að vinna eftir,
þótt við séum með mjög grófa
grind. Við stefnum á að frum-
sýna í nóvember,“ segir Sig-
ríður Eir Zophaníasardóttir
einn stjórnarmeðlima Stúd-
entaleikhússins.
Stúdentaleikhúsið
á 80 ára afmæli í ár
og stefnt er á fögn-
uð í tilefni af því.
Sýnt verður í
Norræna húsinu,
sem hélt einmitt
upp á fertugs-
afmæli sitt í lok
sumars. Eftir áramót verður svo
litið til listamanna í yngri kantin-
um.
„Við ætlum að reyna að fá ungt
leikritaskáld til að semja fyrir
okkur verk. Okkur finnst að Stúd-
entaleikhúsið eigi að gefa
ungum og upprennandi
listamönnum tækifæri til
að láta ljós sitt skína, bæði
leikritaskáldum og leik-
stjórum, en við ætlum ein-
mitt að yngja upp í leik-
stjóravali eftir áramót. Við
erum í viðræðum við einn
nýútskrifaðan.“
„Það er líka gaman að
segja frá því að við erum
með lærðan búninga- og sviðs-
myndahönnuð með okkur fyrir
áramót. Hún heitir Eva Signý,
þannig að allir sem hafa áhuga á
svoleiðis einhverju geta aldeilis
bætt í reynslubankann með því að
koma og vinna með henni,“ segir
Sigríður. -kbs
Semja sjálf með Víkingi
UNG OG FERSK Sigríður segir Stúdenta-
leikhúsið vettvang ungra listamanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VIÐ STJÓRNVÖLINN. Víkingur
leiðir sköpunina í haust.