Fréttablaðið - 22.09.2008, Page 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Í dag er mánudagurinn
22. september, 266. dagur ársins.
7.12 13.20 19.27
6.56 13.05 19.12
Eitt höfuðeinkenni góðrar stjórnsýslu er að menn staldri
stutt við á valdastólum. Enginn
ráðherra á að gegna sama ráð-
herraembætti lengur en fjögur ár
né vera ráðherra lengur en átta ár
samtals - átta ár eru hryllilega
langur tími. Svipað á að gilda um
stjórnendastöður hjá Ríkinu. Fjög-
urra ára ráðningartími og fram-
lengdur um tvö til fjögur ár ef
frammistaðan er almennt talin
hafa verið frábær - en auðvitað
auglýsa embættið eftir fjögur ár.
ÞETTA fyrirkomulag mundi draga
úr spillingu. Allir stjórnendur
vissu að þeir væru ráðnir til tak-
markaðs tíma, og mjög líklegt að
eftirmaðurinn færi með logandi
ljósi ofan í saumana á öllum gjörn-
ingum fyrirrennara síns til að
finna þar eitruð peð og fara með í
afeitrun. Sumir forstjórar sem
ættu „ónotuð stjórnarár” eftir á
C.V.-inu sínu gætu leitað í önnur
fyrirtæki og stofnanir. En víða
væru starfandi litlir hópar fyrr-
verandi forstjóra, þekkingar- og
reynslubankar, sem stjórnendur
fyrirtækisins gætu leitað í eftir
þörfum.
ÞAÐ þarf engu að breyta nema
smotteríi. Í fyrsta lagi að auglýsa
stöður án tillits til hvort ráðherra
er samflokksmaður eða andstæð-
ingur, frændi eða sonur, það er
árangur í starfi sem telur. Það
vantar alls staðar gott fólk og hitt
fólkið á ekki í vandræðum með að
finna sér störf við hæfi í einka-
eða opinbera geiranum. Sýslu-
mannsembætti í Keflavík er eftir-
sótt, margir um hituna, og sá sem
hefur gegnt því með sóma hefur
hlotið mikinn starfsheiður.
ÞAÐ auma við starfslok sýslu-
manns í Keflavík er að sá sem réði
hann til starfa er enn í embætti -
það er bara talað í véfréttar stíl
um hvort viðkomandi muni draga
sig í hlé að aftöku lokinni og
eftirláta eftirmönnum sínum að
framfylgja lögunum í þeim anda
sem þeim var komið á; sem sé til
að skipta oft um stjórnendur, ekki
til að geta komið óvinum sínum
fyrir kattarnef heldur vegna þess
að við þurfum marga stjórnendur
en ekki fáa. Það er forsenda þess
að lýðræðið þróist úr höndunum á
fámennum valdaklíkum. Við þurf-
um ekki nautsterka leiðtoga. Við
þurfum valddreifingu og marga
leiðtoga. Það er lýðræði.
Að granda
sýslumanni
- mannfórn í
Keflavík