Fréttablaðið - 12.10.2008, Síða 2
2 12. október 2008 SUNNUDAGUR
NÁTTÚRA „Þetta er orðið svipað
núna og það varð í síðasta hlaupi
og það á eftir að hækka enn,“
segir Páll Oddsteinsson bóndi í
Hvammi sem stendur rétt við
Skaftá.
„Þetta verður snöggt hlaup en
það verður sjálfsagt æðimikið í
því. Það var mikið í ánni fyrir út
af rigningunum og þá verður nátt-
úrulega hærra í henni.“
Engar ráðstafanir
Páll segist ekki hafa þurft að grípa
til sérstakra ráðstafana vegna
hlaupsins og engin hætta sé á
ferðum hjá honum. Aftur á móti
gæti farið varnargarður hjá Skaft-
árdal ef það vex mikið í ánni. Ekki
telur hann heldur að sauðfé sitt sé
í hættu.
„Okkar fé liggur ekkert nálægt
því þannig séð. Það getur farið á
öðrum bæjum frekar, sérstaklega
ef leirinn stoppar það af.“
Rennsli Skaftár hafði sextán-
faldast frá því að hlaupið hófst í
ánni í gærmorgun og mældist
1.100 rúmmetrar á sekúndu við
Sveinstind síðdegis í gær.
Eitunaráhrif frá ánni
Lögreglan á Hvolsvelli hvatti fólk
í gær til að halda sig fjarri upp-
tökum árinnar vegna eitrunar-
áhrifa frá henni. „Það er vaninn
við þessa á að eitraðar gastegund-
ir berast úr henni við upptökin.
Fólki er ráðlagt að vera ekki á
ferðinni nálægt þeim,“ sagði Þor-
steinn Kristinsson hjá lögregl-
unni.
Flætt hafði yfir veginn inn með
Skaftá á einum stað í gærkvöldi
og að sögn lögreglunnar voru tald-
ar líkur á að flæða myndi víðar
yfir hann. Sagði hún nauðsynlegt
að fólk færi varlega á þessum
slóðum.
Samkvæmt upplýsingum frá
almannavörnum má búast við enn
frekari aukningu og að hlaupið
nái hámarki í dag.
- fb
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Lífið á
landnámsöld
Lóð múslima enn frestað
Á fundi skipulagsstjóra Reykjavíkur á
föstudag voru kynntar hugmyndir að
staðarvali fyrir safnaðarheimili mús-
lima. Afgreiðslu málsins var frestað
á fundinum. Múslimar hafa árum
saman sóst eftir lóð í höfuðborginni
fyrir starfsemi sína.
SKIPULAGSMÁL
LÖGREGLUMÁL Maður um tvítugt
meiddist á hendi og hlaut skurð á
enni þegar heimatilbúinn flugeldur
sem hann ætlaði að gera tilraun
með sprakk í höndum hans í
Hafnarfirði um ellefuleytið í
fyrrakvöld. Að sögn lögreglunnar
var hann mjög heppinn að hafa
ekki skaddast á auga. Félagi hans
sem var með honum fékk vægt
áfall og kvartaði yfir suði í eyrum.
Í Hafnarfirði kom einnig eldur
upp í garðhúsi við heimahús.
Slökkviliðið var kallað á staðinn og
kom þá í ljós að kviknað hafði í
gaskúti sem var inni í garðhúsinu.
- fb
Slys í Hafnarfirði:
Meiddist þegar
flugeldur sprakk
EFNAHAGSMÁL „Niðurstaðan af
fundinum með Darling var sú að
við ákváðum að leysa þetta mál
okkar á milli þannig að allir megi
vel við una. Þetta var kurteisis-
legur og vinsamlegur fundur,“
segir Árni Mathiesen fjármála-
ráðherra, sem staddur er á árs-
fundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
og Alþjóðabankans í Washington.
Árni fundaði með Alistair
Darl ing, fjármálaráðherra Breta
í gær.
Hann ræddi einnig við fulltrúa
stjórnvalda fleiri landa og full-
trúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
og Alþjóðabankans.
Árni segir
viðræður við
fulltrúa
Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins
hafa verið
óformlegar.
Engar formleg-
ar viðræður
hafi átt sér stað
varðandi hugs-
anlega aðkomu
sjóðsins að mál-
efnum Íslands. „Ég hef verið að
vinna með mönnum í þessum
málum. Bankinn er með sendi-
nefnd sem fer yfir hlutina á
Íslandi.“ Niðurstaðna nefndar-
innar er að vænta í dag.
Því eru ekki forsendur fyrir
því að taka neinar ákvarðanir í
þeim málum. Það er gerjun í
gangi og við munum eiga fleiri
fundi með þessum fulltrúum um
helgina,“ segir Árni.
Fjármálaráðherra ræddi meðal
annars við fulltrúa stjórnvalda
Japans og Rússlands í gær, en
sagði að engar ákvarðanir hefðu
verið teknar um mögulega aðstoð
þeirra ríkja. Einnig stýrði Árni
fundi í kjördæmisnefnd Norður-
lands og Eystrasaltslanda í
Alþjóðabankanum. - kg
Fjármálaráðherra fundaði með Alistair Darling og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum:
Ákváðum að leysa málið
Skaftárhlaupið nær
líklega hámarki í dag
Talið er að hlaupið í Skaftá sem hófst í gærmorgun nái hámarki í dag. Mikið
hlaup er úr eystri katlinum og þegar hefur flætt yfir veg í Skaftárdal.
FLÆTT YFIR VEG Flætt hefur
yfir veg í Skaftárdal vegna
hlaupsins í ánni. Óttast er að
flæða muni víðar yfir veginn..
Þorgeir, er sama tempó á
ykkur nú og fyrir fjórum ára-
tugum?
Tempóið er ennþá til staðar. En það
er óneitanlega tempraðra.
Hljómsveitin Tempó með Þorgeiri Ást-
valdssyni, útvarpsmanni og skemmti-
krafti, kom aftur saman á Players í gær.
Um fjörutíu ár eru síðan Tempó sló í
gegn á Íslandi.
KAMBÓDÍA, AP Heldur óvenjulegar
málalyktir urðu í skilnaðardeilu
hjóna í Kambódíu. Eftir átján ára
hjónaband brá eiginmaðurinn,
sem heitir Moeun Sarim og er 42
ára, á það ráð að saga timburhús
þeirra hjóna í tvennt.
„Þetta er mjög undarlegt, en
svona vildi maðurinn minn hafa
það,“ segir eiginkonan fráskilda,
Vat Navy, sem er 35 ára. „Hann
kom með ættingja sína og þeir
notuðu sagir til að saga húsið í
tvennt.“
Hún heldur eftir sínum
helmingi hússins, sem enn
stendur uppi, en maðurinn fór á
brott með hinn helminginn og allt
sem í honum var. - gb
Hjónaskilnaður í Kambódíu:
Hús hjónanna
sagað í tvennt
Bílvelta á Akureyri
Bílvelta varð við Bugðusíðu á Akureyri
laust fyrir klukkan fjögur í gær. Bílnum
var ekið á ljósastaur með þessum afleið-
ingum. Ekki urðu mikil meiðsl á fólkinu
en ökumaðurinn er grunaður um ölvun.
Hausar á kerru
Haft var samband við lögregluna í Kefla-
vík um hálfsexleytið gær vegna þriggja
hreindýrshausa sem lágu í kerru fyrir
framan fyrirtæki í bænum. Lögreglan
hafði samband við manninn sem átti
hausana og fékk hann til að fjarlægja þá.
Dópsali í bíl
Tilkynnt var um hugsanlegan fíkniefna-
sala sem sat í bifreið fyrir utan fyrirtæki
í Hafnargötu í Keflavík um sexleytið í
gær. Að sögn lögreglunnar var um að
ræða þekktan aðila sem hefur áður verið
tekinn fyrir kannabisrækt. Engin fíkniefni
fundust í bílnum.undir áhrifum ávana-
og fíkniefna.
LÖGREGLUFRÉTTIR
AFGANISTAN, AP Varnarmálaráð-
herrar Atlantshafsbandalags-
ríkjanna hafa heimilað hersveit-
um bandalagsins í Afganistan að
ráðast gegn fíkniefnabændum
og smyglurum, sem margir
hverjir eru sakaðir um að nota
hagnað sinn til að styrkja
talibana og aðrar andspyrnu-
hreyfingar.
Herlið NATO í Afganistan
hefur hingað til ekki viljað taka
þátt í baráttunni gegn fíkniefna-
hagkerfinu í Afganistan, heldur
viljað láta afgönsk stjórnvöld og
þarlenda lögreglu um þetta
verk.
- gb
NATO í Afganistan:
Ræðst gegn
fíkniefnarækt
STJÓRNMÁL Kjartan Gunnarsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, vakti mikla
athygli á flokksráðsfundi í gær
þegar hann í ræðu frábað sér að
vera kallaður óreiðumaður. Töldu
fundarmenn Kjartan vísa þar til
orða Davíðs Oddssonar seðla-
bankastjóra í Kastljósþætti á
þriðjudag.
Þegar Kjartan hélt ræðu sína
hafði fundinum verið lokað fyrir
öðrum en flokksráðsmönnum.
Samkvæmt heimildarmönnum
Fréttablaðsins á fundinum sátu
menn hljóðir undir ræðu Kjart-
ans.
Fréttablaðið náði ekki tali af
Kjartani í gær en í athugasemd til
Stöðvar 2 segist hann ekki hafa
verið að gagnrýna Davíð Oddsson
og lýsti yfir afdráttarlausum og
fullum stuðningi við Davíð sem
seðlabankastjóra. Engu að síður
ber heimildum Fréttablaðsins
saman um að fundarmenn hafa
talið augljóst að með orðum sínum
hafi Kjartan verið að gagnrýna
framgöngu Davíðs Oddssonar.
Kjartan, sem um langt skeið
hefur setið í stjórn Landsbanka
Íslands og á þar verulegan hlut,
sagðist hafa tapað stórum hluta
eigna sinna í umróti síðustu
daga.
Kjartan lýsti yfir trausti á Geir
H. Haarde, eftirmann Davíðs á
formannsstóli í Sjálfstæðis-
flokknum. Þjóðin þyrfti yfirveg-
aðan mann en ekki leiðtoga sem
uppnefndi aðra menn og gerði
sinn hlut sem mestan.
Kjartan og Davíð hafa um ára-
tuga skeið verið vopnabræður í
Sjálfstæðisflokknum og áttu afar
náið samstarf þegar Kjartan var
framkvæmdastjóri og Davíð for-
maður flokksins. Eftir að Kjartan
lauk máli sínu féllust þeir Geir
Haarde í faðma undir dynjandi
lófataki í þéttsetnum fundarsal í
Valhöll.
- gar
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins frábiður sér illmælgi:
Vill ekki vera kallaður óreiðumaður
KJARTAN GUNNARSON OG DAVÍÐ ODDS-
SON Framkvæmdastjóri og fyrrverandi
formaður Sjálfstæðisflokksins koma til
landsfundar árið 2005. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÁRNI M.
MATHIESEN
STJÓRNMÁL „Ef
einhvern tíma
var ástæða til
að fylkja liði,
þétta raðirnar,
þá er það
einmitt núna,“
sagði Geir H.
Haarde,
forsætisráð-
herra og
formaður
Sjálfstæðisflokksins á flokks-
ráðsfundi í gær.
Geir sagði Íslendinga í sárum
eftir hrun stóru bankanna
þriggja í dýpkandi kreppu. Hann
þakkaði stuðning flokksmanna en
kvaðst ekki síður þykja afar
vænt um stuðning annars staðar
í þjóðfélaginu. „Það er ótrúlegur
styrkur í þessu öllu saman að
finna það að þótt fólk sé að verða
fyrir tjóni þá metur það það sem
er verið að gera á vegum okkar í
forystu Sjálfstæðisflokkksins og
í ríkisstjórninni.“ - gar
Forsætisráðherra:
Þakklátur fyrir
stuðning fólks
GEIR H. HAARDE
SPURNING DAGSINS