Fréttablaðið - 14.10.2008, Blaðsíða 36
14. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR24
▼
EKKI MISSA AF SJÓNVARPIÐ SKJÁREINN
OMEGA
Dagskrá allan sólarhringinn.
SJÓNVARP NORÐURLANDS
STÖÐ 2
Jibbíkóla! Á sunnudagskvöld hóf göngu sína á Stöð 2, hæfilega
seint, þáttaröðin Fringe. Hún á sér því miður ekki íslenskt nafn.
Auglýsingar fyrir þættina höfðu æst upp í unnendum vísinda-
skáldskapar temmilega eftirvæntingu; hún virtist fjalla um einhverj-
ar vafasamar líffræðilegar tilraunir og vera svolítið ógeðsleg. Fyrsti
þátturinn brást svo ekki væntingum, hæfilega dularfullur og blóði
drifinn til að halda manni við efnið. Fyrsta atriði þáttarins sýndi
ólánsama flugvélafarþega sem urðu fyrir því að bráðna alveg eins
og nasistarnir í myndinni um Indiana Jones og týndu örkina. En
í þessu tilfelli var ekkert yfirskilvitlegt við bráðnunina; þau voru
fórnarlömb brjálaðra vísindamanna með eitthvað vafasamt á
prjónunum. Föngulegur kvenfulltrúi frá FBI er fenginn til að
rannsaka málið og hún er ekki lengi að sanka að sér sérkenni-
legum en elskulegum persónum sem hjálpa henni áleiðis. Enn
sem komið er líta þessir þættir út fyrir að vera einmitt það sem
raunamæddir aðdáendur torræðra sjónvarpsþátta þurftu á að
halda til þess að hressa upp á grámóskulegan hversdaginn.
Þættirnir uppfylla sumsé allar væntingar sem til þeirra var hægt
að gera og því lítið út á þá að setja á þessu stigi málsins. Aftur á
móti er sorglegt að hugsa til þess að svo gott sem óhjákvæmilegt
er að þáttanna bíði önnur hvor örlögin: annaðhvort munu þeir ekki
njóta nægilegra vinsælda til að framleidd verði meira en ein upp-
lýsingarýr þáttaröð, eða að þeir verða afar vinsælir og framleiddar
verða alltof margar þáttaraðir með tilheyrandi útúrdúrum, vífillengj-
um og rugli. Ef litið er til þess að gulldrengurinn J.J. Abrams er einn
af framleiðendum þáttarins verður að teljast líklegt að síðari kost-
urinn verði ofan á. Sem er synd, því það væri óneitanlega gaman
að komast til botns í dularfullri þáttaröð, bara svona einu sinni.
VIÐ TÆKIÐ VIGDÍS ÞORMÓÐSDÓTTIR FAGNAR VÍSINDASKÁLDSKAP
Dularfullt, óskiljanlegt, ógnvekjandi, ljómandi
16.05 Sportið (e)
16.35 Leiðarljós (Guiding Light)
17.15 Táknmálsfréttir
17.25 Púkka
17.50 Latibær (e)
18.15 Sunnudagskvöld með Evu
Maríu (e)
19.00 Fréttir
19.30 Veður
19.35 Kastljós
20.10 Everwood (17:22) Bandarísk þátta-
röð um heilaskurðlækni og ekkjumann sem
býr ásamt tveimur börnum sínum í smá-
bænum Everwood í Colorado.
20.55 Hlýja Ísland - Hitaveita í heila
öld Heimildamynd um sögu hitaveitu á Ís-
landi.
21.25 Viðtalið - Amr Moussa Bogi
Ágústsson ræðir við Amr Moussa, fram-
kvæmdastjóra Arababandalagsins.
22.00 Tíufréttir
22.25 Rannsókn málsins - Málalok
(Trial & Retribution XI: Closure) (2:2) Bresk
spennumynd frá 2007 í tveimur hlutum.
Skólastúlku er nauðgað og hún síðan myrt
og rannsókn málsins reynist lögreglunni
erfið. Aðalhlutverk: David Hayman, Victoria
Smurfit og Dorian Lough.
23.35 Njósnadeildin (Spooks) (e)
00.30 Kastljós (e)
01.00 Dagskrárlok
17.20 Premier League World Nýr þátt-
ur þar sem enska úrvalsdeildin er skoðuð frá
ýmsum óvæntum hliðum.
17.50 Coca Cola mörkin Allir leikirnir,
öll mörkin og allt það umdeildasta skoðað í
þessu magnaða markaþætti.
18.20 Enska úrvalsdeildin Útsending frá
leik Manchester City og Liverpool í ensku úr-
valsdeildinni.
20.00 10 bestu Bein útsending frá loka-
fögnuðinum á 10 bestu þar sem besti knatt-
spyrnumaður Íslands verður valinn.
21.30 Enska úrvalsdeildin Útsending
frá leik Chelsea og Man. Utd í ensku úrvals-
deildinni.
23.10 PL Classic Matches Hápunktarnir
úr bestu og eftirminnilegustu leikjum úrvals-
deildarinnar.
23.40 PL Classic Matches Hápunktarnir
úr bestu og eftirminnilegustu leikjum úrvals-
deildarinnar.
00.10 Ensku mörkin Allir leikir umferð-
arinnar í ensku úrvalsdeildinni skoðaðir. Öll
mörkin og öll bestu tilþrifin á einum stað.
07.00 Barnatími Stöðvar 2 Krakkarnir í
næsta húsi, Justice League Unlimited, Tommi
og Jenni og Kalli kanína og félagar.
08.15 Oprah
08.55 Í fínu formi
09.10 Bold and the Beautiful
09.30 La Fea Más Bella (169:300)
10.15 Grey‘s Anatomy (14:36)
11.10 Hæðin (9:9)
12.00 Hádegisfréttir
12.35 Neighbours
13.00 The Madness Of King George
14.55 The Complete Guide To Parent-
ing (2:6)
15.20 Sjáðu
15.55 Saddle Club
16.18 Tutenstein
16.43 Ginger segir frá
17.03 Hvolpurinn Scooby-Doo
17.28 Bold and the Beautiful
17.53 Neighbours
18.18 Markaðurinn og veður
18.30 Fréttir
18.47 Íþróttir
18.54 Ísland í dag
19.17 Veður
19.30 The Simpsons
19.55 Friends (20:24)
20.15 Two and a Half Men (11:19)
20.40 The Big Bang Theory (9:17)
Leonard og Sheldon eru klárir eðlisfræðingar
en óttalegir klaufar þegar kemur að mann-
legum samskiptum og þá sérstaklega við hitt
kynið. Þetta breytist þó þegar þeir kynnast
nágranna sínum, Penny, sem er einlæg, fögur
og skemmtileg.
21.05 Chuck (7:13) Chuck Bartowski er
ósköp venjulegur og lifir frekar óspennandi lífi
allt þar til hann opnar tölvupóst með öllum
hættulegustu leyndarmálum CIA. Þar með er
hann orðinn mikilvægasta vopn sem til er og
örlög heimsins hvíla á herðum hans.
21.50 Terminator: The Sarah Connor
Chronicles (5:9)
22.35 Murder Hotel
23.30 Kompás
00.00 Prison Break (2:22)
00.45 Peter‘s Friends
02.25 Mrs. Harris
04.00 The Madness Of King George
05.45 Fréttir og Ísland í dag
08.00 Land Before Time XI: Invasion
of the Tinysauruses
10.00 The Family Stone
12.00 Bigger Than the Sky
14.00 Blue Sky
16.00 Land Before Time XI. Invasion
of the Tinysauruses
18.00 The Family Stone
20.00 Bigger Than the Sky Peters
Rooker hættir í vinnunni til þess að taka
þátt í áhugamannaleikriti. Þar kynnist hann
mörgu góðu fólki og þar á meðal hinni hríf-
andi Grace.
22.00 Cool Money
00.00 My Date with Drew
02.00 Carried Away
04.00 Cool Money
06.00 Vanity Fair
17.30 Þýski handboltinn - Hápunktar
Hver umferð gerð upp í þessum flotta þætti
um þýska handboltann. Handknattleikur á
heimsmælikvarða.
18.10 Undankeppni HM 2010 Útsend-
ing frá leik Hollendinga og Íslendinga í undan-
keppni HM.
20.00 10 bestu Bein útsending frá loka-
fögnuðinum á 10 bestu þar sem besti knatt-
spyrnumaður Íslendinga fyrr og síðar verð-
ur valinn.
21.30 Fréttaþáttur Meistaradeildar
Evrópu Fréttaþáttur Meistaradeildar Evrópu
þar sem hver umferð er skoðuð í bak og fyrir.
Viðtöl við leikmenn liðanna og komandi viður-
eignir skoðaðar.
22.00 PGA Tour 2008 - Hápunktar
Farið er yfir það helsta sem er að gerast á
PGA-mótaröðinni í golfi.
22.55 Fittneshelgin 2008 Sýnt frá Fitn-
esshelginni þar hraustasta fólk landsins var
samankomið.
23.55 Spænsku mörkin Allir leikirnir og
öll mörkin úr spænska boltanum skoðuð.
Sérfræðingar Stöðvar 2 Sport kryfja alla leiki
helgarinnar ásamt þeim Ólafi Kristjánssyni og
Heimi Guðjónssyni.
06.00 Óstöðvandi tónlist
07.15 Rachael Ray (e)
08.00 Dr. Phil (e)
08.45 Vörutorg
09.45 Óstöðvandi tónlist
16.20 Vörutorg
17.20 America’s Funniest Home Vid-
eos (e)
17.45 Dr. Phil Sjónvarpssálfræðingur-
inn dr. Phil McGraw hjálpar fólki að leysa öll
möguleg og ómöguleg vandamál, segir frá-
bærar sögur og gefur góð ráð.
18.30 Rachael Ray Spjallþáttur þar sem
Rachael Ray fær til sín góða gesti og eldar
gómsæta rétti.
19.20 Singing Bee (e)
20.10 Survivor (3:16) Vinsælasta raun-
veruleikasería allra tíma, Að þessu sinni fer
leikurinn fram innan um villt dýr í frumskóg-
um Gabon í Afríku.
21.00 Innlit / Útlit (4:14) Hönnunar-
og lífsstílsþáttur þar sem Nadia Banine og
Arnar Gauti koma víða við.
21.50 In Plain Sight (4:12) Sakamála-
sería um hörkukvendi sem vinnur fyrir
bandarísku vitnaverndina. Mary og Marshall
eru send til að flytja fanga yfir eyðimörk-
ina. Hann býr yfir mikilvægum upplýsingum
um hættulegan leigumorðingja og fljótlega
kemur í ljós að þau eru ekki ein á ferð.
22.40 Jay Leno Spjallþáttur á léttum
nótum þar sem háðfuglinn Jay Leno fær til
sín góða gesti og slær á létta strengi.
23.30 CSI. New York (e)
00.20 Law & Order (e)
01.10 Vörutorg
02.10 Óstöðvandi tónlist
18.15 Fréttir og Að norðan Endurtekið á
klst fresti til 12.15 daginn eftir.
21.00 Bæjarstjórnarfundur á Akureyri
N4 Sjónvarp Norðurlands
> Kaley Cuoco
„Í framtíðinni vil ég opna
athvarf fyrir heimilislausa
hunda. Ég elska dýr heitar en
fólk.“ Couco leikur hina ein-
lægu Penny í þættinum The
Big Bang Theory sem sýndur
er á Stöð 2 í kvöld.
20.00 Bigger Than the Sky
STÖÐ 2 BÍÓ
20.30 Ally McBeal
STÖÐ 2 EXTRA
21.05 Chuck STÖÐ 2
21.25 Viðtalið - Amr Moussa
SJÓNVARPIÐ
21.50 In Plain Sight
SKJÁR EINN
▼
▼
▼