Fréttablaðið - 14.10.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 14.10.2008, Blaðsíða 4
4 14. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR Vegna fréttar á blaðsíðu 34 á laugar- dag um Kaupmannahafnarferð starfsmanna Kaupþings vill Benedikt Sigurðsson, upplýsingafulltrúi fyrirtæk- isins, árétta að það voru starfsmenn eins útibús sem ákváðu í vor að fara til Kaupmannahafnar með haustinu. Þeir greiddu sjálfir fyrir sína ferð. VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 14° 14° 13° 12° 14° 18° 19° 19° 19° 17° 24° 20° 21° 19° 26° 21° 30° 23° 4 Á MORGUN 8-13 m/s austast, annars 3-8 m/s. FIMMTUDAGUR 8-13 m/s vestan til, annars 3-8 m/s. 6 5 5 4 3 6 6 7 7 7 1 3 3 3 5 3 3 6 10 6 6 6 2 3 5 5 3 3 5 7 2 UMHLEYPINGAR Nú rekur hver lægð- in aðra. Ein í dag og önnur á fi mmtudag. Hann sveifl ast því á milli suðlægra og norðlægra átta. Þetta þýðir að um eða eftir hádegi í dag og á fi mmtudag verður væta sunnan og vestan til og á morgun norðan til. Á föstudag verður víða væta og síðan snjó- eða slydduél nyrðra á laugardag. Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur ATVINNUMÁL „Það er samt ósköp einfalt frá því að segja að margir þeirra sem eru að missa vinnuna hreinlega gráta sína stöðu,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármála- fyrirtækja. Atvinnulausum hefur fjölgað um tæplega þúsund manns frá því í síðasta mánuði. Þetta kom fram á vef Vinnumálastofnunar í gær. Að meðaltali voru atvinnulaus- ir 2.229 í síðasta mánuði en eru nú 3.143. Í fyrra voru atvinnulausir í september 1.336 talsins. Friðbert segir að talið sé að alls eigi 300 starfsmenn Landsbank- ans og um 100 starfsmenn Glitnis eftir að missa vinnuna. Ekki sé vitað um hvernig málum verði háttað hjá Kaupþingi. Friðbert segir fólk taka atvinnu- missinn mjög nærri sér. Oft sé um að ræða fólk með ung börn með skuldir á bakinu vegna hús- næðiskaupa og námslána. Staða þess nú reyni mjög á og sárnar mörgum að ráðamenn standi ekki við orð sín, þá til dæmis Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sem hafi margoft gefið frá sér misvísandi skilaboð. Í viðtali við 24 stundir hinn 10. október var til dæmis haft eftir honum: „Ríkið yfirtekur ekki starfsemina erlendis og því miður er þar hópur sem verður eftir. Okkur þykir það gríðarlega leitt en eins og við lýstum yfir þá halda allir þeir starfsmenn sem vinna við íslensku starfsemina, útibú og netið vinnu sinni, sem betur fer.“ Þá segir Friðbert Björgvin hafa í þrígang á fundi lofað starfsmönnum Landsbankans því að það myndi halda kjörum sínum svo sem skil- yrðum um upp- sagnarfresti og annað yrði því sagt upp. Síðar hafi komið í ljós að það var ekki víst þar sem ákvæði um réttar- stöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum voru numin úr gildi þegar ríkisstjórnin setti neyðarlögin. „Nú hafa nýir stjórn- endur innan bankanna þó sagt að þeir sem missi starfið muni halda kjörum samkvæmt kjarasamn- ingum. Við trúum því,“ segir hann. Karl Sigurðsson, starfsmaður Vinnumálastofnunar, segir að ráðningum sé að fækka og nýskráningum atvinnulausra fjölgi mjög. Uppsagnir hafa hingað til fyrst og fremst verið á höfuðborgar- svæðinu og á Suðurnesjum en Karl segir viðbúið að atvinnuleys- ið fari að aukast annars staðar, til dæmis á Norðurlandi eystra og Suðurlandi. karen@frettabladid.is ghs@frettabladid.is Gráta uppsagnir og innhaldslaus loforð Tæplega þúsund fleiri eru atvinnulausir nú en í síðasta mánuði. Fólk grætur sína stöðu, að sögn framkvæmdastjóra Samtaka starfsmanna fjármálafyrir- tækja. Misvísandi skilaboð og innistæðulaus loforð ráðamanna ekki til bóta. FRIÐBERT TRAUSTASON Í LANDSBANKANUM Uppsagnir hafa fyrst og fremst verið á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. Hjá Vinnumálastofnun er talið að atvinnuleysið fari að aukast annars staðar, til dæmis á Norðurlandi eystra og Suðurlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR UMHVERFISMÁL Ekki kemur til greina að draga til baka ákvörðun um heildstætt umhverfismat vegna fyrirhugaðs álvers á Bakka, segir Þórunn Sveinbjarnar- dóttir umhverf- isráðherra. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokks, spurði hana hvort það kæmi til greina að endurskoða þessa ákvörðun í ljósi þeirra þrenginga sem nú er við að etja í íslensku efnahagslífi. Sagði hann ekki stætt á því að þingið væri að flækjast fyrir með reglum sem væru til þess fallnar að tefja fyrir. Þórunn undraðist orð þingmanns- ins og spurði hvort hann væri að mælast til þess að Íslendingar hundsuðu EES-samninginn og skuldbindingar sem Íslendingar hafa tekið á sig. - jse Álver á Bakka: Þing á ekki að flækjast fyrir JÓN GUNNARSSON EFNAHAGSMÁL Fjármálaráðherra Bretlands skýrði frá því í gær að ríkissjóður landsins hefði lánað Landsbankanum 100 milljónir punda, jafnvirði um 20 milljarða króna, til að standa straum af greiðslum til innistæðueigenda í Icesave. Lánið sem kynnt var í gær er ekki hluti af samningum um ábyrgðar- greiðslur Íslendinga vegna Icesave í Bretlandi. Það mál er enn ófrá- gengið. Sagt er að ábyrgð Íslend- inga nemi um 400 milljörðum króna en að eignir séu fyrir því að mestu. „Það stendur að okkur brugðið sverð á annað borðið og fallbyssu- kjaftur á hitt. Það tekur tíma að semja við þær aðstæður en það er búið að taka bráðaspennu úr mál- inu með viðræðum um helgina,“ segir Össur Skarphéðinsson iðnað- arráðherra og starfandi utanríkis- ráðherra, sem kveðst ekki viss um að samningarnir við Breta verði leiddir til lykta á allra næstu dögum. Össur segir mikilvægt að búið sé „að leiða málið í jörð“ í ýmsum öðrum löndum þar sem íslenskætt- uð fyrirtæki hafi stundað fjármála- viðskipti af þessum toga. Það eigi til dæmis við um Noreg, Finnland og Svíþjóð. „Það er ýmist verið að ganga frá málum með praktískum hætti, eða íslensk stjónvöld hafa haft frum- kvæði að því að hafa samband við stjórnvöld í viðkomandi löndum. Viðskiptaráðherra hefur verið að þessu síðustu daga.“ - kóp, gar Samið um Icesave undir brugðnu sverði Breta, segir starfandi utanríkisráðherra: Bretar lána 100 milljónir punda LANDSBANKINN Starfandi utanríkisráð- herra er ekki viss um að samningar náist á næstu dögum við Breta um Icesave- reikninga Landsbankans. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI NORÐUR-KÓREA, AP Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa á ný leyft erlendum kjarnorkueftirlits- mönnum að skoða aðalkjarnorku- ver landsins. Um miðjan ágúst lokuðu stjórnvöld á allt kjarnorkueftirlit og sögðust ætla að gangsetja kjarnorkubúnað sinn á ný, vegna þess að Bandaríkin höfðu ekki staðið við sinn hluta samkomu- lags, sem fólst meðal annars í því að Bandaríkin tækju Norður- Kóreu af lista yfir ríki, sem styðja hryðjuverkastarfsemi, gegn því að Norður-Kórea hætti við kjarnorkuáætlun sína og leyfi kjarnorkueftirlit. Bandaríkin tóku Norður-Kóreu af listanum nú í byrjun vikunnar og í beinu framhaldi af því tóku Norður-Kóreumenn til við að efna sinn hluta samningsins. - gb Bandaríkin gefa eftir: Norður-Kórea leyfir eftirlit KIM JONG-IL Leiðtogi N-Kóreu sást í sjónvarpi um helgina í fyrsta sinn eftir alvarleg veikindi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Bretar leita til Gests Bresk yfirvöld hafa leitað til Gests Jónssonar hæstaréttarlögmanns um lögfræðiþjónustu vegna deilunnar við íslensk stjórnvöld. Vísir.is greindi frá þessu í gær. EFNAHAGSMÁL Sérstakar efnahagsumræður Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, greindi frá því í gær að sérstakar umræður yrðu á Alþingi um stöðuna í efnahags- og bankamálum í vikunni, líklega á morgun. Ný á þingi Sigríður Andersen, fyrsti varaþingmað- ur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkur- kjördæmi norður, tók sæti á þingi í fyrsta sinn í gær. ALÞINGI ÁRÉTTING VINNUMARKAÐUR Friðbert Trausta- son, framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, SSF, telur að margir af þeim bankamönnum sem hafa verið að fá uppsagnarbréf síðustu daga og mánuði flýi land og útvegi sér vinnu í útlöndum ef ekki rætist hratt úr atvinnuástandinu. Friðbert bendir á að margt af þessu fólki tali tungumál nágrannaþjóðanna, hafi „miklar og góðar háskólagráður.“ „Ég er sannfærður um að eitthvað af þessu fólki á heiman- gengt og hluti af því mun skoða það að flytja utan ef ekki rætist úr hér heima,“ segir hann. - ghs Uppsagnir í bönkum: Bankamenn flýja land GENGIÐ 13.10.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 199,9911 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 110,36 110,88 190,2 191,12 149,79 150,63 20,095 20,213 17,776 17,88 15,549 15,641 1,0969 1,1033 168,46 169,46 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.