Fréttablaðið - 21.10.2008, Side 12
12 21. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
■ Erfitt er að segja
hvenær fyrsta teikni-
myndasagan var gerð,
enda má nefna hella-
málverk og egypskt
myndletur sem
nokkurs konar
teiknimyndasögu.
Svisslendingurinn
Rodolphe Töpfer hefur verið
nefndur faðir teiknimyndasögunnar.
Hann var uppi á 19. öld og var upp-
hafsmaður andhetjuhefðarinnar.
Árið 1933 komu fyrstu mynda-
sögublöðin út í Bandaríkjunum
og Tinni leit dagsins ljós 1934 í
Frakklandi. Á seinni hluta aldarinnar
blómstruðu franskar/belgískar sögur
um Ástrík, Sval og Val og Viggó
við utan, svo einhverjir séu nefndir.
MYNDASAGAN
ALDAGÖMUL SKEMMTUN
„Það er allt fínt að frétta af mér. Ég eyði miklum
tíma með dætrum mínum þessa dagana en
einnig fer nokkur tími og orka í að vinna og
svipast um eftir framtíðarstarfi,“ segir Helga Dís
Sigurðardóttir, matsfræðingur og skipu-
leggjandi námshelga fyrir fólk um og yfir
miðjum aldri.
„Núna er ég í óða önn að kynna náms-
helgi í Reykholti 28. til 30. nóvember og
blæs á allar hrakspár um dræma þátttöku
vegna efnahagsþrenginga. Ég hef sett
saman þrjú metnaðarfull námskeið og er
meðal annars í samvinnu við Snorra-
stofu um námskeið um Snorra Sturlu-
son og Reykholt. Einnig er boðið
upp á jóganámskeið og svo er ég
að leggja lokahönd á heimasíð-
una hugleiðir.is,“ segir Helga Dís,
sem greinilega hefur nóg að gera.
„Annars er allt í góðu gengi. Ég nýt lífsins
með fjölskyldunni og stunda ódýra líkamsrækt,
meðal annars með því að ganga með eldri
dótturina í skólann á hverjum morgni. Svo
fer ég í sund með vinkonum mínum
endrum og eins.“
Spurð hvort ferðalög séu á döfinni
býst Helga Dís ekki við því frekar en
margir aðrir þessa dagana. „Ég fór
alla leið til Makedóníu í brúðkaup
vinkonu minnar í sumar og það var
frábær upplifun, en frekari utanlands-
ferðir eru ekki planaðar á næstunni.
Svo fer ég í annað brúðkaup á
morgun og hlakka mikið til,“ segir
Helga, sem má ekki við meira
spjalli því hún þarf að drífa sig
að taka þátt í fjöldatrommu-
slætti á Ingólfstorgi.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? HELGA DÍS SIGURÐARDÓTTIR MATSFRÆÐINGUR
Nýtur lífsins í ódýrri líkamsrækt
Ragna Skinner, píanókenn-
ari í Manchester, er með-
limur hljómsveitarinnar
Sisters of Transistors sem
nýlega hefur hlotið umfjöll-
un helstu tónlistartímarita
Breta. Henni þykir erfitt
að fylgjast með neikvæðri
umfjöllun breskra fjölmiðla
um Ísland en kann vel við
sig í Englandi og er ekki á
heimleið á næstunni.
„Það var svolítið erfitt að horfa
upp á neikvæða umfjöllun um
Ísland í sjónvarpinu á hverjum
degi og óþægilegt að hafa áhyggj-
ur af fjölskyldu og vinum heima á
Íslandi. Svo fjalla íslenskir fjöl-
miðlar á neikvæðan hátt um Breta
í þessari fjármáladeilu. Það eru
allir að verja sig og sína. Fjölmiðl-
ar hafa svo mikil völd,“ segir
Ragna Skinner píanókennari og
meðlimur hljómsveitarinnar Sist-
ers of Transistors sem fengið
hefur jákvæða umfjöllun helstu
tónlistartímarita Bretlands upp á
síðkastið. Ragna hefur verið
búsett í Manchester í Norður-Eng-
landi í nærri tíu ár.
Sisters of Transistors er skipuð
fjórum stelpum sem spila á orgel
frá sjöunda og áttunda áratugn-
um, auk trommarans Grahams
Massey sem gerði garðinn frægan
með Manchester-sveitinni 808
State á tíunda áratugnum. 808
State vann töluvert með Björk á
sínum tíma, hélt tónleika á Íslandi
og var meðal annars í miklu upp-
áhaldi hjá öðrum kunnum
Manchester-búa, Noel Gallagher,
höfuðpaur Oasis.
Ragna segir sveitina, sem leikur
framsækna diskóhústónlist með
brimbrettaívafi, hafa orðið til
vegna sameiginlegs áhuga meðli-
manna á hljóðgervlum og gömlum
hljómborðum. „Graham hefur
komið sér upp safni af slíkum
hljóðfærum, sem hann kallar
SMMOKT (South Manchester
Museum of Keyboard Technol-
ogy). Það er bannað að leika á
hljóðfæri sem eru yngri en þrjátíu
ára í hljómsveitinni, en að öðru
leyti er þetta mjög afslöppuð sveit.
Við hittumst venjulega yfir tebolla
á þriðjudagsmorgnum heima hjá
Graham og spilum í svona tvo
tíma. Við erum öll að dunda okkur
við aðra hluti og því er tónleika-
hald oft óreglulegt,“ segir Ragna.
Fyrsta smáskífa sveitarinnar,
This is Music, kom út fyrir stuttu
hjá plötufyrirtækinu Floor Bang-
ers í London. Samhliða því var
gert myndband við lagið „The
Don“, sem er gert í þrívídd og því
fylgja þrívíddargleraugu með
smáskífunni. Sveitin hefur hlotið
töluverða umfjöllun hjá breskum
fjölmiðlum og lög hennar meðal
annars verið leikin á útvarps-
stöðvum BBC auk umfjallana í
víðlesnum tónlistartímaritum á
borð við Q, Uncut og NME.
Ásamt því að spila með Sisters
of Transistors sinnir Ragna píanó-
kennslu í fullu starfi. Hún segist
vera píanókennari upp á gamla
mátann, hjóli um bæinn og kenni í
heimahúsum auk þess að kenna
nokkra daga í viku í litlum tónlist-
arskóla í úthverfi Manchester.
Hún á von á sínu fyrsta barni í
byrjun desember með kærasta
sínum David sem er frá Þýska-
landi. Hún hyggur því á gott jóla-
frí áður en hljómsveitin fer í hljóð-
ver til að taka upp plötu sem
kemur líklega út í apríl. Spurð
hvort til greina kæmi að flytjast
aftur til Íslands býst Ragna varla
við því í bráð. „Endrum og eins
hellist yfir mig söknuður eftir
fjölskyldu og vinum, en ég leysi
það með heimsóknum til Íslands
þrisvar til fjórum sinnum á ári. Ég
kann afskaplega vel við mig í
Manchester og samheldnin hér er
mikil. Ég er því ekki á heimleið
strax að minnsta kosti. En það
væri gaman ef einhver tónleika-
haldarinn vildi fá okkur til að spila
á Íslandi,“ segir Ragna. Því er hér
með komið á framfæri.
kjartan@frettabladid.is
Allir að verja sig og sína
Í MANCHESTER Ásamt því að spila með Sisters of Transistors kennir Ragna á píanó í
þriðju stærstu borg Bretlands.
FJÓRAR OG EINN Sisters of Transistors
hafa hlotið jákvæða umfjöllun hjá tón-
listartímaritum á borð við Q, Uncut og
NME upp á síðkastið.
Margir eru sannfærðir um að gjörn-
ingaveðrið sem gengur yfir Ísland
um þessar mundir
eigi eftir að leiða til
róttækra breytinga.
En í hverju ættu þær
verið fólgnar? „Það
sem ég held að fari
verst með fólk er
óvissan,“ segir Hrafn-
hildur Heba Júlíus-
dóttir háskólanemi.
„Ég held að það hafi
aldrei verið brýnna
en einmitt núna að standa vörð um
velferðarkerfið, og sjá til þess að
grunnstoðir íslensks samfélags hvíli
áfram á gömlum grunngildum á borð
við samtryggingu og samkennd.“
Hrafnhildur Heba segir að á sama
tíma sé mikilvægt að reisa íslenskt
efnahagslíf til vegs og virðingar á ný.
Íslendingar ættu að leggjast í ræki-
lega sjálfsskoðun og kanna hvað þeir
hafa í raun og veru fram að færa.
„Gleymum ekki að kaupsýslumenn
eru ekki þeir einu sem hafa verið í
útrás, það hafa íslenskir listamenn
verið líka og þótt fjármálageirinn hafi
siglt í strand verður það sama ekki
sagt um listirnar. Þess vegna ættum
við að halda áfram að styðja við
bakið á listamönnum, tónlistarmönn-
um og þar fram eftir götunum. Það
er heilbrigð útrás til lengri tíma litið.“
SJÓNARHÓLL
NÝ SAMFÉLAGSGILDI
Samkennd og
heilbrigð útrás
HRAFNHILDUR
HEBA JÚLÍUS-
DÓTTIR
Markaðurinn fylgir Fréttablaðinu á morgun
Orðskýring Markaðarins leysir
lesendur úr viðjum flókinna
fjármálahugtaka.
Í Markaðnum á morgun
Hvað verður um sprotana í fárviðri
fjármálaheimsins?
Markaðurinn fundar með frumkvöðlum. Miklar endurbætur eru fyrirhug-aðar á göngustígnum sem liggur
meðfram baklóðum húsa við
Framnesveg í vesturbæ Reykja-
víkur.
Framkvæmda- og eignaráð
Reykjavíkurborgar hefur sam-
þykkt ýmsar breytingar á göngu-
stígnum. Meðal annars verður lýs-
ing bætt, lægri og minna truflandi
ljósastaurar settir upp, svæði
hellulögð, bekkjum komið fyrir og
dregið úr truflun af bílaumferð.
Þá verður „hljóðvist, næði og
öryggi á svæðinu stórbætt“ eins
og segir í tilkynningu. - hhs
Göngustígar við Framnesveg fegraður:
Meira næði á bekkjum við baklóðir
FRAMNESVEGUR Göngustíginn sem liggur meðfram baklóðum húsa við Framnesveg
á að fegra og bæta.
Kaldur vogunarsjóður
„Hver vissi að Ísland væri
bara vogunarsjóður með
jöklum.“
THOMAS L. FRIEDMAN, DÁLKA-
HÖFUNDUR NEW YORK TIMES, UM
ÁSTAND EFNAHAGSMÁLA.
Fréttablaðið, 20. október
Til í að tala
„Ég hef ekki verið hlynntur
Evrópusambandsaðild en ég
er áhugamaður um umræð-
una.“
BJARNI HARÐARSON ALÞINGISMAÐ-
UR UM UMRÆÐUR UM EVRÓPU-
SAMBANDSAÐILD HJÁ FRAMSÓKN-
ARFLOKKNUM.
Fréttablaðið, 20. október