Fréttablaðið - 21.10.2008, Síða 30

Fréttablaðið - 21.10.2008, Síða 30
22 21. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR folk@frettabladid.is Bresku rokkararnir í Oasis ætla að halda stórtónleika í Slane Castle á Írlandi 20. júní á næsta ári. Pláss er fyrir allt að hundrað þúsund manns á tónleikunum, sem yrðu á meðal þeirra stærstu í sögu sveitarinnar. Oasis hefur reyndar áður spilað í Slane Castle, árið 1995, þegar sveitin hitaði upp fyrir R.E.M. Nýjasta plata Oasis, Dig Out Your Soul, fór beint í efsta sæti breska vinsældalistans. Þar með hafa allar sjö plötur sveitarinnar komist á toppinn í Bretlandi, sem er einstakur árangur. Stórtónleikar í Slane Castle OASIS Rokkararnir í Oasis ætla að halda stórtónleika í Slane Castle á Írlandi næsta sumar. Framleiðslu hefur verið frestað á nýrri hasarmynd Johns Travolta, From Paris With Love, eftir að kveikt var í tíu bílum sem átti að nota í myndinni. Íkveikjan átti sér stað í úthverfi Parísar þar sem fjöldi innflytjenda býr. Mikil uppþot urðu í sama hverfi fyrir þremur árum. Tökur á myndinni áttu að hefjast á mánudag og áttu þær að standa yfir í tólf vikur í París. Í myndinni leikur Travolta njósnara og Jonatahan Rhys Meyers leikur starfsmann sendiráðs sem lendir í mikilli hættu. Íkveikja frestar mynd Tískugúrúinn Mr. Blackwell, sem setti á hverju ári saman lista yfir verst klæddu stjörn- urnar, er látinn, 86 ára gamall. Á meðal þeirra sem komust á list- ann var Björk Guðmundsdóttir fyrir svanakjólinn sem hún klæddist á Óskarshátíðinni um árið. „Hún dansar í myrkrinu og klæðir sig þar líka,“ sagði Black- well og var ekki hrifinn af klæða- burðinum. Á meðal fleiri stjarna sem komust á listann voru Mad- onna, Meryl Streep, Christina Aguilera og Camilla Parker- Bowles. „Listinn gerir og gerði grín að tískumistökum ársins,“ sagði Blackwell í viðtali fyrir nokkru. „Ég sagði bara upphátt það sem aðrir voru að hvíslast á um. Það er ekki ætlunin að særa tilfinningar þessa fólks, heldur að gagnrýna fötin sem það klæð- ist.“ Mr. Blackwell látinn RICHARD BLACKWELL Björk Guð- mundsdóttir var ein þeirra stjarna sem komust á lista Mr. Blackwell. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES „Ráðstefnan gekk alveg vonum framar. Við erum syngjandi glöð sem stóðum að henni,“ segir Anna Hildur Hildibrandsdóttir, framkvæmdastjóri Útóns, sem skipulagði alþjóðlegu ráð- stefnuna You Are in Control sem var haldin á Hótel Sögu. Þar ræddu háttsettir aðilar úr tónlistarbransanum um ný viðskiptamódel á sviði afþreyingar og listmiðlunar. Einnig fylgdust þeir flestir með Iceland Airwaves- hátíðinni og skemmtu sér vel. Anna segir að ráðstefnan sé komin til að vera, enda hafi erlendu gestirnir gefið henni mjög góða einkunn. „Okkar metnaður liggur í því að skapa svona ráðstefnu til að gera okkur samkeppnishæf. Það er engin ástæða til annars þegar vefurinn er farinn að spila svona stóra rullu í þeim við- skiptamódelum sem við vinnum í. Við eigum að geta byggt upp miklu meira stórveldi í kringum okkar tónlistar- geira. Ímynd á íslenskri tónlist er sterk og hefur verið í langan tíma og það eru virkileg tækifæri sem liggja í þessu,“ segir hún. „Það er mikilvægt að svona ráðstefna fari fram hér því við getum skapað miklu áhrifameiri tengsl. Hérna er ekkert sem dreifir athygli enda er fólk bara að koma hingað til að hlusta á íslenska tónlist.“ - fb Ráðstefnan komin til að vera ANNA HILDUR HILDIBRANDSDÓTTIR Anna Hildur segir að ráðstefnan You Are In Control sé komin til að vera. Hasarmyndin Max Payne, sem er byggð á samnefndum tölvuleik, fór beint á toppinn á aðsóknarlist- anum vestanhafs um síðustu helgi. Sló hún þar með fjölskyldu- myndina Beverly Hills Chihuahua af toppnum eftir að hún hafði setið þar í tvær vikur. Max Payne fjallar um lögreglu- mann sem missir fjölskyldu sína og ákveður í framhaldinu að leggja í mikla hefndarför. Í þriðja sæti á aðsóknarlistanum lenti ævintýramyndin The Secret Life of Bees en í því fjórða varð W, mynd Olivers Stone um George W. Bush, Bandaríkjaforseta. Mynd hins efnilega Shia LaBeouf, Eagle Eye, endaði síðan í fimmta sæti. Max Payne á toppnum MAX PAYNE Mark Wahlberg hlutverki Max Payne. > VILL DANSA VIÐ KONUR Kate Moss, sem er þekkt fyrir að stunda næturlífið á skemmtistöð- um stórborg- anna, segist ekki þola að dansa við karlmenn sem kunna ekki að hreyfa sig. Ofurfyrirsætan segist þá miklu frekar kjósa að dansa við vinkonur sínar og klæðist þá gjarnan mjög háum hælum og stuttum kjól. Söngkonan Nelly Furtado giftist kærasta sínum til tveggja ára, Demacio Castellon, í laumi í sumar. Þetta viðurkenndi hún í viðtali í sjónvarps- þættinum Entertain- ment Tonight Canada. „Ég elska hann og ég er mjög hamingju- söm. Ég lít björtum augum á framtíðina,“ sagði hún. „Mér líður eins og ég sé frjálsari og afslappaðri en áður.“ Hjónin nýbökuðu kynntust þegar Castellon starfaði við upptökur á síðustu plötu hennar, Loose, sem kom út fyrir tveimur árum. Vinsælasta lagið af henni var Promiscuous. Gifti sig í laumi í sumar NELLY FURTADO Furtado giftist Demacio Castellon í laumi í sumar. Birna Karen Einarsdóttir fagnaði tveggja ára afmæli Birna Concept Shop fyrir helgi. Föt hennar eru seld í níu löndum. „Við erum búnar að opna þrjár búðir á þremur árum og stefnum á tvær í viðbót innan fimm ára,“ segir Birna Karen Einarsdóttir, eigandi og hönnuður Birna concept shop, sem fagnaði tveggja ára afmæli verslunarinnar síðastliðinn föstudag. Birna hannar og fram- leiðir föt fyrir konur á öllum aldri sem eru seld til níu landa út um allan heim og segist fyrst og fremst leggja áherslu á falleg snið. „Við búum til föt fyrir mismunandi týpur af konum á öllum aldri, af öllum stærðum og gerðum. Við leggjum líka áherslu á að sniðin dragi fram kvenlegar línur og gerum ekki bara tískufatnað held- ur föt sem hægt er að nota ár eftir ár. Merkið er orðið sex ára gamalt og var upprunalega heildsala. Við opnuðum fyrstu búðina í Kaup- mannahöfn fyrir þremur árum, svo á Íslandi fyrir tveimur árum og síðast í mars opnuðum við 200 fer- metra búð í miðbæ Kaupmanna- hafnar,“ útskýrir Birna sem mun opna vefverslun á síðunni birna. net í næsta mánuði og hefur í hyggju að opna verslanir í Árósum, Ósló eða Stokkhólmi. „Við vorum að koma frá Peking og Shanghai þar sem við skoðuðum saumastofu fyrir framleiðslu. Stof- an er í eigu Dana og þar er vel pass- að upp á öll réttindi starfsfólksins, sem okkur finnst mjög mikilvægt, en meirihluti framleiðslu okkar mun áfram fara fram í Evrópu. Við erum ekki að hugsa um að fara út í neina fjöldaframleiðslu og ég vil gera þetta á minn hátt. Ég hef feng- ið tilboð frá fjárfestum, en ég hef engan áhuga á því og vil frekar vera á fáum en góðum stöðum,“ segir Birna að lokum. alma@frettabladid.is Fimm verslanir á fimm árum HAFNAÐI TILBOÐUM FJÁRFESTA Birna skoðar möguleika á framleiðslu í Peking og Shanghai en hún vill ekki fara út í fjöldafram- leiðslu á fatnaði sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.