Fréttablaðið - 21.10.2008, Síða 32

Fréttablaðið - 21.10.2008, Síða 32
24 21. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR! ENGIN MISKUNN. BARA SÁRSAUKI! NÝTT Í BÍÓ! NÝTT Í BÍÓ! SÍMI 462 3500 SÍMI 564 0000 16 16 L 14 16 L L L L MAX PAYNE kl. 8 - 10 HOUSE BUNNY kl. 6 - 10 REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 8 SKJALDBAKAN & HÉRINN kl. 6 16 L 14 L MAX PAYNE kl. 5.45D - 8D - 10.15D MAX PAYNE LÚXUS kl. 5.45D - 8D - 10.15D HOUSE BUNNY kl. 5.45 - 8 - 10.15 REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 5.50 - 8 - 10.10 BURN AFTER READING kl. 8 - 10.15 MAMMA MIA kl. 5.30 SKJALDBAKAN & HÉRINN kl. 3.45 GRÍSIRNIR 3 kl. 3.45 LUKKU LÁKI OG DALTON BRÆÐUR kl. 3.45 5% FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI 50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ KAUPIR BÍÓMIÐANN Á L 16 7 14 L THE WOMEN kl. 5.30 - 8 - 10.30 MAX PAYNE kl. 5.45 - 8 - 10.15 HAMLET 2 kl. 10.15 REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 5.40 - 8 - 10.10 MAMMA MIA kl. 5.30 - 8 5% 5% SÍMI 530 1919 SÍMI 551 9000 16 L 16 16 12 L BANGKOK DANGER kl. 5.30 - 8 - 10.20 HOUSE BUNNY kl. 6 - 8.20 - 10.30 BURN AFTER READING kl. 5.45 - 8 - 10.15 PINAPPLE EXPRESS kl. 8 - 10.30 STEP BROTHERS kl. 5.45 550kr. fyrir börn 650kr. fyrir fullorðna ÁLFABAKKA SELFOSS AKUREYRI KEFLAVÍK KRINGLUNNI FRÁ HÖFUNDI „THE NOTEBOOK” SEX DRIVE kl. 8 - 10:10 12 SMART PEOPLE kl. 8 L BURN AFTER READING kl. 10 16 PINEAPPLE EXPRESS kl. 8 16 BABYLON A.D. kl. 10:10 16 REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 - 10:10 14 SEX DRIVE kl. 8 - 10 12 RIGHTEOUS KILL kl. 8 16 PATHOLOGY kl. 10 16 SEX DRIVE kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 SEX DRIVE kl. 5:50 - 8 - 10:20 VIP MAX PAYNE kl. 5:50 - 8 - 10:10 16 NIGHTS IN RODANTHE kl. 5:50 - 8 - 10:10 L PATHOLOGY kl. 8 - 10:20 16 WILD CHILD kl. 8 L GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 L TROPIC THUNDER kl. 10:20 16 SVEITA BRÚÐKAUP kl. 5:50 L SEX DRIVE kl. 6 - 8:10 - 10:20 12 NIGHTS IN RODANTHE kl. 8:10 L HAPPY GO LUCKY kl. 8 12 QUEEN RAQUELA kl. 10:20D 12 DEATH RACE kl. 10:20 16 JOURNEY 3D kl. 6 L WILD CHILD kl. 5:50 L SEX DRIVE FER FRAM ÚR AMERICAN PIE Á 100 Km hraða! DIGITAL-3D TOPP GRÍNMYND! MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR! ENGIN MISKUNN. BARA SÁRSAUKI! MARK WAHLBERG NÝTT! 500 kr Í SAMBÍÓIN Á ÞRIÐJUDÖGUM - bara lúxus Sími: 553 2075 THE WOMEN kl. 5.50, 8 og 10.10 L SKJALDBAKANN OG HÉRINN kl. 6 (650)- ÍSL.TAL L RIGHTEOUS KILL kl. 6, 8 og 10 16 REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 og 10 12 ATH! 650 kr. Ég hafði efasemdir um hvort Lov- ísa Elísabet Sigrúnardóttir, Lay Low, væri jafn frábær og af var látið þegar hún kom fram á sjónar- sviðið 2006 með plötuna Please Don’t Hate Me. Þetta er alveg þokkaleg plata svo sem, en ég keypti ekki ofhlaðinn fagurgalann sem þá heyrðist. Plata með leik- hústónlistinni í fyrra gerði ekkert til að auka áhuga minn. Nú sé ég hins vegar loksins ljósið: Lay Low er einfaldlega frábær tónlistar- maður. Það sýnir hún og sannar með nýju plötunni sinni, langbesta verki sínu til þessa. Tvennt gæti komið til: Að hún hafi þroskast svona gríð- arlega sem listamaður eða að það hafi opnað á henni allar sköpunargáfuglufur að fara úr táfýlubílskúrnum með vinum sínum á Selfossi og vinna með eldri atvinnumönnum í Lond- on. Lovísa er eini Íslendingurinn sem kemur að tónlistargerð á plöt- unni. Hún semur öll lögin nema eitt (sem er ævagamall kántríslag- ari eftir Lefty Frizzell) og textana. Fyrir tilviljun atvikaðist það svo að Lovísu var komið í samband við Bretann Liam Watson sem rekur hljóðverið Toe Rag í London. Þar er tækjakostur forn, eins og um safn sé að ræða. Verið er frægast fyrir að vera fæðingarstaður Elephant-plötu The White Stripes. Liam kallaði til nokkrar sigggrón- ar hljóðversrottur sem lögðu á ráðin með Lay Low og dembdu sér í að spila lögin inn með henni. Það er akkúrat ekkert skrýtið við það að hálf-íslensk, hálf-srílönksk- söngkona skuli taka sér amerískar kántrístjörnur gærdagsins til fyr- irmyndar, hvílíkt er vald Lovísu á forminu. Hún býður upp á ellefu lög, öll afslöppuð, en sum eru ein- læg og mjúk á meðan önnur eru harðari af sér og meira töff. Stál- gítarinn syngur, kontrabassaleik- arinn bograr yfir flykkinu og stundum brestur á með bakrödd- um eins og þær kæmu beint upp úr kántrílagi með Elvis síðan 1958 eða eitthvað. Meira töff lögin minna oft á eitthvað sem Lee Hazle- wood hefði getað kokkað upp fyrir Nancy vinkonu sína. Allt við þessa plötu er mjög ekta og flott, Lovísa stendur sig æðis- lega vel með gullfallegum söng, og allt er eins og vera ber. Þess ber þó að geta að sum lög hljóma sem hálfgert uppfyllingarefni og fölna í samanburði við betri lög. Svo má líka spyrja um frumleikann og til- raunamennskuna – hefði ekki verið hægt að mála út fyrir punktalín- una? Ef við gefum okkur að Lovísa tak- ist á við þessar spurningar á næstu plötu stendur eftir skotheld plata fyrir kertaljósalýst kreppukvöld í komandi skammdegi, þægileg, gefandi, hlý og skemmtileg. Dr. Gunni Kreppukántrí og kertaljós TÓNLIST Farewell Goodnight‘s Sleep Lay Low ★★★★ Lay Low er einfaldlega frábær tónlistarmaður. Það sýnir hún og sannar með nýju plötunni sinni, langbesta verki sínu til þessa. Til stendur að gefa út nýja plötu Vals Gunnarssonar og Gímaldsins Megasarson- ar út í Pétursborg. Platan heitir Vodka Songs og má heita sérstætt að Íslending- ar telji sig hafa eitthvað til vodkamenningar Rússlands að leggja. „Þetta eru erfiðir tímar fyrir þjóð- ina en góðir fyrir Rússlandsáhuga- menn. En þó að ég hafi dálæti á menningu Rússlands er ekki þar með sagt að ég dái rússneska stjórnarhætti,“ segir Valur Gunn- arsson, tónlistarmaður með meiru. Plata hans og Gímaldins Megasarsonar er loksins að koma út, formlegur útgáfudagur var í gær, eftir að hafa verið í dái um tveggja ára skeið. Platan heitir Vodka Songs og er vart hægt að ímynda sér betri tímasetningu fyrir útgáfu hennar en núna. Íslenskir tónlistarmenn horfa nú mjög til austurs í kjölfar þess að Davíð Oddsson lét þess getið að vænta mætti láns frá Rússlandi sem lagað gæti gjaldeyrisstöðu Íslands. Reyndar bólar ekki enn á láninu en hugmyndin ein og sér hefur orðið til að efla mjög Rúss- landsáhugamenn í andanum. Skemmst er að minnast frétta af því að Geir Ólafsson hyggst gefa út nýja plötu sína í Moskvu í sérstakri rússneskri útgáfu. „Sum lögin eru orðin svolítið „deituð“ en önnur eiga einhvern veginn miklu betur við nú en þá. Lögin Russian Century og Ameri- can Century fjalla annars vegar um hrun bandaríska heimsveldis- ins, sem virðist nær núna en áður, og hitt um hvernig nýir keisarar taka við Rússlandi eftir að byltingu lauk,“ segir Valur. En svo virðist að þegar þeir Gímaldin voru að leggja drög að plötunni hafi þeir séð eitt og annað fyrir. „Þetta er verka- skipting okkar á milli. Ég sem text- ana og syng – Gímaldin semur tón- list og leikur á hljóðfæri ásamt fleirum.“ Til stendur að gefa plötuna út í Rússlandi en Gímaldin er einmitt staddur nú um stundir í Péturs- borg. „Já, Gímaldin sér um þá hlið mála. Við ætlum að gefa Vodka Songs jafnframt út í Rússlandi. Í það minnsta í einhverjum búðum. Þarna er rússneskt forlag sem heit- ir, merkilegt nokk, Manchester, sem hefur verið að gefa út tónlist Fimmtu herdeildarinnar – hljóm- sveit Gímaldins.“ Valur segist fagna öllum menn- ingarsamskiptum við Rússland en þó með þeim fyrirvara að taka skýrt fram að hann sé enginn aðdá- andi rússneskra stjórnmála. „En það eru kannski engir kostir í stöð- unni þegar maður er blankur.“ jakob@frettabladid.is Íslenskir vodka-söngvar gefnir út í Rússlandi VALUR GUNNARSSON Vodka Songs er loksins tilbúin en svo virðist sem tveggja ára lög plötunnar eigi miklu betur við nú en þá í ljósi vendinga í efnahagsmálum og samskiptum Íslands og Rússlands.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.