Fréttablaðið - 21.10.2008, Síða 33
ÞRIÐJUDAGUR 21. október 2008 25
Breska rokksveitin The Long
Blondes hefur lagt upp laupana.
Gítarleikarinn Dorian Cox
tilkynnti þetta á MySpace-síðu
sveitarinnar í gærmorgun. Cox
fékk hjartaáfall í júní og segir
hann að ástæða þess að sveitin
hætti sé sú að hann viti ekki
hvenær hann verði búinn að ná
sér að fullu. „Ég veit ekki hvenær
eða hvort ég verð nógu góður til
að spila á gítar að nýju,“ skrifar
Cox.
The Long Blondes sendu frá sér
tvær breiðskífur, Someone to
Drive You Home árið 2006 og
Couples sem kom út fyrr á þessu
ári.
Long Blond-
es hættir
HÆTT The Long Blondes þótti hin fram-
bærilegasta rokksveit. NORDICPHOTOS/GETTY
Rapparinn Eminem ætlar að snúa
aftur úr langri útlegð með
plötuna Relapse, sem verður
fyrsta plata hans með nýju efni
síðan Encore kom út fyrir fjórum
árum.
Þetta tilkynnti Eminem á
útvarpsstöð sinni, Shade 45, á
sama tíma og hann kynnti nýja
bók sína, The Way I Am. „Það er
fullt af röngum nöfnum á
plötunni á sveimi,“ sagði hann.
„Hið raunverulega nafn plötunn-
ar er Relapse.“ Spilaði hann í
framhaldinu lag af plötunni, I´m
Having a Relapse, þar sem Slim
Shady tilkynnir endurkomu sína.
Ekki hefur verið greint frá því
hvenær platan kemur út.
Relapse er
væntanleg
EMINEM Rapparinn snýr aftur með
plötuna Relapse.
Samningar hafa náðst milli
Reykjavík Films, sem
framleiddi sjónvarpsþættina
Mannaveiðar, og þýska
fyrirtækisins Bavaria Film
International um alþjóðlega
dreifingu þáttanna.
Bavaria Film er eitt
stærsta fyrirtæki Evrópu í
sölu kvikmynda og sjón-
varpsefnis og dreifir
kvikmyndaefni um allan
heim. Þættirnir, sem nefnast
I Hunt Men á ensku, verða fyrst kynntir á alþjóðlegri kaupstefnu
fyrir sjónvarpsefni sem nú stendur yfir í Cannes í Frakklandi.
Handrit Mannaveiða, sem voru sýndir í Ríkissjónvarpinu í vor,
skrifaði Sveinbjörn I. Baldvinsson og byggir það á sögu Viktors
Arnar Ingólfssonar, Aftureldingu. Sagan nefnist Daybrake á ensku
og hefur verið gefin út víða í Evrópu.
Alþjóðleg dreifing
MANNAVEIÐAR TIL ÚTLANDA Sjónvarpsþætt-
irnir Mannaveiðar fara í alþjóðlega dreifingu
innan skamms.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 21. október 2008
➜ Sýningar
Tvær sýningar standa nú yfir í
Listasafni Íslands.
Ást við fyrstu sýn, sýning á nýjum
aðföngum úr einkasafni Reinholds
Würth.
Shirin Neshat sýning á myndbands-
verkum írönsku listakonunnar stend-
ur yfir í sal 2.
Listasafn Íslands, Fríkirkjuvegi 7, er
opið daglega nema mánudaga frá
11.00-17.00.
➜ Uppákoma
Fríða og dýrið Sýning á endurnýtan-
legu rusli sem einnig hefur fegurðar-
gildi í sér. Sýningin er hluti af alþjóð-
lega verkefninu SEEDS sem 300
sjálfboðaliðar frá 31 landi tóku þátt
í. Sýningin stendur til 24. október
og er opin virka daga frá kl. 12.00-
17.00. Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5.
➜ Ljósmyndasýningar
Stafræn skissubók Í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur við Tryggvagötu stendur
yfir sýning á verkum Sissúar. Opið
virka daga frá 12.00-19.00 og 13.00-
17.00 um helgar.
➜ Myndlist
Vinnustofumyndir Elfar Guðni
Þórðarson sýnir í sýningarsalnum
Svarti-klettur í Menningarverstöðinni,
Hafnargötu 9, á Stokkseyri. Sýningin
er opin daglega frá kl. 14.00-18.00
og stendur til 7. des.
Réttardagur Aðalheiður S.
Eysteinsdóttir sýnir verk á Glerártogi.
Sýningin er opin á opnunartíma
verslana. Glerártorg, Gleráreyrum 1,
Akureyri.
Guðný Svava Strandberg sýnir
pennateikningar og vatnslita-
myndir í Boganum í Gerðubergi,
Gerðubergi 3-5. Opið virka daga
kl. 11.00-17.00 og um helgar frá kl.
13.00-16.00.
Libia Castro og Ólafur Ólafsson
sýna í Listasafni Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Opið
alla daga 10.00-17.00, fimmtudaga
er opið til kl. 22.00.
➜ Tungumálavika
Ítalska sendiráðið í Ósló og ítölsku-
kennarar við Háskóla Íslands standa
fyrir Ítalskri tungumálaviku 20-26.
okt.
18.00 Poesia in piazza – ljóðlist
á torgi. Claudio Pozzani, skáld og
tónlistarmaður, flytur frumsamin
ljóð í Norræna húsinu.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
nokkrar af þeim myndum sem í boði eru
þriðjudags tilboð kr. 500 í SAMbíóin
á ALLAR MYNDIR alla þriðjudaga
REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS
SEX DRIVE FER FRAM ÚR
AMERICAN PIE
TOPP GRÍNMYND!
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR!
ENGIN MISKUNN. BARA SÁRSAUKI!
MARK WAHLBERG
FRÁ HÖFUNDI „THE NOTEBOOK”
N
ÝT
T!
50
0
kr
Í
SA
M
BÍ
ÓI
N
Á
ÞR
IÐ
JU
DÖ
GU
M