Fréttablaðið - 21.10.2008, Page 34
26 21. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Iceland Express-deild karla
Njarðvík-Grindavík 84-98 (50-53)
Stig Njarðvíkur: Friðrik Stefánsson 20 stig (12
fráköst, 6 varin), Logi Gunnarsson 20 (7 frák. 5
stoðs.), Hjörtur Hrafn Einarsson 15, Magnús Þór
Gunnarsson 14 (7 stoðs.), Sigurður Gunnarsson
8, Sævar Sævarsson 4, Slobodan Subasic 3.
Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 41 (14
frák., 5 stoðs.), Brenton Birmingham 16, Þorleifur
Ólafsson 14, Helgi Jónas Guðfinnsson 10 (6
stoðs.), Páll Kristinsson 8, Arnar Freyr Jónsson 5
(5 stoðs.), Guðlaugur Eyjólfsson 2, Nökkvi Már
Jónsson 2.
ÍR-Stjarnan 81-82
Skallagrímur-Snæfell 62-94
Enska úrvalsdeildin
Newcastle-Man. City 2-2
0-1 Robinho (14.), 1-1 Shola Ameobi (44.), 2-1
sjálfsmark (63.), 2-2 Stephen Ireland (86.).
STAÐAN Í DEILDINNI
Chelsea 8 6 2 0 19-3 20
Liverpool 8 6 2 0 13-6 20
Hull City 8 5 2 1 11-11 17
Arsenal 8 5 1 2 16-6 16
Man. Utd 7 4 2 1 12-4 14
Aston Villa 8 4 2 2 12-10 14
Portsmouth 8 4 1 3 9-13 13
West Ham 8 4 0 4 14-14 12
Blackburn 8 3 2 3 8-14 11
Man. City 8 3 1 4 20-14 10
WBA 8 3 1 4 7-11 10
Sunderland 8 2 3 3 7-9 9
M‘brough 8 3 0 5 7-14 9
Wigan 8 2 2 4 11-9 8
Bolton 8 2 2 4 8-10 8
Everton 8 2 2 4 12-18 8
Fulham 7 2 1 4 5-7 7
Stoke City 8 2 1 5 10-15 7
Newcastle 8 1 3 4 9-15 6
Tottenham 8 0 2 6 5-12 2
Sænska úrvalsdeildin
GIF Sundsvall-Gefle 2-3
Hannes Þór Sigurðsson lék seinni hálfleikinn
með Sundsvall og skoraði fyrra mark liðsins en
Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með liðinu.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson,
miðjumaðurinn ungi hjá Reading,
vill framlengja lánssamning sinn
hjá Shrewsbury Town en þetta
staðfesti hann í viðtali við BBC
Sport í gær. Gylfi skoraði í sínum
fyrsta leik með Shrewsbury
Town, sem leikur í fjórðu efstu
deild á Englandi, en upphaflega
átti hann að dvelja hjá félaginu í
einn mánuð.
„Þegar þú færð tækifæri til
þess að spila viku eftir viku í
byrjunarliðinu og ert að skora þá
viltu halda því áfram. Ég er ekki
búinn að fá jafn mörg tækifæri
og ég var að vonast eftir hjá
Reading og ég held að ef ég
verð áfram hjá
Shrewsbury Town
og stend mig vel
þá gæti ég átt
betri möguleika
að brjótast inn í
liðið hjá Reading
þegar ég
sný aftur
þangað,“
segir
Gylfi
Þór. - óþ
Gylfi Þór Sigurðsson, Reading:
Vill vera áfram
hjá Shrewsbury
> Veigar Páll lék á als oddi
Sigurmark Húsvíkingsins Pálma Rafns Pálmasonar gegn
Brann í fyrrakvöld nánast gulltryggði Stabæk norska titilinn
í fyrsta skiptið í sögu félagsins. Hægt er að nálgast mynd-
brot af fagnaðarlátum Stabæk-manna á heimasíðu norska
dagblaðsins Aftenposten en þar má meðal annars sjá Veig-
ar Pál Gunnarsson hella fullri fötu af vatni yfir þjálfarann
sinn, Jan Jönsson. „Mig hefur alltaf langað til þess að prófa
þetta eftir að ég sá leikmenn í NFL-deildinni
í Bandaríkjunum fagna titlum á þennan
hátt. Við höfum reyndar ekki unnið titilinn
enn sem komið er en mér líður eins og
og þetta sé í höfn. Það þarf ansi mikið að
gerast til þess að við missum titilinn í
hendurnar á Fredrikstad,“ segir Veigar
Páll í viðtali við Aftenposten.
Bryndís Sigurðardóttir verður um áramótin fyrsta íslenska konan
sem gerist alþjóðlegur FIFA-dómari en dómaranefnd Knatt-
spyrnusambands Íslands hefur tilnefnt hana til FIFA.
„Nýr FIFA-listi verður birtur um áramótin og hún verður
á honum. Við erum búnir að senda listann út og það er
ekki búið að staðfesta hann en það er alltaf gert,” segir
Magnús Már Jónsson sem er starfsmaður dómaranefndar.
Hann segir að verið sé að vinna í því að fjölga konum í
stéttinni. „Við erum með tvær aðrar í sigtinu en þær eru
bara of ungar ennþá,“ segir Magnús.
Bryndís sjálf var ánægð með að heyra þessar
fréttir.
„Þetta er mjög spennandi og ég bíð spennt ef af
verður. Markmiðið er að komast sem lengst,“ sagði
Bryndís og hún er sátt við tímabilið. „Það hefur
gengið mjög vel í sumar. Þetta er búið að vera krefj-
andi og skemmtilegt sumar. Þetta hefur bara legið
upp á við,“ segir Bryndís sem var meðal annars á
línunni í bikarúrslitaleik kvenna á dögunum.
Bryndís stökk til í vetur þegar hún sá auglýst dómaranámskeið fyrir
konur en Gylfi Þór Orrason sá um það.
„Ég sá auglýst námskeið í vor. Ég er búin að vera að spila lengi
en ætlaði ekki að halda því áfram. Mér fannst þetta vera sniðug
hugmynd til að halda áfram að vera innan fótboltans,“ segir
Bryndís sem hefur einbeitt sér að vera aðstoðardómari en það
gæti verið að breytast því hún hefur áhuga á að dæma meira.
„Ég hef verið lítið í að dæma leiki en maður fer kannski að
huga að því með vorinu að fara að prófa að flauta eitthvað,“
segir Bryndís. Hún er reyndar svolítið einmana í þessari
miklu karlastétt en vonast til að það breytist fljótt.
„Við vorum þrjár konur sem byrjuðum í þessu í sumar.
Svo meiddist ein og önnur er komin til útlanda. Ég er því
bara ein eftir en það þarf bara að auglýsa þetta betur upp.
Þegar ég hitti einhverjar gamlar sem hafa spilað fótbolta
þá ýja ég þessu að þeim,“ segir Bryndís sem mælir með
því að konur taki upp flautuna.
„Ég hvet fleiri stelpur að koma að dæma. Þetta er
mjög skemmtilegt.“
BRYNDÍS SIGURÐARDÓTTIR: VERÐUR FIFA-AÐSTOÐARDÓMARI UM ÁRAMÓTIN FYRST ÍSLENSKRA KVENNA
Búið að vera krefjandi og skemmtilegt sumar
FÓTBOLTI Einn leikur fór fram í
ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld
þar sem Newcastle og Manchester
City skildu jöfn, 2-2.
Leikurinn fór fjörlega af stað á
St. James‘ Park leikvanginum og
það dró til tíðinda strax á 12. mín-
útu þegar Habib Beye, varnar-
maður Newcastle, fékk að líta
rautt spjald fyrir tæklingu á City-
manninum Robinho innan víta-
teigs heimamanna. Leikmenn
Newcastle mótmæltu harðlega
enda virtist Beye fara í boltann
áður en hann fór í Robinho en
dómarinn Rob Styles var viss sinni
sök rak Beye út af og dæmdi víta-
spyrnu. Hinn brasilíski Robinho
fór sjálfur á vítapunktinn og skor-
aði af öryggi, 0-1.
Leikmenn Newcastle misstu þó
ekki móðinn þrátt fyrir mótlætið
og á 44. mínútu náðu þeir að jafna
metin þegar boltinn barst til fram-
herjans Shola Ameobi eftir klaufa-
gang í vörn City og hann skoraði
af stuttu færi, 1-1 en skömmu
síðar var flautað til hálfleiks.
Lukkudísirnar gengu svo til liðs
við Newcastle á 63. mínútu þegar
Richard Dunne, varnarmaður
City, skoraði sjálfsmark sem flest-
ir framherjar hefðu verið stoltir
af að skora í mark andstæðings.
Föst innanfótarafgreiðsla efst í
markhornið en eins og fyrr segir í
vitlaust mark og Newcastle komið
með forystu, 2-1.
Flest benti til þess að Newcastle
myndi halda þetta út þegar Step-
hen Ireland jafnaði leikinn fyrir
City á 86. mínútu, 2-2, eftir laglegt
samspil og þar við sat.
Jafnteflið þýðir að City færist
upp í tíunda sæti deildarinnar en
Newcastle, sem hefur nú aðeins
náð í tvö stig af síðustu átján stig-
um mögulegum, situr áfram í næst
neðsta sætinu.
- óþ
Newcastle var nálægt því að landa sigri gegn Man. City þrátt fyrir að vera einum færri frá tólftu mínútu:
Tíu leikmenn Newcastle héldu velli
UMDEILT ATVIK Leikmenn New-
castle mótmæltu harðlega þegar
Habib Beye fékk að líta rautt spjald
fyrir þessa tæklingu á Robinho.
Sjónvarpsupptökur sýndu að Beye
kom við boltann. NORDIC PHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Páll Axel Vilbergsson,
fyrirliði Grindavíkur, er gjörsam-
lega óstöðvandi þessa daganna.
Kappinn er kominn með 80 stig, 29
fráköst og 10 stoðsendingar í
fyrstu tveimur leikjum Grindvík-
inga og hefur hitt úr 13 af 18
þriggja stiga skotum sínum í þess-
um tveimur sigurleikjum liðsins.
Páll Axel hitti úr 15 af 22 skotum
sínum í 98-84 útisigri á Njarðvík í
gær og var með 41 stig, 14 fráköst
og 5 stoðsendingar.
Njarðvík byrjaði betur í gær og
komst mest átta stigum yfir í
öðrum leikhluta en Páll Axel hélt
sínum mönnum inni í leiknum og
Grindavík var síðan komin þrem-
ur stigum yfir í hálfleik, 50-53.
Njarðvíkingar reyndu allt til að
stoppa Pál Axel en um leið losnaði
um aðra Grindvíkinga og þá sér-
staklega Brenton Birmingham og
Helga Jónas Guðfinnsson sem
skoruðu 19 af 16 stigum sínum í
seinni hálfleik. Grindavík seig
síðan fram úr og sigur liðsins var
nokkuð öruggur í seinni hálfleik.
„Þetta var betra en síðast hjá
okkur. Það vantar enn svolítið upp
á varnarleikinn. Hann kom aðeins
í seinni hálfleik en hann var skelfi-
legur í fyrri hálfleik. Við erum
með fullt af vopnum sem geta sett
boltann í körfuna en við þurfum
bara að hysja aðeins upp um okkur
í vörninni,“ sagði Páll Axel Vil-
bergsson, fyrirliði Grindavíkur,
eftir leik. „Þetta er alls ekki spurn-
ing um mig heldur er þetta spurn-
ing um hvernig liðið er að spila.
Við erum sæmilega sáttir og það
er bara aukatriði hvort ég sé eitt-
hvað góður,“ sagði Páll Axel hóg-
vær í leikslok en það er ljóst að
Njarðvíkingum fannst það ekkert
aukaatriði að Páll Axel raðaði
niður skotunum í gær en flest
þeirra tók hann úr mjög erfiðri
aðstöðu en það skipti litlu. Páll
Axel setti að meðaltali niður 8 af
10 þriggja stiga skotum sínum.
„Eins og sagt er á góðri íslensku
þá er hann í bullinu. Hann er bara
funheitur þessa daganna og það
léttir okkur rosalega lífið í sókn-
inni þegar hann er svona heitur.
Það liggur við að aðrir geti verið í
þriðja gír á meðan hann er í
fimmta gírnum,“ sagði Friðrik
Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur,
um Pál Axel eftir sigurinn í Njarð-
vík í gær. „Svo er þetta bara spurn-
ing um að ná upp liðsvörninni eins
og við náðum í seinni hálfleik.
Vörnin í fyrri hálfleik var léleg,
þar sem við fórum og skoruðum
og biðum síðan eftir að fara í sókn.
Í seinni hálfleik hertum við vörn-
ina og þá var þetta í fínu lagi,“
sagði Friðrik en Njarðvík hékk
lengi í Grindvíkingum og úr varð
baráttuleikur þó svo að gestirnir
úr Grindavík hafi lengstum haft
frumkvæðið.
„Mér fannst margt í þessum leik
þrælgott hjá báðum liðum. Njarð-
vík var líka að spila flottan bolta
og þeir eru mun sterkari en fólk
gerir sér grein fyrir. Við erum
með fína breidd og ég held að við
höfum tekið þetta á breiddinni,“
segir Friðrik en fram undan er
leikur á móti Tindastól sem hefur
einnig unnið tvo fyrstu leiki sína á
tímabilinu. „Það verður hörkuleik-
ur og við þurfum að eiga toppleik
til þess að taka þá,“ sagði Friðrik
að lokum.
Friðrik Stefánsson (20 stig, 12
fráköst, 6 varin) var besti maður
Njarðvíkinga í gær og þeir Hjört-
ur Hrafn Einarsson (15 stig), Logi
Gunnarsson (20 stig, 7 fráköst, 5
stoðsendingar) og Magnús Þór
Gunnarsson (14 stig, 7 stoðsend-
ingar) áttu líka ágæta spretti en
liðið þarf betri framlög hjá fleir-
um.
Hjá Grindavíki var Páll Axel
stórskostlegur, Brenton var mjög
góður í seinni hálfleik og Helgi
Jónas Guðfinnsson er líka að kom-
ast í sitt besta form sem eru góðar
fréttir fyrir Grindvíkinga.
ooj@frettabladid.is
Páll Axel er bara í bullinu
Páll Axel Vilbergsson setti á svið sýningu í Ljónagryfjunni í gærkvöldi og skoraði 41 stig í 98-84 sigri
Grindavíkur á Njarðvík. Njarðvíkingar sýndu allt annan og betri leik en á móti FSU en það dugði skammt.
FRÁBÆR Grindvíkingurinn Páll Axel Vilbergsson fór á kostum í gærkvöld og skaut
Njarðvíkinga algjörlega í kaf með 41 stigi í 84-98 sigri Grindvíkinga í Ljónagryfjunni í
Njarðvík í gærkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON