Fréttablaðið - 21.10.2008, Side 38
30 21. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT 2. kerra, 6. persónufornafn,
8. hamfletta, 9. gogg, 11. hreyfing, 12.
dramb, 14. gort, 16. slá, 17. húsfreyja,
18. pota, 20. borðaði, 21. maður.
LÓÐRÉTT 1. stjórnarumdæmis, 3.
frá, 4. garðplöntutegund, 5. hvíld, 7.
tilgáta, 10. aur, 13. hrós, 15. höggva,
16. stormur, 19. rykkorn.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. vagn, 6. ég, 8. flá, 9. nef,
11. ið, 12. stolt, 14. grobb, 16. rá, 17.
frú, 18. ota, 20. át, 21. karl.
LÓÐRÉTT: 1. léns, 3. af, 4. glitbrá, 5.
náð, 7. getgáta, 10. for, 13. lof, 15.
búta, 16. rok, 19. ar.
„Það er Maður lifandi. Fari ég
eitthvert þá fer ég þangað. Það
er eitthvað svo hollur og góður
matur þar og manni líður svo
vel. Annars er það bara heimil-
isbitinn.“
Magga Stína, tónlistarkona.
„Mér finnst þetta rosalega stór viðurkenning því þetta
er í fyrsta skipti sem þeir veita þessi verðlaun fyrir
fatahönnun,“ segir Steinunn Sigurðardóttir fatahönn-
uður sem hlýtur hin sænsku Söderbergs-verðlaun í
ár. Steinunn hefur að sögn dómnefndar meðal annars
fært Norðurlöndunum virtan fulltrúa á hinu
alþjóðlega tískusviði með innblæstri frá íslenskri
náttúru, en Söderbergs-verðlaunin eru ein
stærstu hönnunarverðlaun heims, með
1.000.000 sænskar krónur í verðlaunafé.
„Það er ótrúlega skemmtilegt að verð-
launin skuli fara til Íslendings. Eftir
atburði síðustu mánaða hefur það breyst
hvernig maður lítur á þau. Mér finnst
verðlaunin færa mikla von og minna á
að við eigum ekki að leggja árar í bát.
Mér finnst rosalega mikilvægt að það
sé lögð meiri áhersla á nýsköpun á
Íslandi og mér finnst þessi verðlaun vera
gott dæmi um það,“ segir Steinunn. Hún
mun taka við verðlaununum við hátíð-
lega athöfn 4. nóvember í Röhsska-
safninu í Gautaborg, þar sem haldin
verður sýning á hönnun Steinunnar í
kjölfarið.
Steinunn er nú í óðaönn að undirbúa
næstu línu sem verður tilbúin í febrúar.
Hún segist ætla að koma verðlauna-
fénu inn í fyrirtækið og segist óhjá-
kvæmilega finna fyrir afleiðingum
kreppunnar. „Það eru færri sem leggja
út í að kaupa af nýjum hönnuðum, fólk
hefur minni kaupmátt og pantanirnar
eru ekki eins stórar, en maður verður
að halda sínu striki og vona það
besta.“ - ag
Fær eina milljón sænskar
Ergelsið í þjóðfélaginu og pirringur
út í útrásarvíkinga sem eiga sér
jeppa sem stöðutákn á sér ýmsar
hliðar og bitnar meðal annars á
starfsfólki Tinnu Gunnlaugsdótt-
ur þjóðleikhússtjóra. Þannig hefur
Gylfi Ingólfsson húsvörður þar
orðið var við pirring í sinn garð í
umferðinni en hann festi kaup á
glæsilegum Dodge Durango fyrir
um ári og greiddi fyrir
bifreiðina af sparnaði
sínum. Áður ók hann
um á Ford Mondeo
og þá örlaði ekki fyrir
því að menn væru
að flauta á hann í
umferðinni eins og
nú er raunin.
Fyrir um tveimur árum var athyglis-
verð hljómsveit við bílskúrsæfingar.
Æft var í bílskúr trymbilsins frábæra
Birgis Baldurssonar en annan
hljóðfæraleik önnuðust meðal
annarra auðmennirnir Tryggvi
Jónsson og Sindri Sindrason auk
þess sem Bjarni Ármanns- son
greip oftar en ekki
um míkrófóninn. Var
hljómsveitin enda köll-
uð Biggi og auðkýf-
ingarnir en hún hefur
nú lagt upp laupana og
mun Biggi hafa látið
þess getið í góðu
gríni að kæmi
hún saman aftur
yrði hún líkast til
kölluð Biggi and
the Hobos.
Tónleikar Bubba Morthens í
Kaupmannahöfn um helgina þóttu
heppnast með miklum ágætum.
Fullur salur Íslendinga skemmti sér
vel og sjálfur var Bubbi hæst-
ánægður með útkomuna. Ástand
efnahagsmála á Íslandi hafði
vitanlega áhrif á þá tónleikagesti
sem gerðu sér ferð til Kaupmanna-
hafnar. Og reyndar sömuleiðis á
Bubba og hans fylgdarlið. Þannig
var Páll Eyjólfsson, umboðsmaður
hans, ekki par hrifinn
þegar hann þurfti að
borga sextán þúsund
íslenskar krónur fyrir
kassa af sódavatns-
flöskum sem
tónlistarmenn-
irnir dreyptu á
baksviðs. - jbg,
hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Það telst nú varla til tíðinda að
maður taki sér blogghlé. Þegar ég
sá tölvupóstinn minn í morgun
blöskraði mér hins vegar svo leið-
indin, illskan og hótanirnar að ég
spurði sjálfan mig: Til hvers er ég
að þessu?“ segir Árni Snævarr,
bloggari og fyrrverandi fréttamað-
ur, en hann starfar nú fyrir Sam-
einuðu þjóðirnar í Brussel – upp-
lýsingamiðstöð fyrir Norðurlönd.
Árni hefur nú um skeið bloggað
undir regnhlíf Eyjunnar og vakið
athygli fyrir snarpa pistla. Síðast
skrifaði hann um viðtal Dorritar í
nýjum Sunnudagsmogga og gagn-
rýndi harðlega það sem fram kom
í máli Dorritar, meðal annars að
fólk yrði að sýna nægjusemi sem
honum þótti í hróplegri mótsögn
við þær aðstæður sem Dorrit býr
við. Pistillinn heitir „Vertu heima
að telja demantana – Eyju-bréf til
Dorrit Moussaieff“. Skömmu síðar
tilkynnti Árni að hann væri hættur
að blogga í bili. Mikil viðbrögð
hafa orðið á athugasemdakerfi
hans og fjöldi manna, þeirra á
meðal Illugi Jökulsson, Árni
Matthíasson og Páll Ásgeir
Ásgeirsson, hafa hvatt Árna til að
halda sínu striki.
„Fólk má alveg rífast og skamm-
ast eins og því sýnist en ég má líka
alveg kjósa að halda kjafti og
hætta að blogga. Það rifjuðust upp
fyrir mér orð Össurar Skarphéð-
inssonar: „Hvar ætlar þessi maður
að fá vinnu?“ sem sögð voru í gríni
í kvöldverðarboði sem við báðir
sátum. Össur hefur svo sannarlega
ekki haft í hótunum við mig, enda
gott á milli okkar og það hefur eng-
inn annar pólitíkus verið að gera
heldur. Ég renndi yfir pistlana
mína í kjölfarið og fannst ég helst
til mikill nöldurseggur. Ég meina,
að skamma Dorrit? Hvað næst,
Mjallhvíti og dvergana sjö? Hún
hefur engin áhrif þessi sómakona
og ekkert gert af sér nema einna
helst að hafa vondan smekk á karl-
mönnum. Þannig að ég sagði bara
skammastu þín, ljóti strákur. Ég
ætla bara að taka mér frí frá
kvarti, kveini og nöldri og taka
þátt í samstöðu þjóðarinnar og
læra mannasiði og kurteisi í leið-
inni. Enda hvernig getur maður
kvartað þegar maður hefur slíka
snillinga eins og Davíð Oddsson og
Ólaf Ragnar til að stjórna sér?“
jakob@frettabladid.is
ÁRNI SNÆVARR: PISTILL UM DORRIT GERÐI ÚTSLAGIÐ
Bloggari flýr leiðindi,
illsku og hótanir á Netinu
SKAMMASTU ÞÍN, LJÓTI STRÁKUR Þetta sagði Árni við sjálfan sig þegar hann las yfir pistil sinn um Dorrit. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
„Fyrir okkur talnaspekinga koma
þessi átök milli Jóns Ásgeirs og
Davíðs Oddssonar ekkert mikið á
óvart því tölurnar þeirra eru
algjörar andstæður,“ segir útgef-
andinn, spekingurinn og sund-
garpurinn Benedikt S. Lafleur.
Um næstu mánaðamót kemur út
ansi merkileg bók þar sem farið
verður yfir tölur fræga fólksins
og almenningi gefst jafnframt
tækifæri á að fá skyndikúrs í núm-
eralógíu. Þar kemur meðal annars
fram að Jón Ásgeir hefur líftöluna
77 sem er umlukin framkvæmda-
gleði og útrás en Davíð er 44; tala
íhaldssemi og sparnaðar.
Benedikt vill þó ekki meina að
bókin sé tímaskekkja þótt blíðum
höndum sé farið yfir marga af
mestu áhrifavöldum síð-
ustu vikna. Þannig er
meðal annars sagt um
Björg ólf Guðmunds-
son að hann vinni
fyrir heildina og
skapi auð sem
hjálpi öllu
samfélag-
inu. Útreikn-
ingar Bene-
dikts á tölum
fræga fólks-
ins benda
jafnframt til
þess að bæði
Jón Ásgeir og
Björgólfur Thor
Björgólfsson hafi
sömu líftölu sem er
77. Þeir séu því tölubræður. Í
bókinni má einnig finna
talnaspeki leikhúshjónanna
Egils Ólafssonar og Tinnu
Gunnlaugsdóttur,
Bjarkar Guðmunds-
dóttur og Ágústu
Evu Erlendsdótt-
ur. En fyrsti maðurinn er hins
vegar hinn umdeildi seðlabanka-
stjóri; Davíð Oddsson. Samkvæmt
númeralógíu Benedikts er Davíð
með fæðingartöluna 22 og um
hana er sagt: „Þessari tölu er ætlað
að byggja upp kærleiksríkt sam-
félag í félagslegum anda […] hún
er mikil hjálparhella og finnur
auðveldlega lausn á vandamál-
um.“
Benedikt þurfti reyndar aðeins
að breyta bókinni í ljósi nýlegra
atburða og hefur bætt við spádómi
um árið 2009. „Það ár verður upp-
gjörsár. Og það verður mikil
spenna í ríkisstjórnarsamstarfinu.
Enginn skyldi láta koma sér á
óvart þótt það yrðu jafnvel ríkis-
stjórnarslit,“ segir Benedikt. -fgg
TALNAGLÖGGUR
Benedikt S. Lafleur
hefur helst verið í frétt-
um fyrir misheppnaðar
tilraunir til að synda yfir
Ermasund. Nú gefur hann
út bók um númeralógíu fræga
fólksins.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Colin Powell
2 Lay Low
3 Dóra María Lárusdóttir
MIKILL HEIÐUR Stein-
unn segir verðlaunin
færa mikla von og vera
gott dæmi um hve
nýsköpun á Íslandi
skiptir miklu máli.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARALDUR
JÓNASSON
Davíð og Jón Ásgeir með andstæðar tölur
Veljum íslenskt