Fréttablaðið - 28.10.2008, Blaðsíða 40
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Þetta líf er svo skrykkjótt og ófyrirsjáanlegt að jafnvel
gengi krónunnar virðist vera
taminn flokksgæðingur í saman-
burði. En samt sem áður hefði ég
átt að hafa séð fyrir hvernig færi
fyrir bönkunum. Lífið var nefni-
lega búið að kenna mér eina lexíu
en svo hef ég greinilega fallið
þegar spurt var út í hana til
prófs.
ÉG vorkenndi nefnilega alltaf
nördunum þegar ég var í gagn-
fræðaskóla. Ég man hvernig
mesti töffarinn sagði nördinum
mikla að halda á skólatöskunni
fyrir sig milli stofa. Ekki nóg
með það heldur leyfði hann sér
að taka í nördseyrað og segja af
honum fíflasögur, viðstöddum til
mikillar skemmtunar. „Nei, ekki
gera þetta, svona hættu,“ hvísl-
aði greyið meðan á þessari aftöku
andans stóð.
TÍU árum síðar sá ég leiðir þess-
ara fornu bekkjarfélaga liggja
saman aftur. Þá var nördinn enn
og aftur að hlýða töffaranum
gamla sem sagði: „Aðeins til
hægri, áfram, stopp!“ Hinn gamli
nörd stöðvaði þá rándýran Bens-
inn, steig út og sagði: „Verðið þið
ekki fljótir að þessu?“ Hann var
nefnilega önnum kafinn í tölvu-
bransanum. Gamli töffarinn
sagðist nú halda það og byrjaði
að skrúfa hjólin af. Síðan veit ég
ekki hvað lífið gerði við þá.
HVERNIG gat mér yfirsést,
eftir þessa lexíu, að einn daginn
ætti samband mitt og útrásarvík-
inganna eftir að taka stakkaskipt-
um. Það kom nú aldrei fyrir að
Björgólfur eða nokkur þeirra
tæki í eyrað á mér eða bæði mig
um að bera skjalatöskuna niður í
banka. En ég öfundaði þessa
menn fram úr hófi, satt best að
segja. Sérstaklega þegar þeir
voru að skjótast milli staða á
einkaþotu meðan ég var að velta
því fyrir mér hvort ég kæmist til
Lundúna með lággjaldaflugfé-
lagi. Eins njóta stórefnamenn oft
mikillar kvenhylli og við sem
höfum úr minna að moða hljótum
að öfunda þá af þeim sökum.
EN nú horfi ég á hvern auðkýf-
inginn á fætur öðrum með
áhyggjur heimsins, eða alla vega
landsins, á herðum sér. Það kræl-
ir ekkert á öfundinni hjá mér. Það
hlakkar heldur ekki í mér, síður
en svo; Þórðargleði er ekki mín
kátína. En áhyggjur mínar vegna
smá yfirdráttar verða allt í einu
hjákátlegar.
Töffarinn og
nördinn
8.59 13.11 17.22
8.53 13.56 16.58
Í dag er þriðjudagurinn
28. október, 302. dagur ársins.
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is