Fréttablaðið - 18.11.2008, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 18.11.2008, Blaðsíða 8
8 18. nóvember 2008 ÞRIÐJUDAGUR Björk Guðmundsdóttir boðaði til vinnufunda 12. og 19. október síðastliðinn í samvinnu við Háskólann í Reykjavík, Klak, nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins, og vefinn nattura.info. Um hundrað sérfræðingar á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar réðu ráðum sínum og gerðu drög að átta tillögum um úrbætur í jafnmörg- um málaflokkum. Fréttablaðið birtir tillögurnar næstu daga. Nánari upplýsingar má finna á nattura.info. Aukin samvinna hönnuða og fyrirtækjarekenda Leiða þarf hönnuði og fyrirtæki mismunandi landsvæða saman og efla samstarf þeirra við atvinnu- þróunarfélög, nýsköpunarsjóði og fjárfesta. Aukið samstarf og sam- ræða stuðlar að gagnkvæmum skilningi, markvissum lausnum á vandamálum og skýrleika í gerð framtíðaráforma. Kynna þarf betur hlutverk og mikilvægi hönn- unar í nýsköpun. Hönnun er ekki einungis útlitshönnun er kemur síðar til leiks heldur getur hún virkað sem nauðsynlegur hvati í vöru og þjónustuþróun. Hún er skapandi þáttur í gerð viðskipta- hugmynda er getur haft marföld- unaráhrif. Því er brýnt að hugvit, þekking og kunnátta hönnuða séu virkjuð í upphafi rannsókna og vinnsluferla þegar grundvallar- ákvarðanir eru teknar varðandi hvert verkefni og mögulega fram- tíð þess. Þekkt ensk rannsókn (The Impact of Industrial Design Effectiveness on Corporate Fin- ancial Performance) á vægi hönn- unar í atvinnurekstri hefur sýnt að þau fyrirtæki sem nota hönnun markvisst frá frumstigum hafa skilað betri afkomu og hagnaði. Auk þess eru hönnuðir mikilvæg- ir tengiliðir er snerta marga fleti svo sem þróunar-, framleiðslu-, markaðs- og söluþætti. Mikilvægt er að vita hvernig landið liggur og greina vel hvar greiðfærar leiðir liggja áður en lagt er á stað. Efling framleiðslumenningar Skapa þarf öflug tengsl erlendis á sviði fræðiþekkingar ekki síður en á sviðum framleiðslu- og verk- þekkingar og stuðla að samstarfi við hönnunarfyrirtæki sem búa að langri reynslu og sérþekkingu. Framleiðslumenning hér á landi er enn smá í sniðum og þarfnast uppbyggingar. Greina þarf mismunandi þarf- ir vöruhönnunar af þekkingu, t.d. þarfnast ullarframleiðandi ólíkr- ar nálgunar en hugbúnaðar- og tækjaframleiðandi. Leiðin er löng frá hugmynd til framkvæmdar og skortur er á haldgóðri þekk- ingu einstakra þátta ferlisins hér á landi. Þar sem fjölbreytileikinn innan hönnunarferla er mikill þarf að hlúa að öflugu tengslaneti við erlenda aðila til þess að mögulegt sé að fullvinna ýmsar iðnaðarvör- ur hér á landi með góðum árangri. Stuðla ætti að stofnun verkfræði- skrifstofa er leysa flókin hönn- unarvandamál og endurhugsa aðkomu fjárstuðnings að sprota- fyrirtækjum hönnuða til að greiða fyrir og efla vöxt þeirra. Með auknum stuðningi og skilningi verður með tímanum hægt að full- vinna iðnaðarvörur hér á landi og greiða farvegi fyrir fjölbreytt hönnunarfyrirtæki. Markviss markaðssetning Skilgreina þarf séreinkenni íslenskrar hönnunar sem eru sprottin út frá menningu okkar og landsháttum þ.e. að finna íslenska hljóminn. Enn er lítið til af sér- tækri íslenskri hönnun en mögu- leikarnir eru margir og áhugi heimsbyggðarinnar mikill. Fanga þarf athygli erlendis út frá sérstöðu okkar og fylgja mark- visst eftir heildrænni markaðsetn- ingu íslenskrar hönnunar. Jafn- framt þarf hugsa vel um tengslin á milli framsækinnar hönnunar og markaða innanlands sem og erlendis. Styrkja þarf markaðsetningu á íslenskri hönnun erlendis með stofnun umboðsfyrirtækja sem sinna fjölbreyttum verkefnum. Hönnunarmiðstöð og Útflutn- ingsráð eru þegar að taka fyrstu skrefin í þá átt en betur má ef duga skal. Íslensk hönnun framtíðarinnar Stofna þarf vinnuhóp sem setur fram á greinargóðan hátt veik- leika jafnt sem styrkleika innan hönnunar á Íslandi. Verkefni hans væru m.a. að greina sérstöðu ein- stakra landsvæða og Íslands sem heildar, stuðla að öflugum tengsl- um innanlands jafnt sem alþjóða- tengslum, efla samvinnu hönnuða og fyrirtækja, skapa framtíðarsýn íslenskrar hönnunar og staðsetja hana innan markaða erlendis. Markmið vinnuhópsins verður að koma því einstaka sem Ísland býr yfir inn á alheimskortið. Að finna hljóminn í íslenskri hönnun ÍSLENSK HÖNNUN Í HNOTSKURN Íslensk hönnun býr yfir skapandi afli sem getur styrkt íslenskt sam- félag og stuðlað að fjölbreyttu atvinnulífi. Öll nýsköpunarverk- efni þarfnast hugvits og þekkingar hönnuða. Mikilvægt er að hönn- uðir komi fljótt að verkefnum hvort sem það er hjá fyrirtækjum, hinu opinbera eða á öðrum vett- vangi. Ríkjandi tilhneiging hefur verið að fá hönnuði of seint inn í ferli í stað þess að virkja reynslu þeirra á frumstigum þróunar vöru og verkefna. Þegar eru í gangi mörg áhugaverð verkefni þar sem hönnuðir vinna að verkefnum sem tengjast íslenskri arfleið eins og söfnum, landbúnaðar- og matarmenningu, ferðaþjónustu og iðnframleiðslu. Mikilvægt er að styðja vel við þessi verkefni og leiða saman hönnuði, fjárfesta, viðskipta- og markaðsaðila til þess að skapa ný og margbreyti- leg tækifæri á Íslandi. Halla Helgadóttir, fram- kvæmdastjóri Hönnunarmið- stöðvar Íslands, og Sigurður Þorsteinsson iðnhönnuður höfðu umsjón með samræðu og vinnslu útgangspunkta á vinnuborði um hönnun. NEISTAR AF NEISTA: Hönnun á Íslandi Grein 5 af 8 3.990,- 1.290,- 4.990,- 2.990,- 1.490,- 1.290,- 3.490,- 2.990,- 3.990,- 2.990,- KONGÓ, AP Áfram er barist í Kongó þrátt fyrir að Laurent Nkunda uppreisnarleiðtogi hafi lofað Sameinuðu þjóðunum að virða vopnahlé. Um 250 þúsund manns hafa hrakist að heiman síðan átökin hófust í ágúst síðastliðnum. Í austurhluta landsins eru heilu þorpin nánast orðin mannlaus. - gb Áfram barist í Kongó: Flóttamönnum ekki hleypt inn 1. Hvaða kvikmynd fékk flest verðlaun á Edduverðlaunahá- tíðinni? 2. Hvaða íslenski sjónvarps- þáttur gæti hugsanlega orðið tölvuleikur á næstunni? 3. Hver hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskr- ar tungu? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 26 Opinber heimsókn Jørgen Niclasen, utanríkisráðherra Færeyja, er hér í opinberri heimsókn með konu sinni í boði Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur utanríkisráðherra. Í dag funda þau um framkvæmd og þróun fríverslunarsamnings Íslands og Færeyja, auk þess að ræða gjald- eyrislán Færeyja til Íslands. UTANRÍKISMÁL VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.