Fréttablaðið - 18.11.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Í dag er þriðjudagurinn 18. nóv-
ember, 323. dagur ársins.
Í OKTÓBER var Davíð Oddsson
seðlabankastjóri spurður að því í
Kastljósi hvort til greina kæmi að
hann léti af embætti. Því svaraði
Davíð: „Það hefur enginn nefnt
það við mig en ég hef bara svona
séð þetta en ef ég teldi mig hafa
unnið til þess þá væri það sjálf-
sagt.“
ALBERT Guðmundsson sagði af
sér ráðherraembætti 1987 vegna
greiðslna sem fyrirtæki hans fékk
frá Hafskipum og höfðu ekki verið
taldar fram. Guðmundur Árni
Stefánsson sagði af sér embætti
sem heilbrigðisráðherra árið 1994
eftir harða gagnrýni á embættis-
færslur. Árni Johnsen segir af sér
þingmennsku 2001 og var í kjöl-
farið dæmdur fyrir auðgunarbrot.
Þórólfur Árnason borgarstjóri tók
á sig syndir olíufélaganna árið
2004 og sagði af sér. Bjarni Harð-
arson sagði svo af sér þing-
mennsku eftir að hafa orðið á
tæknileg mistök í bókstaflegri
merkingu. Guðni Ágústsson fylgdi
svo á eftir Bjarna og segir af sér
formennsku í Framsóknarflokkn-
um og þingmennsku vegna þess að
hann taldi að endurreisn yrði ekki
í flokknum án breytinga á for-
ystu.
ROBERT Z. Aliber prófessor, sem
hefur sérhæft sig í kreppum, segir
að hvergi í heiminum hafi jafn
alvarleg bankakreppa riðið yfir og
hér stefnir í. Staðan hafi verið
með ólíkindum og efnahagur bank-
anna var um það bil tólf sinnum
meiri en landsframleiðslan. Ótrú-
legt væri að enginn hefði tekið í
taumana af þeim sem áttu að bera
ábyrgð, svo sem eigendur, eftir-
litsaðilar eða ráðamenn. Enginn
hefði hlustað á varnaðarorð.
ÞAÐ hriktir í stoðum íslensks
samfélags. Hvað gerir Geir
Haarde? Hann stofnar nefnd um
Evrópumál, leyfir sér að vefengja
fullyrðingu fréttamanns um að
þjóðin hafi beðið ómælanlegan
álitshnekki með uppgerðarflónsku
og dónaskap. Hann sér enga
ástæðu til að segja af sér, ekki
frekar en Árni Mathiesen, Björg-
vin G. Sigurðsson viðskiptaráð-
herra og Jónas Fr. Jónsson, for-
stjóri Fjármálaeftirlitsins. Allir
líta þeir á sig sem áhrifamenn og
leyfa sér að neita að svara eða láta
eins og svalir tappar í tónlistar-
blöðum. Ingibjörg Sólrún sér held-
ur enga þörf á afsögnum og finnst
krafan jafngilda því og að kasta
skylmingaþrælum fyrir ljón. Ætli
við séum þá ekki lýðurinn sem vill
brauð og leika.
EF til vill gæti Framsóknarflokk-
urinn náð fylgi í næstu kosningum
með slagorðinu „Framsókn, flokk-
ur sem axlar ábyrgð“. Að minnsta
kosti gerir það enginn annar.
Blind og geld
10.07 13.13 16.18
10.09 13.58 15.46
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
VW Polo Comfortline 1,4
Nýskráður júní 2007
Beinskiptur, ekinn 33.000 km.
Nýskráður maí 2007
Beinskiptur, ekinn 47.000 km.
Nýskráður júní 2007
Beinskiptur, ekinn 49.000 km.
Ásett verð:
1.560.000
Ásett verð:
2.190.000
Ásett verð:
1.850.000
Skoda Octavia 1,9 TDI VW Golf Comfortline 1,6
Sjáðu auglýsinguna á www.heklanotadirbilar.is
FRÁBÆRT TILBOÐ Á BÍLALEIGUBÍLUM
Nú bjóðum við vel með farna bílaleigubíla á kjörum
sem bjóðast ekki annars staðar: Allir bílaleigubílar
með 5 ára ábyrgð frá skráningardegi. Við erum í samn-
ingaskapi um frábært verð á næstum nýjum notuðum
bílum. Komdu á Klettháls og kynntu þér vandaða
og vel með farna notaða bíla af ýmsum gerðum.
Við erum í samningaskapi!
Opið 10–18 virka daga | Opið 12–16 laugardaga
Kletthálsi sími 590 5044 www.heklanotadirbilar.is notadirbilar@hekla.is