Tíminn - 28.02.1982, Page 6

Tíminn - 28.02.1982, Page 6
V'-Q 'irift/ I -i-J-íf’f t Ú+ ^Upe ÖUlfiV-J^ Sunnudagur 28. febrúar 1982 fólk ílistum LEIRBURÐUR RÉTTFEÐRAÐUR — athugasemd frá Elíasi Mar „Frelsisljós Bandaríkjanna” — Haraldur Blöndal sækir kerti sitt ■ 1 „Tfmanum” 18. þ.m. birtist vísnaþáttur i umsjá Ólafs bónda Hannibalssonar i Selárdal vestra. Eru þar m .a. rifjaðar upp fáeinar vísur eignaðar Steini Steinarr, liklega að réttu lagi — með einni undantekningu þó. Olafi farast svo orð, stafrétt til- vitnað: „Svipaðs eðlis er visa, sem Steinn kvaö í Paris, er hann var þar á ferð skömmu eftir heims- styrjöldina, svo sem slettan „vis a vis” ber meö sér, en það merkir á þarlendra máli „andspænis”. Standa disir vis a vis. Er von að bisum standi. En mér viö prlsum hugur hrýs, hér 1 þvisa landi”. Þar sem ég nii blaðaði i „Tim- anum” i fljótheitum og rak augun i þetta visukom kom hún mér harla kunnuglega fyrir sjónir, en þóttist strax sjá, aö hún væri ekki með öllu rétt eftir höfð. Nú má náttúrlega segja, að leirburður eigi ekki annað betur skilið en að farið sé rangt með hann, þvi að þá verði hann bara enn meiri leirburður og „betri” sem slfkur. Hitter svo annað mál, að það er nokkur ábyrgðarhluti að eigna góöskáldum þjóöar- innar, lifs eöa liðnum, þessháttar yrkfngar — einkum þó liðnum skáldum, sem eiga að öllum jafni óhægt um vik að bera hönd fyrir höfuð sér. Visan er nefnilega ekki eftir Stein Steinarr, og skal ég nú til gamans segja dálitla sögu sem ættiað taka af ölltvímæli um það. • Að kvöldi til, i mailok 1949, sat ég ásamt Karli Isfeld á konditoríi einu i Stokkhólmi, nánar til tekið við sjálva Kungsgatan. Við vorum vist búnir aö panta á borðiö eitthvert súkkulaöimull ásamt skyldugu rjómabakkelsi og biöum nú eftir veitingunum, sem okkur þóttu koma nokkuð seint. Ekkisvo að skilja, aö okkur lægi eitthvað á; þess minnist ég ekki. Nema hvað servetrfsan virtist gefa sér góðan tima til að afgreiöa utanaðkomandi hóp ungra og glaðværra stúlkna sem rákust þarna inn til að stýfa rjómatertur úr hnefa og stóðu i hnapp viö diskinn. Karl Isfeld var þarna f sinni fyrstu utanlandsför, miðaldra maðurinn, og var barnslega hrif- inn af flestu sem hann sá — og þá að sjálfsögðu ekki hvaö sízt af sænskum kvenkostiyfirleitt. Man ég aö hann leit gljáeygur á stúlknahópinn og tautaöi fyrir munni sér, með nánast þingeysku tungutaki: „Miklar þokkadisir getur nú sænskt kvenfólk verið — svona yfirleitt.” Sjálfsagt væri ég búinn aö gleyma þessu nauðaómerkilega atviki fyrir löngu, ef hann hefði ekki viðhaftoröið „þokkadís”. Ég var um þessar mundir meö allan hugann viö reykviskt slangurmál, enda á leiöinni til Helsinki til að skrifa „Vögguvisu” (Karl var reyndar að fara þangaö lilca, vegna væntanlegrar þýöingar sinnar á „Kalevala”), og þegar hann nú nefndi oröið „dis”, þá kom mér til hugar „skvisa”, nýyröi í reykvisku þeirra tima. Og þarna sem viö biðum eftir súkkulaðimullinu varð mér aö orði: Blikka skvlsur vis-á-vis, von er að bisum standi... Svo leit ég beint á Karl og þagði viö. Honum var óðara ljóst, að slikt tillit og þögn þýddi það eitt, að ég ætlaöi honum að koma með vi'subotn samstundis; viö vorum einatt að demba sli'ku hvor á annan. Hann renndi nú hýru auga til afgreiðslustúlkunnar og upp um sætabrauðshillur kondftórls- ins og mælti fram hátiðlega: Þvi servetrisa og sykurgris sjást í þvisa landi. Þetta fannst mér öldungis ótækur botn á ekki lakara upphafi, og reyndar furðu slæmur hjá jafn ágætum hagyrðingi. Ég lauk sumsé við vfsuna sjálfur, þannig: en mér viö prisum hugur hrýs hér í þvisa landi. Af visunni f heild mætti ætla að hún væri ort aö gefnu tilefni af manni sem hefði lent i' slagtogi við skyndikonur og varla eða ekki haftnæga fjármuni i vasa þegar til kaupanna kom. En þaö var nú eitthvað annað. Mér er það aftur nokkur ráð- gáta hvernig þetta tilefnislausa stundargaman komst útfyrir hús- veggi kondítórisins viö Kóngs- götuna, já, alla leið inn i vest- firzkan afdal rúmum þrjátfu árum siðar, þvi að ekki minnist ég þess aö hafa látið nokkurn mann heyraþennan skáldskap, af góðum og gildum ástæðum. En Karl hlýtur að hafa lagt þetta á minnið og uppruninn síðan brenglazt í meöförum sem og visan sjálf. En hérmeð ætti þó Steinn Steinarr allavega að vera laus undan þvf að hafa komiö þarna nálægt. • Mikil ósköp getur annars verið gaman að leirburði, einkum þeirri tegund hans, sem er svo ekta, að engum dettur i hug að bendla við hann stórskáld. Sönnum leirburði má til hægðar- auka skipta I tvo flokka: Þann sem lætur allt form lönd og leið; þar sem formið eyðileggst sökum þess aö skáldið annaö hvort hefur það ekki á valdi sinu ellegar brýtur þaö vísvitandi;— og svo er hin tegundin, þar sem lltið eöa ekkert verður út á formiö sett, jafnvel dýrt kveðiö, en leirinn vellur og kraumar i öllum regn- bogans litum sökum „innihalds- ins”. Þaö er leir af siðara taginu sem mig langar af skömmum minum aö setja hér dæmi um, úr þvi ég er farinn aö pára þetta á annað borð. Og aftur er það Karl Isfeld sem kemur við sögu. Nokkrum kvöldum áöur en at- vikiö átti sér stað, sem rakið er héraðframan, vorum við Karl að spássera um kyrrláta götu i' út- hverfi Kaupmannahafnar, nánar tiltekiö úti i Vanlöse; gott ef þetta var ekki kvöldið góða sem við skruppum út á Kjærstrupvej til að heimsækja Jón. Það var höfg- ur gróöurilmur i lofti, og kvöldið eins hunangssættog frekast getur oröiö idönskum eldhúsrómönum. Ég tautaði fyrir munni mér eitthvað sem ég er ekki einusinni viss um að hafi átt að verða visa; si-svona: Dýrleg angan Danavangs... Karl var óseinn að bæta viö: drýpur af hangameiöi. Ég leitá Karl, og varð skemmt, því þarna var kominn af stað dæmigerður leirburður: dýrleg angan draup af hangameiði! En þá kom i ljós, sem mér þótti gegna mikilli furðu: að Karl virtist ímynda sér að hann væri þarna á stundinni að „búa til” orðið hangameiður. Hann benti á trjátegund þá sem f Dan- mörku kallast Guldregn, og sagði: „Littu á þetta tré. Svona tré vil ég kalla har.gameið á is- lenzku, því að blómin á þvi hanga.” Ég spurði hann til vonar og vara hvort hann hefði ekki heyrt eða lesið, að hangameiður væri heiti yfir gálga. Það virtist hann alls ekki kannast við;kvaðst ekki hafa vitað af orðinu fyrr. En nú skoraði ég á hann að halda áfram. Og má vera að hann hafi hugleitt eitthvert áframhald, en ekkert lét hann uppi; skoraöi á mig á móti að ljúka við það sem ég hefði byrjað á. Og útkoman varð þessi: Kýrleg sprangan Kana-gangs krýpur að Manga leiði. Þetta kom okkur saman um að væri vissulega svo dýrt kveöinn leir.aö hann krefðist náinnar um- fjöllunar sprenglærðustu bók- menntafræðinga, ef finna ætti og útlista hin skáldlegu tilþrif svo sem vert væri... Nóg um leirburð að sinni. (24/2 E.M.) ■ Haraldur Blöndal mála- flutningsmaður var ljós vikunnar i fyrri viku fyrir öldungis snilldarlega greiningu sina á ástandinu f E1 Salvador. Mættu aðrir fréttaskýrendur taka hann sér til fyrirmyndar. Eins og regla er átti Haraldur kerti inni hjá okkur og hann kom galvaskur á mánudaginn að sækja það. Er gott til þess að vita að Haraldur hefur tekið þessari viðurkenningu okkar af tilhlýði- legri alvöru, en það verður þvi miður ekki sagt um alla þá sem hafa orðið þess heiðurs aðnjót- andiaðvera ljós vikunnar. Mættu ■ Steinunn Þórarinsdóttir opnar i dag, laugardag, sýningu i vestur- sal Kjarvalsstaða. Hún sýnir skúlptúr og flestir unnir f leir, auk ólikra efna svo sem glers, gifs, járn, o.f.. Sameiginlegt viðfangs- efni allra verkanna eru hugliðihgarum manninn sem ein- stakling og hópveru. Þetta er önnur einkasýning Steinunnar en hún sýndi fyrst i GalleriSuðurgötu 7 árið 1979. Auk þess hefur hún tekið þátt i sam- ■ Nú um helgina verður haldin kvikmyndahátiöSAK, sem stend- ur fyrir Samtök áhugamanna um kvikmyndagerð. Er hátíðin hald- in á Hótel Loftleiðum f dag og á morgun, laugardag og sunnudag, og er efnt til kvikmyndasam- keppni um myndir sem gerðar hafa verið af áhugamönnum. 1 dag klukkan tvö hefst sýning allra þeirra mynda sem borist hafa i samkeppnina og mun dóm- nefnd dæma hverja fyrir sig. A morgun á sama tima verða siöan þvi ljóshafar taka sér Harald til fyrirmyndar ekki siður en frétta- skýrendur. En sem sagt, Haraldur fékk kerti eitt ljósrikt og var það rautt á litinn og vel við hæfi. Það var Elias Snæland Jónsson ritstjóri systurblaðs Helgar-Timans sem tók að sér að afhenda Haraldi kertið. Var myndin tekin við það tækifæri og sýnir þá félaga. Það sem myndin sýnir hins vegar ekki er að Haraldur sagði um kertið: „Það lýsir eins og frelsisljós Bandarikjanna”. Sjálfir hefðum við ekki getað orðað þetta betur. sýningum heima og erlendis. Steinunn hóf listnám sitt árið 1974 i Portsmouth College og Art and Design á Englandi og siðan i listadeild Portsmouth Polytechnic og lauk þaðan BA- prófi f listum árið 1979. 1979-80 var hún gestastúdent við listaaka- demíuna i Bologna á ítaliu. Sýning Steinunnar verður opin daglega frá kl. 14—10 en henni lýkur þann 14. mars. sýndar þær myndir sem verölaun hljdta. Aö þvi er segir i fréttatilkynn- ingu frá SAK er keppt f tveimur flokkum „yngri en 20 ára og eldri”. Verður okkur þá á að spyrja: Hvers eiga þeir sem eru 20 ára að gjalda? Hans Petersen hefur gefið glæsilega bikara sem notaðir verða sem verölaun og að lokinni verölaunaafhendingu verður haldiöþing samtakanna. Og þá er ekki mára um það að segja.... ■ Elias Mar og Karl isfeld i Kaupmannahöfn sumarið 1949. I Steinunn Þórarinsdóttir. Hún er i miðiö á myndinni. Einstaklingur og hópvinna — Sýning Steinunnar Þórarinsdóttur á Kjarvalsstöðum Kvikmyndahátíð áhugamanna

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.