Fréttablaðið - 30.11.2008, Blaðsíða 24
30. nóvember 2008 SUNNUDAGUR4
Heimaþjónusta
Okkur á Seltjarnarnesi vantar starfsmann í 50 - 60% starf
við félagslega heimaþjónustu.
Hæfniskröfur:
• Færni í mannlegumsamskiptum
• Frumkvæði í starfi
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Áhugi á velferðarþjónustu
• Starfsmaður þarf að hafa bíl til umráða
Nánari upplýsingar um starfi ð veitir
Anna Kristín Guðmannsdóttir deildarstjóri
sími 8229110 annag@seltjarnarnes.is
Félagsþjónusta Selt jarnarnesbæjar
Mýrarhúsaskóla eldr i v ið Nesveg
símar: 5959100 5959130
HLJÓMAHÖLLIN
Tónlistar- og ráðstefnuhús Reykjanesbæ
LÓÐARFRÁGANGUR
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. (EFF) í samvinnu við
Reykjanesbæ byggir Hljómahöllina í Reykjanesbæ. Um
er að ræða endurbætur á núverandi húsnæði Stapans og
viðbyggingu við hann. Byggingunni er m.a. ætlað að hýsa
tónlistarskóla og poppminjasafn og vera í senn tónlistar-
og ráðstefnuhús sem gengur undir nafninu “Hljómahöllin”.
Verkefninu er skipt í tvo megin þætti:
1. Áfangi : Endurbætur á núverandi húsnæði - Stapanum:
1094m².
2. Áfangi : Viðbygging við núverandi húsnæði :
4016m².
Hér með er auglýst eftir undirverktökum til að taka þátt
í útboði um undirverktöku á eftirtöldum verkhlutum :
• Útboð 828 : Lóðarfrágangur
Framkvæmdir við verkið hófust í febrúar sl. og verður lokið
í júní 2009. Það er verktakafyrirtækið Atafl sem fer með
aðalverktöku í verkinu og umsjón með einstökum verkhlu-
tum og undirverktökum. Atafl fer með stjórn á vinnustað og
ber ábyrgð á verkinu í heild gagnvart verkkaupa.
Verktakafyrirtæki sem hafa áhuga á að bjóða í ofangreinda
verkhluta geta nálgast útboðsgögn á skrifstofu THG,
Faxafeni 9, frá og með 2.desember 2008 kl. 14:00. Einnig
er hægt að senda netpóst til magnus@thg.is með ósk um
aðgang að útboðsgögnum á verkefnavef verksins.
Frekari upplýsingar er að fi nna í útboðsgögnunum.
Tilboðum skal skilað til THG, Faxafeni 9 eigi síðar en þann
16. desember 2008 kl. 11:00 og fer þá fram opnun.
HAUSTFUNDUR FÉLAGSINS
verður haldinn á Grand hóteli miðvikudaginn 3. desember
frá kl. 8.30 – 10.30. Sagt frá niðurstöðum könnunar,
sem félagið stóð fyrir veturinn 2007 – 2008, á högum
fólks með þroskahömlun 45 ára og eldra.
Félagsmenn og annað áhugafólk velkomið.
Léttur morgunverður
Stjórnin
Iðnaðarmenn o.fl .
Bjóðum upp á viðbótarnám til stúdentsprófs.
Hentar öllum sem lokið hafa iðnmenntun.
Höfum reynslu og þekkingu til að hjálpa fullorðnu fólki að
bæta við sig námi í dagskóla og/eða fjarnámi.
Innritun fyrir vorönn 2009 stendur yfi r og lýkur 12. des. nk.
Skrifstofa skólans er opin virka daga kl. 8 – 15.
Svarað í síma 520 1600 kl. 8.00 - 16.00.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á fg@fg.is
Námsframboð
Bóknámsbrautir til stúdentsprófs
Listnám
Starfsnám
Almennt nám
Ýmsir séráfangar
Í boði eru ýmsir gagnlegir séráfangar, s.s. í hestamennsku,
fjölmiðlun, leiklist, kór, margmiðlun, upplýsingatækni,
hönnun, fatatísku o.fl .
Fjarnám í FG
Boðið er upp á fjarnám í bóklegum greinum.
Innritun fyrir vorönn 2009 lýkur 10. jan nk.
Allar nánari upplýsingar um áfanga í boði, verðskrá o.fl .
eru á heimasíðu skólans:
http://www.fg.is og hjá fjarkennslustjóra: svavarb@fg.is
Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu skólans.
Námsráðgjafar og stjórnendur eru til viðtals og aðstoða
nemendur við námsval.
Skrifstofa skólans er opin alla virka daga kl. 8.00 – 15.00.
Símanúmerið er 520 1600.
Netfang: fg@fg.is
Skólameistari.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
við Skólabraut, 210 Garðabæ, sími 520-1600, fax 565-1957,
vefslóð: http:www.fg.is netfang: fg@fg.is