Fréttablaðið - 30.11.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þorbjargar
Sigríðar
Gunnlaugsdóttur
Í dag er sunnudagurinn 30. nóv-
ember. 335 dagur ársins.
10.44 13.16 15.49
10.52 13.01 15.10
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
Ef bókað er fyrir 1. febrúar 2009:
Flugsæti, með sköttum og öðrum greiðslum, sem gildir
fram og til baka til Köben, London eða Berlínar.
Bókunartímabil: 26. desember 2008 –31. janúar 2009.
Ferðatímabil: 15. janúar–15. maí 2009.
Takmarkað sætaframboð.
Ef bókað er eftir 1. febrúar 2009:
Jólagjafabréfið verður inneign að upphæð 25.900 kr.
Gildir til allra áfangastaða og gildir í tvö ár frá útgáfudegi.
Jólagjöf handa þeim
sem elska að ferðast!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
með ánægju
Áttu vini og ættingja sem hafa gaman af ferðalögum?
Jólagjafabréf Iceland Express er skemmtileg leið til að
gleðja þína nánustu um jólin. Bókaðu vel heppnaða
jólagjöf á www.icelandexpress.is
Jólagjafabréf Iceland Express hittir beint í mark
25.900 kr.
Verð:
Sölutímabili lýkur kl. 18.00, 24. desember 2008.
Ég man eftir því að hafa velt því fyrir mér þegar ég var
lítil hvor væri meiri pæja,
Agnetha Fältskog eða Anni-Frid
Lyngstad. Þá bjó ég í Svíþjóð og
söngkonur Abba þóttu afbragð
annarra kvenna. Mér fannst
Anni-Frid sætari af því að hún er
dökkhærð og var aðalsöngkona
Fernando sem var uppáhalds-
Abbalagið mitt. Seinna hef ég
lesið lærðar greinar um að
Agnetha hafi þótt vera með fal-
legasta afturenda í Evrópu. Það
er nú aldeilis hægt að fara langt á
því. Mér fannst líka ofsalega
sniðugt að sjá fyrir mér eigin-
mennina Björn og Benny semja
falleg lög sem eiginkonurnar
sungu. En svo skildu hjónin auð-
vitað.
ABBA lifir hins vegar góðu lífi.
Ég áttaði mig á því þegar ég sá
Mamma Mia með dætrum mínum
tveimur. Ég er síðan svo dæma-
laust lánsöm að Abbagenin virð-
ast ríkjandi í fjölskyldunni. Dæt-
urnar eru eldheitir aðdáendur og
eiga geisladisk með tónlist
Mamma Mia sem hlustað er á
aftur og aftur og stundum tekinn
með í bílinn til að njóta á leið í
skóla og leikskóla. Sú eldri er á
Mamma Mia-dansnámskeiði og
hélt í vikunni danssýningu á elli-
heimili í hverfinu. Hún stóð sig
að sögn svo vel að hún fékk pip-
arköku og djúsglas fyrir. Sú yngri
raular Money, Money, Money á
morgnana, sem er reyndar nokk-
uð passandi í verðbólguástandinu
(sér í lagi þegar litið er á textann:
I work all night, I work all day, to
pay the bills I have to pay. Ain´t it
sad, and still there never seems
to be a single penny left for me.
That´s too bad). En sjálfsagt er
barnið ekki með verðbólguna í
huganum þegar hún raular uppá-
haldslagið sitt.
TÓNLIST Abba lifir af skilnað
hljómsveitarinnar og tískusveifl-
ur. Ömmur, mömmur og litlar
stelpur hafa allar gaman af tón-
listinni. Hvað varðar pæjurnar
tvær er eldri systirin á því að
Agnetha sé sætari af því að hún
er ljóshærð. Sú yngri segir að
ómögulegt sé að gera upp á milli
kvennanna. Mér hefur svo alltaf
fundist að fyrst Abba kom frá
Svíþjóð hljóti að vera vit í Svíum
og að hin sönglandi sænska tunga
hafi leitt af sér þessa listamenn.
Kannski að það sé oftúlkun, en
eftir stendur að það er bjargföst
trú mín að Abba sé besta hljóm-
sveit í heimi.
Mamma Mia