Fréttablaðið - 15.12.2008, Síða 6
6 15. desember 2008 MÁNUDAGUR
Vegna vægast sagt ömurlegrar stöðu
íslensku krónunnar er verð á innfluttum
leikföngum frámunalega óhagstætt í dag.
Ég fæ mjög mörg dæmi um svívirðilegar
verðhækkanir á leikföngum og þegar ég
skrapp í tvær leikfangabúðir í Kópavogi
fyrir helgina rak ég oft upp stór augu og
blöskraði verðið á vörunum.
Því miður snúa mörg þessara dæma að
Toys R Us. Búðirnar, sem eru hluti af
alþjóðlegri keðju, eru vissulega skemmti-
legar í að koma. Búðin á Smáratorgi er
uppáhaldsbúð sonar míns og í góðærinu,
þegar dollar var á 60 kall, voru vörurnar í
Toys R Us á fínu verði. Nú hefur tvennt
gerst, krónan er hrunin og samkeppnisað-
ilinn Just 4 Kids er farinn á hausinn.
Afleiðingin er nánast ótrúlega hátt verð.
Hagkaup er næststærsti söluaðili
leikfanga. Hagkaup og Toys R Us eru þó
með það ólíkt vöruúrval að erfitt er að
gera beinan verðsamanburð. Nokkrar
vörutegundir eru þó eins og þegar ég bar
verð á þeim saman kom Hagkaup oftast
skár út. Samt ekki á Lego löggustöðinni
sem son minn langar mest í í jólagjöf.
Stöðin kostar 18.999 kr. í báðum búðunum.
Sæll!
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is
UNIVERSAL
C O N T O U R W R A P
TM
líkamsvafningur
Grennandi
Með Universal líkamsvafningi
missir þú í minnsta lagi 15 cm
í hvert skipti.
Fljótlegur árangur
sem skilar sér strax.
Hverju hefur þú að tapa?
Stórhöfða 17,
110 Reykjavík,
Sími: 577 7007
edda.is
Neytendur: Verðkönnun Dr. Gunna
Rándýr innflutt leikföng
FRAMKVÆMDIR Undirbúningur
fyrir útboð á hönnun nýs háskóla-
sjúkrahúss er á lokastigi. Verkið
verður boðið út á Evrópska efna-
hagssvæðinu (EES) og verða
útboðsgögn á íslensku. Sama máli
gegnir um önnur gögn og sam-
skipti vegna framkvæmdarinnar -
verkefnismálið verður íslenska.
Til þessa hefur verkefnismálið
verið enska enda margvísleg ráð-
gjöf sótt til útlanda.
Ingólfur Þórisson, fram-
kvæmdastjóri verkefnisins, segir
að samskipti við íslenskt heil-
brigðisstarfsfólk verði eftirleiðis
mikil og því eðlilegt að notast sé
við íslensku í samskiptum. Spurð-
ur hvort þetta dragi ekki úr áhuga
erlendra hönnuða á þátttöku í fyr-
irhuguðu útboði kveðst Ingólfur
ekkert geta um það sagt. Aðildar-
ríki EES notist almennt við sitt
móðurmál í útboðum á svæðinu.
Framvinda verkefnisins er í
nokkurri óvissu, líkt og margar
aðrar kostnaðarsamar fram-
kvæmdir. Í frumvarpi til fjárlaga
næsta árs var upphaflega gert ráð
fyrir 800 milljónum króna til
byggingar nýs spítala. Í nýju
frumvarpi er hins vegar gert ráð
fyrir 400 milljónum.
Guðlaugur Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra sagði nýverið í
Fréttablaðinu að bygging nýs spít-
ala væri sveigjanlegt verkefni
sem enn væri í undirbúningi og
ekkert kallaði á að það yrði slegið
út af borðinu.
Ingólfur segir undirbúningi
haldið áfram af fullum krafti. - bþs
Útboð vegna hönnunar nýs háskólasjúkrahúss í undirbúningi þrátt fyrir óvissu:
Útboðsgögnin verða á íslensku
INGÓLFUR
ÞÓRISSON
GUÐLAUGUR Þ
ÞÓRÐARSON
Leikföng Toys R Us Smáratorgi Hagkaup Smáralind Munur
Party & co borðspil 10.499 kr. 5.999 kr. 43% ódýrara í Hagkaupum
Lego kranabíll 7249 11.999 kr. 9.999 kr. 17% ódýrara í Hagkaupum
Lego löggustöð 7744 18.999 kr. 18.999 kr. Jafn dýrt
Hot Wheels starter set 4.999 kr. 3.999 kr. 20% ódýrara í Hagkaupum
Stiga sleði 10.499 kr. 9.999 kr. 5% ódýrara í Hagkaupum
Littlest petshop 20 plastfíg. 16.999 kr. ekki til -
Littlest petshop 10 plastfíg. ekki til 4.999 kr. -
NOREGUR Fjögur ungmenni létu
lífið í eldsvoða í bænum Flusund
á eyjunni Heröy í Noregi
aðfaranótt sunnudags.
Allt að tuttugu ungmenni voru
samankomin í gleðskap í húsi
þegar eldurinn braust út.
Lögregla hefur ekki útilokað að
fleiri hafi látist í eldsvoðanum, en
einn maður bjargaðist úr
brennandi húsinu.
Aðfaranótt laugardags létust
sex manns í eldsvoða í Osló en
það er mannskæðasti bruni í
borginni frá seinni heimsstyrjöld.
76 manns hafa látist í eldsvoðum í
Noregi það sem af er þessu ári.
- þeb
Eldsvoði í gömlu timburhúsi:
Tíu látnir í elds-
voðum í Noregi
Ætlar þú að flytja af landi brott
vegna kreppunnar?
Já 33%
Nei 67%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú skilning á aðhalds-
aðgerðum stjórnvalda?
Segðu skoðun þína á visir.is.
BANDARÍKIN Uppbygging Banda-
ríkjamanna í Írak misheppnaðist
vegna þess að engin stofnun ríkis-
stjórnarinnar bar ábyrgð á henni.
Deilur milli skriffinna, vaxandi
ofbeldi og vanþekking á íröksku
samfélagi höfðu einnig áhrif á að
uppbyggingin klúðraðist. Þetta
kemur fram í drögum að skýrslu
um uppbygginguna sem gerð var
fyrir Bandaríkjastjórn og dagblað-
ið New York Times birti í gær.
Í skýrslunni kemur fram að
Bandaríkjastjórn hafi ekki verið
nægilega vel undirbúin til að fram-
kvæma þau verkefni sem uppbygg-
ingin fól í sér. Verkefnið í heild hafi
verið illa undirbúið og oft hafi stór-
ar ákvarðanir verið teknar á mjög
stuttum tíma. Dæmi er tekið af því
að embættismanni hafi verið gefinn
fjögurra klukkustunda frestur til
að ákveða hversu mikið af vegum
þyrfti að opna og laga. Mat þessa
embættismanns hafi svo farið beint
inn í áætlun um málið. Þá er sagt að
bandarísk stjórnvöld hafi fyrir inn-
rásina verið treg til að eyða pening-
um í uppbyggingu annars lands. 117
milljörðum hafi þó verið eytt síðan
þá og þar af hafi 50 milljarðar
komið beint úr vasa skattgreiðenda.
Peningarnir hafi þó nánast aðeins
farið í að lagfæra það sem var eyði-
lagt í innrásinni sjálfri.
Í skýrslunni segir Colin Powell,
fyrrverandi utanríkisráðherra, að á
mánuðunum eftir innrásina hafi
sífellt verið gefnar rangar upplýs-
ingar um fjölda í öryggissveitum.
Tölurnar hafi verið ýktar um tutt-
ugu þúsund manns í hverri viku.
Einnig kemur fram í skýrslunni
að nú, fimm árum eftir innrásina í
Írak, hafi stjórnvöld hvorki fast-
mótaða stefnu né getu til þess að
takast á við svo stórt verkefni sem
uppbyggingin sé.
Skýrslan er unnin af bandarískri
eftirlitsstofnun með uppbygging-
inunni í Írak, sem leidd er af rep-
úblikanum Stuart W. Bowen.
Bowen hefur undanfarin fimm ár
fylgst með uppbyggingunni í Írak.
Skýrslan er byggð á um 500 nýjum
viðtölum og yfir 600 rannsóknum
sem hafa verið gerðar síðustu árin.
Bowen vill ekki tjá sig um skýrsl-
una, sem á að kynna fyrir þing-
nefnd í byrjun febrúar á næsta
ári.
George W. Bush, fráfarandi for-
seti Bandaríkjanna, kom í óvænta
heimsókn til Íraks í gær. Það verð-
ur væntanlega síðasta opinbera
heimsókn hans þangað. Barack
Obama hefur lofað að draga herlið
Bandaríkjanna út úr landinu.
thorunn@frettabladid.is
Uppbyggingin í Írak
kostnaðarsamt klúður
Uppbygging Bandaríkjamanna í Írak er klúður. Hún var illa skipulögð og hefur
kostað 117 milljarða dollarar, samkvæmt nýrri skýrslu. Lítið annað hefur þó
verið gert en að lagfæra það sem var eyðilagt í innrás Bandaríkjahers árið 2003.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
FORSETARNIR George Bush hitti Jalal Talabani,
forseta Íraks, í heimsókn sinni til landsins í gær. Með
þeim funduðu varaforsetar Íraks, Adel Abdul-Mahdi,
og Tariq al-Hashemi.
KJÖRKASSINN