Fréttablaðið - 21.12.2008, Síða 4

Fréttablaðið - 21.12.2008, Síða 4
4 21. desember 2008 SUNNUDAGUR VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 17° 10° 6° 7° 10° 11° 10° 5° 8° 9° 19° 11° 3° 25° 3° 10° 13° 3° BREYTINGA AÐ VÆNTA Eftir langvarandi frosta- kafl a horfi r nú til breyt- inga. Strax á morgun hlýnar talsvert á landinu sunnan- og vestanverðu með reyndar allhvöss- um eða hvössum vindi og á þriðjudag, á Þorláksmessu verða hlýindin komin yfi r meginhluta landsins. Aðfangadagur verður hlýr en eitthvað kólnar á Jóladag. Það eru því afgerandi breytingar í kortunum eftir daginn í dag. -2 1 0 3 0 0 -5 10 10 6 8 10 18 8 13 8 13 15 0 -2 -3 -1 ÞRIÐJUDAGUR 13-20 m/s, hvassast á vesturhluta landsins. 6 6 67 2 -2 -2 5 6 8 Á MORGUN 13-20 m/s sunnan og vestan til annars 8-13. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur ALÞINGI Alþingi samþykkti í gær- morgun að fela kjararáði að úrskurða að nýju um 5 til 15 pró- senta launalækkun þingmanna og ráðherra. Ráðinu er ætlað að kveða upp úrskurð sinn fyrir áramót og skal lækkunin taka gildi 1. janúar næstkomandi. Þá er kjararáði óheimilt að hækka laun ráðamanna á næsta ári. Samkvæmt lagabreytingunni er kjararáði jafnframt ætlað að endurskoða sem fyrst, kjör annarra sem undir það heyra. Endurskoð- unin nær þó ekki til forseta Íslands. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins mun kjararáð funda um málið á mánudaginn. Kjararáð ákvað á fundi sínum 27. ágúst síðastliðinn að hækka mánað- arlaun þeirra sem ákvörðunarvald ráðsins nær til um 20.300 krónur á mánuði. Hækkunin var afturvirk frá 1. maí 2008 og var hún meðal annars rökstudd með því að veru- legar breytingar hefðu orðið á þeim launum í þjóðfélaginu sem ráðið ætti að miða við í úrskurðum sínum. Á árinu hefði meðal annars verið samið um laun og starfskjör á almennum vinnumarkaði og við opinbera starfsmenn. Alls 49 þingmenn samþykktu lögin í gær, 12 voru fjarverandi en þingmennirnir Guðjón Arnar Kristjánsson og Jón Magnússon sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. - ovd Þingmenn samþykktu að fela kjararáði að úrskurða að nýju um launalækkanir: Laun ráðamanna lækka um áramót FRÁ ALÞINGI Laun þingmanna hækkuðu um 20.300 krónur 1. maí síðastliðinn en í gær ákváðu þeir að fela kjararáði að úrskurða að nýju um launalækkanir æðstu ráðamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA EFNAHAGSMÁL „Við erum búin að vera að kaupa ávísanir, viðskipta- tékka og ferðatékka en á fimmtu- daginn byrjuðum við að selja viðskiptatékka,“ segir Anna Þórunn Reynis, framkvæmdastjóri viðskiptaþjónustu Sparisjóðabank- ans. Hún segir sparisjóðina selja viðskiptatékka í öllum helstu myntum. Fólk kaupi mest af ávísunum á danskar krónur, ensk pund og evrur. Að svo stöddu muni sparisjóð- irnir þó ekki selja viðskiptatékka í bandaríkjadölum. Fólk sem þurfi á ávísunum í erlendri mynt að halda geti því leitað til næsta sparisjóðs. „Þetta á þó bara við um viðskipta- tékka því það er alfarið hætt að selja ferðatékka á Íslandi,“ segir Anna Þórunn. - ovd Gjaldeyrisviðskipti: Sparisjóðirnir selja tékka BELGÍA,AP Albert II, konungur Belgíu fundaði í gær með helstu ráðamönnum landsins í tilraun sinni til að ráða bót á þeim pólitíska vanda sem upp er kominn í kjölfar efnahagsþreng- inga í landinu. Ríkisstjórn landsins hefur að undanförnu reynt að selja frönskum banka, BNP Paribas, meirihlutann í Fortis, stærsta banka landsins en vegna fjár- málakreppunnar neyddist Fortis til að leita aðstoðar stjórnvalda. Gangi salan eftir eiga þúsundir Belga á hættu að missa vinnuna. Undirréttur úrskurðaði nýlega að hluthafar í Fortis hefðu átt að fá að taka þátt í ákvörðunum um söluna. Á föstudaginn bárust svo féttir þess efnis að Yves Leterme, forsætisráherra Belgíu hefði reynt að hafa áhrif á niðurstöður áfrýjunarréttar í málinu. - ovd Konungur reynir að sætta: Salan á Fortis að buga Belga Í VANDA Yves Leterme, forsætisráðherra Belgíu, sem sést hér með Geir H. Haar- de, bauðst á föstudaginn til að segja af sér embætti. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ölvaður út af í Kömbunum Lögreglan á Selfossi tók tvo öku- menn fyrir ölvunarakstur aðfaranótt laugardagsins. Annar þeirra hafði ekið bíl sínum út af í Kömbunum ofan Hveragerðis. Hann sakaði ekki. Hinn ökumaðurinn var tekinn í Þorláks- höfn. Lögreglan stendur nú fyrir sérstöku átaki gegn ölvunarakstri. LÖGREGLUFRÉTTIR EFNAHAGSMÁL Í breytingartillög- um meirihluta fjárlaganefndar við fjárlagafrumvarp næsta árs er meðal annars lagt til að veitt verði heimild til að selja sendi- herrabústaði Íslands í New York, Washington, London og Ósló. Leggur meirihlutinn til að hluta söluverðsins verði varið til að kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði fyrir sendiherra í borgunum. Tillögu þessa efnis var dreift á Alþingi síðdegis í gær en þriðja og síðasta umræða um fjárlögin fer fram á mánudaginn. Þingfundur hefst klukkan 9.30 og eru umræður um fjárlög annað mál á dagskrá fundarins. - ovd Breytingar á fjárlagafrumvarpi: Vilja selja sendi- herrabústaði STJÓRNMÁL „Mér finnst þessi tillaga ekki raunhæf,“ segir Margrét G. Flovenz formaður félags löggiltra endurskoðenda um ummæli Björgvins G. Sigurðsson- ar um að lögleiða hámarksstærð endurskoðunarskrifstofa. „Endurskoðunarskrifstofur á Íslandi eru ekki stórar og ef þær væru mikið minni þá væri nánast ógerlegt að standa undir öllum þeim kröfum sem gerðar eru til okkar, faglega og lagalega,“ segir Margrét. Ummæli Björgvins voru svar við spurningu Álfheiðar Ingadótt- ur alþingiskonu á fimmtudag. „Hvað varðar skilanefndirnar má kannski fyrst velta fyrir sér hvort þessar aðstæður kalli ekki á það [...] að við setjum hámarks- stærð á endurskoðunarskrifstofur svo þær séu fleiri og fjölbreyttari en núna þegar þær eru fáar og stórar og erfitt að velja þar á milli,“ sagði Björgvin. - vsp Endurskoðunarskrifstofur: Ráðherra vill meiri fjölbreytni GENGIÐ 19.12.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 217,6413 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 121,11 121,69 181,12 182 169,72 170,66 22,779 22,913 17,332 17,434 15,474 15,564 1,3619 1,3699 187,47 188,59 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR FULLT HÚS JÓLAGJAFA Úlpa 19.990kr. STJÓRNMÁL „Mér finnst ríkisstjórn- in ganga of skammt í þessum aðgerðum,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, alþingismaður og vara- formaður félags- og tryggingar- málanefndar Alþingis. Þakið á fæðingarorlofssjóði hefur verið fært úr 480 þúsund krónum í 400 þúsund krónur. Frumvarp þess efnis var sam- þykkt á Alþingi í gær. „Ég hefði viljað taka meira af þessum bótum og miða við árið 2007 með verðbólgu. Þá hefðum við getað sparað tvo milljarða,“ segir Ármann. Með þessum aðgerðum sparast hins vegar um 400 milljónir að sögn Ármanns. Ástæða þess að ákveðið var að skera niður úr sjóðnum segir Ármann hafa verið að stjórnar- meirihlutinn vildi ná niður rekstrarkostnaði ríkisins. Ekki hafi hins vegar verið vilji til að lækka bæturnar mikið og þess vegna hafi verið ákveðið að lækka bæturnar á þá sem hafa mest. Vinstri græn sátu hjá við atkvæðagreiðslu um lækkun þaks fæðingarorlofsins. „Þetta er ekkert óeðlilegur nið- urskurður. Þakið var haft hátt á sínum tíma og sumum fannst það of hátt þá. Þetta er að vissu leyti ekkert óeðlileg ráðstöfun,“ segir Katrín Jakobsdóttir varaformað- ur Vinstri grænna. Katrín segir Vinstri græn hins vegar hafa verið mjög mótfallin öðru nýsamþykktu frumvarpi um heimild til að leggja á gjald vegna innlagnar á sjúkrahús. „Þetta er bara sjúklingaskattur og ekkert annað. Við [í VG] hefð- um viljað sjá þrepaskiptar skatta- hækkanir í staðinn,“ segir Katrín. Vinstri Græn lögðu fram tillög- ur í skattamálum í fyrradag. Þar lögðu þau til að tekjuskattur yrði hækkaður þrepaskipt en ekki flatt á alla um 1,25 prósent eins og sam- þykkt var á Alþingi í gær. Að auki að fjármagnstekjuskattur yrði hækkaður úr tíu í fjórtán prósent. „Þá mundu þeir sem hafa hæstu launin borga mest. Við teljum að þá sé verið að dreifa þessu á rétt- látari hátt. Með þeim tillögum hefði orðið 5,5 milljarða tekjuauki, varlega áætlað,“ segir Katrín. Níu frumvörp voru samþykkt á Alþingi í gær. Ýmist ný lög eða breytingar á eldri lögum. Næsti þingfundur verður á mánudaginn. Þá verða meðal annars fjárlögin og eftirlaunafrumvarpið til umræðu. vidirp@frettabladid.is Stjórnvöld samþykkja að hækka tekjuskatt Níu frumvörp urðu að lögum á Alþingi í gær. Tekjuskattur var hækkaður um 1,25 prósent. Heimild var veitt til gjaldtöku á sjúkrahúsum. Varaformaður VG kallar það sjúklingaskatt. Þak fæðingarorlofs lækkar um 80 þúsund krónur. ALÞINGISTÍÐINDI Tíðindamikið var á Alþingi í gær. Níu frumvörp urðu að lögum. ■ Hækkun tekjuskatts um 1,25 prósent. Heimild til að hækka útsvar um 0,25 prósent. ■ Sóknargjöld til trúfélaga voru lækkuð. ■ Þak var sett á búvörusamninga. ■ Reglum breytt um tilraunadýra- nefnd. ■ Breyting var á ýmsum lögum vegna kolvetnisstarfsemi. ■ Heimild fyrir ríkissjóð að veita þeim fjárhagslega fyrirgreiðslu sem hyggja á málssókn gegn breskum yfirvöldum vegna beitingar hryðju- verkalaga. ■ Launalækkun Alþingismanna um 5-15 prósent eftir úrskurði Kjararáðs. ■ Framlenging ákvæða um lækkun gjalda af vistvænum ökutækjum. ■ 31 veittur ríkisborgararéttur. ■ Breyting á tollfrjálsum innflutn- ingi ferðamanna á varningi. ■ Heimild til gjaldtöku fyrir innlögn á sjúkrahús. ■ Þak fæðingarorlofs lækkað um 80 þúsund krónur. SAMÞYKKTIR Á ALÞINGI Í GÆR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.