Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.12.2008, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 21.12.2008, Qupperneq 10
10 21. desember 2008 SUNNUDAGUR SAMFÉLAGSMÁL Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefur fengið það vandasama verkefni að vera organisti í Flateyrarkirkju á aðfangadag. „Ég var organisti þarna meðfram öðrum störfum eftir snjóflóðið 1995 en þá vann ég í verksmiðjunni Skelfiskur,“ segir Illugi. „Ég hafði svo sem ekki mikinn bakgrunn í orgelspili en ég tók þetta að mér að spila í messunum og ætli mér hafi ekki orðið einstaka sinnum á í messunni líka,“ segir hann og hlær við. Að þessu sinni mun hann þó koma með dýrmæta reynslu að orgelinu í Flateyrarkirkju. „Ég fór út og var nokkra mánuði í Róm árið 1997 þar sem ég lærði hjá James Edward Goettsche sem var yfirorganisti í Vatíkaninu. Þetta var alveg ógleymanlegur tími. Svo var ég svo lánsamur að fá að taka þátt í páskamess- unni í Vatíkaninu. Framlag mitt var reyndar ekki svo ýkja mikilfenglegt en ég hafði það hlutverk að fletta nótnablöðunum fyrir organistann. En hvað sem því líður þá hef ég allavega upplifað það að vera við messu hjá Jóhannesi Páli páfa II.“ Illugi hefur verið, eins og aðrir þingmenn, í karpi um fjárlögin og gefst því ekki mikill tími til undirbúnings við orgelleikinn. Í gamansemi segir hann það miður að ekki skuli vera hægt að slá þessu tvennu saman og spila fjárlögin. Aðspurður hvort hann kvíði því að spila í messunni vegna lítils tíma til undirbúnings segir hann, „nei,nei. Það er nú venjulega þannig að ef réttu nóturnar eru fleiri en feilnóturnar þá er manni alveg óhætt að láta sjá sig meðal fólks á eftir,“ segir hann hógvær. Þeir sem vilja heyra fínpússaðan hljóðfæraleik þingmannsins geta eflaust gert það þótt hann sé önnum hlaðinn en hann gaf út geisladisk með píanóleik sínum árið 2004. Hann vann til margra ára á Flateyri og fer þangað oft enda giftur Brynhildi Einarsdóttur sem er þaðan; dóttur Einars Odds heitins Kristjánssonar. jse@frettabladid.is Úr þinginu í orgelleik um jól Illugi Gunnarsson þingmaður verður organisti Flateyrarkirkju í messunni á aðfangadag. Hann hefur numið orgelleik í Róm og tók þátt í páskamessu hjá Jóhannesi Páli páfa í Vatíkaninu. ILLUGI GUNNARSSON VIÐ PÍANÓIÐ Þingmaðurinn mun sjá um orgelleik í messunni á aðfangadag í Flateyrar- kirkju. Fjárlögin verða ekki á efnisskránni. STJÓRNSÝSLA Sameining sveitar- félaga er ráðstöfun sem hlýtur að koma til alvarlegrar skoðunar í hagræðingaraðgerðunum sem nú er gripið til í samfélaginu öllu. Þetta er mat Halldórs Halldórsson- ar, bæjarstjóra á Ísafirði og for- manns Sambands íslenskra sveitarfélaga. Halldór telur reynsluna af þeim sameiningum sem orðið hafa á síð- ustu tæpu tuttugu árum almennt góða en frá 1990 hefur sveitar-félög- um fækkað úr 224 í 78. „Þegar hefur verið hagrætt mikið en ég er sann- færður um að það eru miklir mögu- leikar á frekari hagræðingu,“ segir Halldór sem er til dæmis þeirrar skoðunar að sameina beri öll sveit- arfélög á Vestfjörðum í eitt. Halldór segir að við sameiningu sveitarfélaga sparist fyrst og fremst peningar með fækkun yfir- stjórna. Þar geti hlaupið á talsvert háum fjárhæðum. Á móti komi að oft verði til nýr kostnaður, til dæmis, vegna almenningssam- gangna og margvíslegrar nærþjón- ustu. Nettóniðurstaðan sé engu að síður sparnaður en hafa beri í huga að hann skilar sér ekki endilega strax. Fyrir nokkrum árum kynnti Þórð- ur Skúlason, þáverandi fram- kvæmdastjóri Sambands sveitarfé- laga, eigin hugmyndir um sameiningu. Gerðu þær ráð fyrir rúmlega þrjátíu sveitarfélögum í landinu. Halldór segist telja hug- myndir Þórðar góðar, raunhæft sé að fækka sveitarfélögum um rúm- lega helming. - bþs Formaður Sambands sveitarfélaga segir sameiningar kost í sparnaðaraðgerðum: Mikið sparast við fækkun yfirstjórna HALLDÓR HALLDÓRSSON Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur maður hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir að flytja með flugi frá Kaupmannahöfn 215,52 grömm af kókaíni sem hann faldi innvortis. Efnin ætlaði hann til sölu og dreifingar. Maðurinn játaði brot sitt skýlaust fyrir dóminum. Umræddur maður á sakaferil að baki, bæði ítrekuð fíkniefnabrot og ölvunarakstur. Við ákvörðun refsingar nú leit dómurinn til þess að maðurinn er ungur að árum og hefur játað brot sitt. Vegna alvarleika málsins þótti skilorðsbinding hins vegar ekki koma til greina. - jss Rúmlega tvítugur maður: Í fangelsi fyrir kókaínsmygl STJÓRNMÁL Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknar, segist aldrei hafa fengið lán til hluta- bréfakaupa í Decode. Hún vísar á bug fullyrðing- um sem gengið hafa um netið ljósum logum. Þar er hún sögð hafa fengið 75 milljónir á vildarkjörum til að kaupa hlutabréf í Decode. Þetta lán sé verið að afskrifa í Landsbankanum. „Ég hef ekki tekið lán til hlutabréfakaupa í Landsbankan- um, sem er minn viðskiptabanki, og ég hef ekki fengið neitt afskrifað. Punktur.“ - kóþ Siv Friðleifsdóttir: Fékk aldrei lán fyrir Decode BJÖRGUNARSTÖRF Pakistanskir björgunarmenn leituðu í gær að fólki í rústum verslunarkjarna í Rawalpindi í Pakistan en verslunarkjarninn hrundi eftir að hann varð eldi að bráð. Að minnsta kosti einn hefur fundist látinn í rústunum og þá hafa tólf fundist alvarlega slasaðir. NORDICPHOTOS/AFP SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.