Fréttablaðið - 21.12.2008, Page 24
4 matur
Matarlím er mikið notað í ábætisrétti
því það bindur krem, frómas og hlaup
og kemur í veg fyrir að það renni út.
Matarlím er bragðlaust hleypiefni
sem oftast er í blaðformi. Við notkun
eru blöðin fyrst mýkt í köldu vatni um
stund en síðan undin og sett í lítinn pott
ásamt einni skeið af vatni eða öðrum
vökva á móti hverju blaði. Síðan eru
þau brædd í vatnsbaði. Þegar ávaxtasafi
er notaður í það sem á að hleypa er hægt
að hita hann og bræða matarlímið í
honum.
Ef þykkja á eggjahræru eða rjóma-
blandað krem má matarlímið ekki vera
heitara en um 37 gráður þegar því er hellt
í mjórri bunu út í skálina og nauðsynlegt
er að hræra vel í á meðan. - gun
Vanilluilmur og -bragð fellur flest-um í geð. Vanillan
er unnin úr vanillujurt
og svörtu vanillustang-
irnar sem við þekkjum
eru þurrkaðir fræ-
belgir jurtarinnar.
Vanillujurtin vex í
Mexíkó á Kyrrahafs-
eyjum og á Madagask-
ar. Astekar eru taldir hafa
notað vanillu í súkkulaði-
drykki en vanillujurtin barst
til Evrópu með spænskum land-
könnuðum snemma á sautjándu
öld og er nafnið dregið af spænska
orðinu vainilla. Vanillan
fór að ryðja sér til
rúms í íslenskri matar-
gerð á átjándu til nítj-
ándu öld og þá í eftir-
réttum eins og ís. Er
vanillan eitt vinsælasta
bragðefnið í íslenskum
ís.
Vanilla er dýrt krydd
vegna þess hve vinnsla
þess er tímafrek en um
hálft ár líður frá því að
fræbelgir vanillujurtarinnar
eru tíndir og þangað til þeir eru til-
búnir til notkunar í matargerð.
Stangirnar má setja beint út í til
dæmis grauta og búðinga og að
matreiðslu lokinni má þvo stang-
irnar og nota aftur ef þær eru
geymdar í loftþéttu íláti. Einnig
má skafa innan úr þeim fræin og
nota þau.
Vanilludropar geta komið í stað-
inn fyrir vanillustangir í matar-
gerð en þeir innihalda ekki ekta
vanillu og jafnast engan veginn á
við hana í gæðum. Vanillusykur
keyptur í búðum er flórsykur sem
er yfirleitt bragðbættur með gervi-
vanillu. Hægt er að búa til vanillu-
sykur heima með því að stinga
vanillustöngum ofan í krukku með
flórsykri og loka vel. - rat
HRÁEFNIÐ: Vanilla
Ilmandi og mjúk
1. Vanillan er unnin úr fræbelgjum
vanillujurtarinnar sem vex meðal
annars í Mexíkó.
2. Vanillan er eitt vinsælasta bragð-
efnið í eftirrétti og ís.
3. Stangirnar má nota aftur og
aftur í matargerð.
4. Fræbelgir vanillujurtarinnar eru
lagðir í bleyti og svo þurrkaðir í
hálft ár.
1 2
3 4
BINDUR KREM, FRÓMAS OG HLAUP
Matarlím er mikið
notað í eftirrétti.
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
Fullelduð vara, þarf
aðeins að hita upp
500 ml.
Grímur kokkur mælir með:
Gott er að bæta út í steiktum humahölum
eftir að búið er að hita súpuna upp.
Gott ráð til að gera góða súpu enn betri.
Gríms
humarsúpa
NÝTT
Kryddin frá Pottagöldrum
eru ómissandi í matreiðsluna
Ilmur af jólum
ÁN AUKAEFNA • ÁN MSG • ÁN SÍLÍKON DÍOXÍÐS