Fréttablaðið - 21.12.2008, Page 40
HNETUSMJÖRSKONFEKT
3 msk. hnetusmjör
½ stk. núggat (½ stórt stykki)
250 g kókosmjöl (um það bil)
300 g Rice Crispies (um það bil)
200 g flórsykur (um það bil)
suðusúkkulaði
Bræðið hnetusmjör og núggat
saman í potti. Bætið síðan
kókosmjöli, Rice Crispies og
flórsykri út í eftir smekk, þó mest
af Rice Crispies. Setjið í lítil
konfektbréfform með teskeið á
meðan blandan er heit. Bræðið
suðusúkkulaði og setjið yfir eftir
að blandan er komin í formið.
Geymið í frysti.
PIPARMYNTUKÚLUR
3 stk. eggjahvítur
flórsykur
piparmyntudropar, eftir smekk
Hrærið saman í hrærivél með
hnoðara eggjahvítum og flórsykri
þar til blandan er orðin þétt í sér
og laus frá skál. Bætið pipar-
myntudropum í deig eftir smekk.
Auðvelt á að vera að móta kúlur
úr deiginu.
Ef ekki eru gerðar kúlur strax er
deig vafið inn í rakan klút til að
koma í veg fyrir að það þorni.
Mótið kúlur og setjið á bökunar-
plötu. Látið standa þar til deig
hefur þornað hæfilega (um það
bil ein klukkustund). Bræðið
suðusúkkulaði og hjúpið kúlur
með því. Geymið í frysti.
MARSIPANBRAUÐ
100 g af möndlum, pekanhnet-
um eða heslihnetum
1 stór krukka kokkteilber
150 til 200 g döðlur,
gráfíkjur eða rúsínur
5-7 msk. af koníaki,
sherry, Grand Mariner
eða púrtvíni eftir smekk
Blandið hráefni að ofan
daginn áður en gera á
brauð. Látið standa í ísskáp
yfir nótt. Setjið allt í matvinnslu-
vél og maukið.
KONFEKT MEÐ HNETUSMJÖRI, PIPARMYNTU OG MARSIPANI
Bæði er sérstaklega einfalt og fljótlegt að búa þessa mola til og svo hafa þeir fall-
ið rosaleg vel í kramið hjá fjöl-
skyldum okkar,“ segir Guðrún
Ína Einarsdóttir um konfekt sem
hún og vinkona hennar, Guðrún
Brynja Vilhjálmsdóttir, hafa
galdrað fram fyrir hver jól í nán-
ast aldarfjórðung, eða 24 ár.
Þær kynntust í gegnum börnin
sín þegar fjölskyldurnar bjuggu í
sömu blokkinni. Segja má að sam-
eiginlegur áhugi á matargerð hafi
orðið kveikjan að vinskapnum og
snemma skapaðist hefð fyrir því
að búa til konfekt fyrir jólin. Og
þótt öll þessi ár séu liðin hefur
hún haldist.
„Auðvitað höfum við skipt ein-
hverjum tegundum út svona af og
til, en af hverju að breyta til ef
hlutirnir virka vel,“ spyr Guðrún
Ína.
Hnetusmjörskonfekt, marsip-
anbrauð og piparmyntukúlur eru
meðal þess góðgætis sem hefur
fengið að halda sér og segir Guð-
rún Ína gott að geta gripið til
molanna þegar gesti ber að garði.
„Þá þarf ekkert endilega að borða
á jólunum, heldur er gott að eiga
þá með kaffinu.“
- rve
Sívinsælt
hátíðarsælgæti
Vinkonurnar Guðrún Ína Einarsdóttir og Guðrún Brynja Vilhjálmsdóttir hafa síðast-
liðin 24 ár kætt vini og vandamenn með heimagerðu konfekti um jólin.
Marsipanbrauð má
skreyta á ýmsa vegu,
til dæmis með
grænum marsipan-
laufblöðum og
kokkteilávöxtum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Vinkonurnar
fylgja ekki
lengur upp-
skrift við gerð
piparmyntu-
kúlanna.
MIRALE
Fákafeni 9
108 Reykjavík
sími: 517 1020
OPIÐ í dag
frá 10–20
Verið velkomin
í FÁKAFEN 9
( við hliðina á ísbúðinni )
15% afsláttur
af öllum ALESSI
vörum í dag
TILBOÐ
Opið
Mánudag 10–22
Þorláksmessu 10–22
Aðfangadag 10–12
www.mirale.is