Fréttablaðið - 21.12.2008, Qupperneq 46
22 21. desember 2008 SUNNUDAGUR
Hvað gaf jólasveinninn þér í skóinn?Hann gaf
mér pakka og í honum var rauð bók, ég man ekki
hvað hún er um. En veistu hvað, á morgun kemur
Hurðaskellir. Í bókinni sem við vorum að lesa áðan
var Hurðaskellir að skella hurðum og hann skellti svo
fast að hann gat ekki opnað hana aftur.
Veistu hvað gerist á jólunum?
Já, við fáum jólamat og hann heitir hangikjöt. Svo
held ég að ég fái Karíus og Baktus-mynd, Kung Fu
Panda-mynd og Dóru-mynd.
Áttu uppáhaldsjólalag?
Það heitir Í skóginum stóð kofi einn. Það er mjög
gaman að syngja það.
Brynja Jóhannsdóttir, þriggja ára
Kannski eru
jólasveinarnir
með galdralykil
Jólasveinarnir, jólamatur og jólagjafir voru leikskólabörnunum
á leikskólanum Dvergasteini, sem Sigríður Björg Tómasdótt-
ir tók tali, mjög hugleikin. Þau voru öll sammála um það að
desember væri mjög skemmtilegur mánuður.
Hvaða jólasveinn finnst þér skemmtilegastur?
Stúfur, hann er skemmtilegastur. Mér finnast pönnur
nefnilega svo skemmtilegar. Hann heldur á pönnu í
bókinni um jólasveinana.
Hvað ætlar þú að borða um jólin? Ég ætla að
borða rjúpu og hangikjöt heima hjá ömmu og afa. Ég er
stundum hjá þeim um jólin en stundum erum við bara
að spjalla heima. Það er svo gaman hjá mér um jólin.
Svo verð ég líka annars staðar, á veitingastað. Mér finnst
skemmtilegast um jólin að vera á veitingastað, fá pakka
og borða jólalegan mat.
Hvað langar þig í í jólagjöf? Ég veit það ekki. Einu
sinni komu pabbi og mamma með jólagjöf til mín.
Og ég vissi ekki hvað var inni í gjöfinni en svo opnaði
ég hana og í henni var skiptiborð fyrir dúkkurnar. Það
var líka bað í skiptiborðinu. Það þurfti að setja borðið
saman og pabbi minn gerði það. Núna geymi ég það
alltaf inni í skáp og líka eldhúsið mitt.
Ferðu á jólaball? Já, í leikskólanum og á sunnudeg-
inum í hinu árinu fer ég á jólaball að dansa í kringum
jólatré með ömmu, það er gaman.
Gaf jólasveinninn þér eitthvað í skóinn? Já, bangsa og mandarínu. Ég hef aldrei fengið
kartöflu, þegar börnin eru óþekk þá fá þau kartöflu. Ég er alltaf þæg í desember, þá er svo
gaman. Mér finnst svo skemmtilegt að leika mér í snjónum, ég reyndi að búa til snjókarl áðan
með vinum mínum en við gátum það bara alls ekki.
Elísabet Narda Santos, fjögurra ára
Af hverju höldum við upp á jólin? Af því að
einu sinni var kona með barn í maganum og það var
Jesúbarnið og svo var það alveg að fara að fæðast.
Ég er ekki viss, fæðist það kannski núna? Ég held að
það fæðist núna.
Hver er uppáhaldsjólasveinninn þinn? Það
er Stekkjastaur. Sko Stekkjastaur sem klifrar alltaf á
staurum, ekki sá sem sýgur ærnar. Grýla mamma
þeirra, hún flengir jólasveinana, ef þeir skella hurð-
inni og borða allan matinn.
Hafa jólasveinarnir gefið þér eitthvað í
skóinn? Já, alls konar dót, ég fékk svamp og hann
breytist í þvottapoka í baðinu. Svo fékk ég sápu sem
breytist í lit.
Langar þig að fá eitthvað í jólagjöf? Já, svona
stóran slöngudreka sem nær alveg upp á vegg, en
ekki alla leið upp í geiminn.
Halldór Orri Jónsson, fjögurra ára
Setur þú skóinn út í glugga? Já og ég fékk einu
sinni límmiða á gluggann og mynd af Askasleiki.
Eru jólasveinarnir góðir? Já og stórir og feitir. Þeir
eru prakkarar, maðurinn í Stundinni okkar segir að
þeir skelli hurðum og kíki inn um glugga og alls konar.
Í jólasveinabókinni er Kertasníkir með nebbann út í
loftið.
Hvað heitir mamma þeirra? Grýla og hún flengir
þá með vendi. Góða Grýla er til en vonda Grýla er
dauð.
Áttu uppáhaldsjólasvein? Hann heitir Ketkrókur.
Jólasveinarnir eru þrettán og þeir klifra upp vegginn til
að setja í skóinn. Ef við krakkarnir erum óþekk þá þýðir
það að við fáum ekkert í skóinn nema kartöflu.
Hvað langar þig í í jólagjöf? Ég vil fá svona stóran
jólasvein, kannski Hurðaskell.
Hvað gerist svo á jólunum? Við borðum mat;
hangikjöt, hreindýrakjöt, lambakjöt og nautakjöt.
Tómas Atlason, þriggja ára
Veistu hvers vegna við höldum upp á jólin? Já,
Jesú á afmæli.
Hlakkar þú til jólanna? Já. Og það er skemmtileg-
ast að fá pakka. Í fyrra fékk ég risastóran pakka með
póníhestum til að greiða. En ég á fimm dúkkur, því ég
er fimm ára.
Áttu uppáhaldsjólasvein? Mér finnst Hurðaskellir
skemmtilegastur, það er svo fyndið þegar hann skellir
hurðum.
Hefurðu séð jólasvein Já, um daginn. Þá fór ég í
Kaupþing þar sem pabbi er að vinna og það komu þrír
jólasveinar og voru að syngja jólalög. Og við fengum
kakó og vorum líka að mála piparkökur. Og svo fengum
við alls konar girnilegan mat, jólamat og sparimat.
En hefurðu séð jólasvein setja í skóinn hjá
þér? Nei, ég má ekki vera vakandi þegar hann kemur,
þá fæ ég ekkert í skóinn.
Hvernig kemst hann inn til að setja í skóinn?
Ég veit það ekki, kannski er hann með galdralykil. Pabbi
segir að hann komi í gegnum dyrnar þegar hann setur í skóinn, það er betra fyrir hann en að fara
í gegnum gluggann.
Sara Björk Ragnarsdóttir, fimm ára
Gríma Valsdóttir, þriggja ára
Hefur þú séð jólasvein? Já, ég var í afmæli einu
sinni og þá kom jólasveinn í afmælið. Hann gaf
okkur nammi því hann var á ferð og sá að við vorum
í afmæli og að okkur vantaði nammi. Jólasveinarnir
gefa okkur eitthvað fallegt í skóinn en ef krakkar eru
óþekkir í desember þá fá þeir kartöflu í skóinn eða
ekki neitt.
Áttu uppáhaldsjólalag? Bráðum koma blessuð
jólin.
Hvað langar þig í í jólagjöf? Mig langar í
prinsessubók, spólu með hundinum og sjóræningja
Dóru-mynd. Það er besta myndin mín.
Hvað er skemmtilegast um jólin? Bara allt, þá
er svo gaman í einn dag. Allir fá pakka og sumir eiga
afmæli þá en bara sumir.
Hvað langar þig í í jólagjöf? Ég vil fá stóran
dreka sem er samt ekki til í alvörunni. Ég vil fá dreka
sem er svartur og getur haft eldinn út og líka inn.
Veistu af hverju við höldum upp á jólin? Nei.
En einu sinni fórum við í kirkju og þá lærðum við
eitthvað um Jesú.
Hafa jólasveinarnir gefið þér eitthvað í
skóinn? Já alls konar, ég fékk dreka og pleymókall
í morgun.
Veistu hvernig þeir komast inn til að setja í
skóinn? Þeir klifra upp á rörin sem eru á húsunum,
opna gluggann og setja gjöf í skóinn. Einu sinni
þegar ég var í rúminu mínu sofandi þá kom Stekkja-
staur og hann bara hoppaði upp á þak og renndi sér
niður strompinn og gaf mér gjöf.
Sölvi Sturluson, þriggja ára