Fréttablaðið - 21.12.2008, Page 52
28 21. desember 2008 SUNNUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Mundu
bara að ég
þoli ekki að
tapa!
Stuðningshópur fyrir
kvenkyns dósasafnara
sem fíla karlmenn í
einkennisbúningum!
Ræðum
málin! Vel-
kom-
in!
Hmmm...
það kemur
engin í
dag!
Undarlegt! Ég
veit að þær eru
þarna úti!
Góðan
daginn hér!
Hæ, hvernig
gekk
veiðiferðin?
SEX... teldu
þá sjálf...
sex urriðar!
Og ég gerði
að þeim á
fagmannleg-
an hátt.
Þú?
Hvar
lærðirðu
það?
Í líffræði. Það
hefur enginn
krufið eins marga
froska og ég. Og
það skilar sínu.
Passaðu þig! Ég er
með villt augnaráð
í dag!
Ég er að verða
alveg VILLTUR!
Arg, þetta er
smitandi!
Því miður krakkar.
Þið hjálpuðuð mér
ekki að ganga frá
eftir matinn svo
þið megið
ekki horfa á
sjónvarpið í
kvöld.
Klikk
Kannski þið
munið eftir
verkefnum ykkar
á morgun.
Ekkert
sjónvarp?
Ég hef heyrt
um þetta en
bjóst aldrei
við að þetta
myndi henda
neinn sem
ég þekki!
Veljum íslenskt
Gefum góðar stundir
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Þjóðleikhúsið
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Hart í bak
Jökull Jakobsson
Verk sem snertir okkur öll. EB, FBL
Sala hafin á sýningar í janúar
Leitin að jólunum
Þorvaldur Þorsteinsson
sun. 21/12 þrjár sýningar, uppselt
Uppselt í desember!
Klókur ertu, Einar Áskell
Bernd Ogrodnik
Krúttleg brúðusýning fyrir yngstu börnin
Sýningar í janúar komnar í sölu
Sumarljós
Jón Kalman Stefánsson
leikgerð og leikstjórn Hilmar Jónsson
Frumsýning 26. desember
lau. 27/12 örfá sæti laus
sun. 28/12 örfá sæti laus
Gjafakort
Þjóðleikhússins
er sígild gjöf sem
gleður alla
www.leikhusid.is
Kardemommu-
bærinn
Sértilboð á gjafa-
kortum til áramóta.
NOKKUR ORÐ
Þórunn
Elísabet
Bogadóttir
Á þessum fjórða og síðasta sunnudegi í aðventu er nánast ómögulegt að skrifa um nokkuð annað en jólin. Einhvern
veginn finnst manni hálf óviðeigandi að
skrifa um kreppu og mótmæli eða kvarta
og kveina yfir einhverju, þó að af mörgu
slíku sé að taka. Á jólunum á einhvern
veginn allt að vera svo gott, þó svo að
þannig sé það alls ekki í raun og veru.
Alveg eins og heimilin þurfa að vera
hrein og bein þurfum við að láta
þannig líka. Eins og allt sé í himna-
lagi. En það er svo sem ekkert að því
að einbeita sér að hinu góða og
fallega, svona rétt yfir bláhátíð-
ina. Við Íslendingar eigum enga
þakkargjörðarhátíð, þó að sum
okkar hafi tekið upp hina
amerísku hefð á síðustu árum.
Upptaka sumra þessara banda-
rísku hátíða hefur farið í taugarn-
ar á mér, til hvers að halda upp á hrekkja-
vöku þegar við eigum öskudag, eða
Valentínusardaginn þegar við eigum bónda-
og konudag? Mér finnst annað gilda um
þakkargjörðarhátíð. Það er einfaldlega
frábært konsept að halda hátíðlegan dag
þar sem þakkað er fyrir það góða í lífinu og
það sem skiptir mestu máli. Hjá flestum
held ég að það séu fjölskylda og vinir,
en ekki peningar og hlutir.
Reyndar gegna jólin svolítið þessu
hlutverki hjá okkur. Og þótt þetta
virðist hálf vonlaust þá getum
við samt þakkað fyrir og
munað eftir öllu þessu fallega
og góða. Eftir áramót getum
við svo, og verðum, haldið
áfram að takast á við leið-
indin og erfiðleikana. En nú
er kominn tími á smá pásu.
Þegar jólin koma