Fréttablaðið - 21.12.2008, Qupperneq 56
32 21. desember 2008 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Guðmundur Guðmundsson skrifaði í gær undir samning við
danska úrvalsdeildarfélagið GOG sem þeir Snorri Steinn Guð-
jónsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson leika með. Guðmundur
mun þjálfa landsliðið áfram til ársins 2012 samhliða starfi
sínu hjá danska liðinu.
„Ég mun skrifa undir þriggja ára samning,“ sagði kampa-
kátur Guðmundur Guðmundsson þar sem hann var stadd-
ur í Danmörku að fara yfir samninginn sem hann býst við
að skrifa undir í dag.
„Þetta kom upp fyrir svona tæpum mánuði. Grosswalls-
tadt fylgdi svo í kjölfarið og það var mjög erfitt að gera
upp á milli þessara tilboða. Eftir að hafa vegið og metið
málið í smá tíma ákvað ég að taka þessu tilboði frá GOG
sem mér líst rosalega vel á. Þetta er spennandi félag með
mikla hefð. Handboltinn í Danmörku er líka mjög góður og
mikið fjallað um hann,“ sagði Guðmundur en það spilaði
einnig inn í ákvörðun hans að forráðamenn GOG voru ekki
að setja sig á móti því að hann stýrði íslenska landsliðinu
áfram. „Þeir voru mjög jákvæðir fyrir því strax frá upphafi. Ég
lagði mikla áherslu á að fá að halda áfram með landsliðið
þar sem eru spennandi tímar fram undan. Það hefði
verið erfiðara að gera það hjá Grosswallstadt,“ sagði
Guðmundur.
Það hefur mikið breyst í lífi Guðmundar síðustu
misserin en hann var í raun hættur þjálfun þegar
hann kom HSÍ til bjargar og tók við landsliðinu á nýjan
leik. Nokkrum mánuðum síðar er hann búinn að vinna
til verðlauna á Ólympíuleikunum og búinn að taka ákvörð-
un um að gera handboltann að sínu aðalstarfi á nýjan leik.
„Maður á aldrei að segja aldrei í lífinu. Ég fann það strax í
vor hvað ég hafði svakalega gaman að þjálfuninni. Þetta var
bara svo gaman og má kannski segja að ég sé búinn að finna
ánægjuna í handboltanum á nýjan leik. Þess utan er ég bara
kominn með nýja lífssýn. Ég hef þroskast mikið síðustu fjögur
ár og tel mig vera betri þjálfara nú en ég var áður,“ sagði
Guðmundur.
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON: TEKUR VIÐ SEM ÞJÁLFARI HJÁ GOG Í DANMÖRKU NÆSTA SUMAR
Það er alveg svakalega gaman að þjálfa
Enska úrvalsdeildin:
BLACKBURN ROVERS - STOKE CITY 3-0
1-0 Benni McCarthy (8.), 2-0 Jason Roberts (17.),
3-0 Benni McCarthy (26.).
BOLTON WANDERERS - PORTSMOUTH 2-1
1-0 Matthew Taylor (0.), 1-0 Matthew Taylor (0.),
2-0 Ricardo Gardner (2.), 2-1 Peter Crouch (19.).
FULHAM - MIDDLESBROUGH 3-0
1-0 Jimmy Bullard (39.), 2-0 Danny Murphy
(53.), 3-0 Clint Dempsey (58.).
HULL CITY - SUNDERLAND 1-4
0-1 Steed Malbranque (9.), 1-1 Nick Barmby
(18.), 1-2 Kieran Richardson (77.), 1-3 Kenwyne
Jones (83.), 1-4 Djibril Cissé (90.)
WEST HAM - ASTON VILLA 0-1
0-1 Lucas Neill, sjálfsmark (78.)
STAÐAN:
Liverpool 17 11 5 1 26-11 38
Chelsea 17 11 4 2 36-7 37
Aston Villa 18 10 4 4 30-20 34
Man. United 16 9 5 2 27-10 32
Arsenal 17 9 3 5 29-20 30
Hull City 18 7 6 5 27-31 27
Everton 17 7 4 6 23-25 25
Fulham 17 6 6 5 16-12 24
Bolton 18 7 2 9 22-24 23
Portsmouth 18 6 5 7 20-28 23
Wigan Athletic 17 6 4 7 21-20 22
Sunderland 18 6 3 9 21-26 21
Middlesbrough 18 5 5 8 17-27 20
Stoke City 18 5 5 8 17-30 20
Newcastle 17 4 7 6 22-24 19
Tottenham 17 5 4 8 19-21 19
West Ham 18 5 4 9 18-26 19
Manchester City 17 5 3 9 30-25 18
Blackburn 18 4 4 10 20-34 16
WBA 17 3 3 11 12-32 12
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Dalvíkingurinn Heiðar
Helguson skoraði tvö mörk fyrir
QPR þegar liðið lagði Preston, 3-
2, í ensku 1. deildinni í gær.
Heiðar lék þess utan allan leikinn
og virðist vera að finna sitt fyrra
form hjá nýju félagi.
Aron Einar Gunnarsson var í
byrjunarliði Coventry sem gerði
jafntefli við Ispwich, 2-2. Aron
Einar lék allan leikinn.
Jóhannes Karl Guðjónsson og
félagar í Burnley skelltu Bristol
City, 2-1, og var Jóhannes Karl í
byrjunarliði Burnley en var skipt
af velli á 55. mínútu.
Reading er komið í annað sæti
deildarinnar eftir sigur á
Birmingham, 3-1. Ívar Ingimars-
son lék allan leikinn fyrir
Reading og Brynjar Björn
Gunnarsson kom inn af bekknum
í síðari hálfleik.
Burnley er í fjórða sæti
deildarinnar, QPR í því níunda en
Coventry er í fjórtánda sæti. - hbg
Heiðar Helguson heitur:
Búinn að finna
markaskóna
HEITUR HEIÐAR Heiðar Helguson skor-
aði tvö mörk fyrir QPR í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Draumur Arons Pálm-
arssonar varð að veruleika í gær
þegar hann setti nafn sitt á fjög-
urra ára samning við Þýskalands-
meistara Kiel. Baráttan um þjón-
ustu þessa einhvers efnilegasta
handboltamanns heims er þar með
formlega lokið. Aron mun klára
tímabilið með FH hér heima og
heldur síðan utan til Kiel næsta
sumar.
„Mér líður alveg fáránlega vel.
Síðustu dagar hafa bara verið eins
og í ævintýri. Það er ekkert leiðin-
legt að vera búinn að skrifa undir
samning við Kiel,“ sagði Aron afar
kátur við Fréttablaðið í gær en
hann var þá staddur í Campushalle
í Flensburg þar sem hann sá vænt-
anlega liðsfélaga sína skella Flens-
burg í nágrannaslag.
Aron mun leika í treyju númer 4
hjá Kiel líkt og hann gerir með FH
en númerið 4 er hálfgert fjöl-
skyldunúmer enda lék faðir Arons,
Pálmar Sigurðsson, ætíð í treyju
númer 4 er hann spilaði með Hauk-
um í körfubolta á sínum tíma.
„Ég fer út næsta sumar og það
stóð aldrei til að ég færi eitthvað
fyrr til félagsins. Ég er búinn að fá
æfingaprógramm hjá félaginu svo
ég mæti sterkur til leiks.
Markmiðið er bara að koma sér
í liðið hjá félaginu en ég mun berj-
ast um miðjustöðuna við Norð-
manninn Borge Lund og svo getur
Karabatic reyndar líka spilað á
miðjunni,“ sagði Aron sem fer
einn utan til Þýskalands. „Það er
ekki nema ég verði búinn að finna
mér kærustu. Hver veit?“ sagði
Aron léttur að lokum.
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel,
var afar kátur þegar Fréttablaðið
náði tali af honum eftir sigurinn á
Flensburg í gær. Hann hefur mikla
trú á Aroni.
„Við ætlum að byggja hann upp
og hann verður vonandi mikilvæg-
ur leikmaður í framtíðinni hjá
okkur. Hann mun spila með okkur
strax næsta vetur. Þó svo hann sé
ungur hefur hann hæfileika til
þess að spila í leikjum eins og
gegn Flensburg,“ sagði Alfreð
sem telur Aron klárlega vera eitt
mesta efnið í handboltaheiminum
í dag.
„Hann er einn af þrem efnileg-
ustu leikmönnum heims. Hann á
ótrúlega bjarta framtíð fyrir sér.“
Það er mikill heiður að fá samn-
ing við stórlið eins og Kiel sem
kaupir bara bestu leikmenn
heims.
„Kiel kaupir bara þá bestu sem
eru á markaðnum. Aron er mun
þroskaðri handboltamaður en ald-
urinn gefur til kynna. Hann getur
orðið frábær handboltamaður ef
hann heldur rétt á spilunum. Það
eiga eftir að koma erfiðir tímar
hjá honum líka og margir hand-
boltamenn hafa lent í vandræðum
á sinni fyrstu leiktíð í þýsku
úrvalsdeildinni. Hann á framtíð-
ina fyrir sér og getur orðið heims-
klassaleikmaður til langs tíma,“
sagði Alfreð sem ákvað að fá Aron
til félagsins fyrir um fjórum mán-
uðum síðan.
henry@frettabladid.is
Getur orðið heimsklassaleikmaður
Hinn 18 ára gamli Aron Pálmarsson skrifaði í gær undir fjögurra ára samning við stærsta handboltalið
heims, Þýskalandsmeistara Kiel. Hann gengur í raðir félagsins næsta sumar. Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel,
segir að Aron eigi ótrúlega bjarta framtíð fyrir sér og geti orðið heimsklassaleikmaður til langs tíma.
FJÖLSKYLDAN MEÐ Í FÖR Aron sést hér
með föður sínum Pálmari Sigurðssyni,
systur sinni Svölu og móður sinni Arn-
dísi Heiðu Einarsdóttur. MYND/LIVING SPORTS
DRAUMURINN AÐ RÆTAST Aron setur hér nafn sitt á samninginn með Alfreð Gíslason þjálfara sér við hlið. MYND/LIVING SPORTS
FÓTBOLTI Bolton vann góðan sigur á
Portsmouth á heimavelli sínum í
gær. Ótrúleg byrjun Bolton lagði
grunninn að sigrinum en Bolton
skoraði tvö mörk á fyrstu þrem
mínútum leiksins. Gary Megson,
stjóri Bolton, hrósaði Matt Taylor
í hástert eftir leikinn en Taylor fór
afar illa með Hermann Hreiðars-
son í fyrsta markinu.
„Mér er ekkert sérstaklega vel
við að auglýsa fólk en ef enska
landsliðið er að leita að manni í
vandræðastöður þá er hægt að
gera margt vitlausara en skoða
Matt. Hann leggur á sig mikla
vinnu í hverjum leik og frammi-
staðan hans í dag var til eftir-
breytni,“ sagði Megson sáttur.
Tony Adams, stjóri Portsmouth,
var með Hermann í byrjunarlið-
inu annan leikinn í röð. Adams var
ekki sáttur við sitt lið.
„Við vorum ekki tilbúnir í þenn-
an slag og vorum hreinlega ekki
mættir til leiks í upphafi. Þetta
var alveg skelfilegt,“ sagði
Adams.
Sam Allardyce, nýráðinn stjóri
Blackburn, lét það ekki trufla sig
að framherjinn Roque Santa Cruz
hafi farið fram á að vera seldur á
föstudag. Hann gat þess utan ekki
spilað í gær gegn Stoke vegna
meiðsla. Benni McCarthy kom inn
í hans stað, skoraði tvö mörk.
„Ég er ekkert að spá í Santa
Cruz núna. Leikurinn og stigin
þrjú er það sem mestu skiptir.
Hvað varðar McCarthy þá var
hann frábær og óheppinn að skora
ekki þrennu,“ sagði Allaryce sem
lét vel í sér heyra á hliðarlínunni í
leiknum.
Tony Pulis, stjóri Stoke, var
æfur út í varnarmenn sína. „Jólin
komu snemma hjá Sam í ár. Ég
held að Blackburn hafi þrisvar
komist í teiginn hjá okkur og skor-
aði í öll skiptin.“ - hbg
Grétar Rafn vann Íslendingaslaginn gegn Hermanni og Sam Allardyce byrjaði með látum hjá Blackburn:
Bolton skoraði tvö á fyrstu þrem mínútunum
TÆKLING Grétar Rafn tæklar hér Niko Kranjcar í leiknum í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
> Kiel í vænlegri stöðu
Kiel vann sinn fimmtánda leik í röð í þýsku úrvalsdeildinni
í vetur er liðið lagði nágranna sína í Flensburg á útivelli,
29-37. Kiel er með fjögurra stiga forskot á toppnum og á
leik til góða á Lemgo sem er í öðru sæti. Lemgo tapaði
mikilvægum stigum er það lá gegn Gummersbach, 31-29.
Logi Geirsson skoraði þrjú mörk fyrir Lemgo
og Vignir Svavarsson tvö. Róbert Gunnarsson
skoraði sex mörk fyrir Gummersbach.
Gylfi Gylfason skoraði fjögur mörk
fyrir Minden sem vann Göppingen,
29-26. Rhein-Neckar Löwen vann
mikilvægan sigur á Magdeburg, 26-25,
þar sem Guðjón Valur skoraði þrjú mörk.
Einar Hólmgeirsson skoraði svo 6 mörk fyrir
Grosswallstadt sem vann Wetzlar, 32-34.