Fréttablaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 6
6 8. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
Skipholti 50b • 105 Reykjavík
®
MÓTMÆLI „Engar afskriftir“, var
meðal þess sem um fimmtíu til
sextíu mótmælendur hrópuðu við
höfuðstöðvar Landsbankans í
Austurstræti eftir hádegið í gær.
Einnig var þess krafist að þær Elín
Sigfúsdóttir, bankastjóri Lands-
bankans, og Birna Einarsdóttir,
bankastjóri Glitnis, láti af störfum
hjá bönkunum.
Hópur mótmælenda setti á svið
gjörning sem fólst í að kona í gervi
Elínar var borin út úr bankanum.
Einnig fóru nokkrir úr hópnum inn
í bankann og léku knattspyrnu í
afgreiðslusalnum. - kg
Mótmæli í gær:
Báru „Elínu“ út
úr bankanum
GJÖRNINGUR Mótmælendur báru konu
í gervi bankastjóra Landsbankans út úr
bankanum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðisstofn-
unum fækkar úr 23 í 6 og spara á
1300 milljónir króna á ári með
sameiningu stofnana og aukinni
sérhæfingu, samkvæmt skipu-
lagsbreytingum sem Guðlaugur
Þór Þórðarson heilbrigðisráð-
herra kynnti í gær.
Starfsemi á St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði verður breytt og spít-
alinn sérhæfður í öldrunarlækn-
ingum með áherslu á hvíldarinn-
lagnir. Sérfræðingum og fagfólki
verður boðið að starfa á nýrri
skurðstofu í Keflavík. Göngu-
deild meltingarsjúkdóma og lyf-
lækningar verða færðar á Land-
spítalann. Ekki er vitað hversu
miklum sparnaði þetta mun skila.
„Helvítis fokking fokk,“ sögðu
hátt í eitt hundrað starfsmenn St.
Jósefsspítala þar sem þeir biðu
eftir Guðlaugi Þór Þórðarsyni
heilbrigðisráðherra eftir blaða-
mannafund á Hilton hóteli síðdeg-
is í gær en framtíðaráform fyrir
spítalann höfðu verið kynnt
starfsmönnunum í hádeginu.
Eftir fundinn töldu þeir rök-
semdafærslu vanta og fjölmenntu
því niður á Hilton til að fá svör.
Starfsmennirnir sögðu að
breytingarnar væru einungis
hagsmunapólitík. Þeir voru sárir
og óskuðu eftir skýringum. Heil-
brigðisráðherra lofaði að ræða
málin með þeim í dag.
Fyrir utan breytingarnar á St.
Jósefsspítala á að spara 750 millj-
ónir með hagræðingu og breyttri
verkaskiptingu hjá LSH og
sjúkrahúsunum á suðvesturhorn-
inu og 550 milljónir með samein-
ingu heilbrigðisstofnana á lands-
byggðinni. Til verða sex
landshlutaeiningar.
Samkvæmt tillögunum á að efla
bráða- og slysamóttöku á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja, Heil-
brigðisstofnun Suðurlands (HSU)
og Sjúkrahúsi og Heilsugæslu-
stöð Akraness til að draga úr tví-
verknaði og þörf á þjónustu slysa-
og bráðamóttöku LSH.
Aukið samstarf verður í inn-
kaupum og upplýsingatækni á
milli stofnana. Þá hafa LSH og
HSU samstarf um rekstur skurð-
deildar á Selfossi. Hins vegar
verður vaktþjónusta á skurð-
deildum í Keflavík og Selfossi
lögð af.
Fyrirhugað er að segja upp
starfsfólki, fyrst og fremst stjórn-
endum. Þá verður rannsóknastof-
um fækkað, vaktsvæði heilsu-
gæslu sameinuð, sjúkraflutningar
endurskoðaðir og sjúkradeildum
fækkað. Það á að draga úr kostn-
aði og samnýta sérfræðiþekk-
ingu. ghs@frettabladid.is
Stofnunum verður fækkað og
skorið niður um 1300 milljónir
Heilbrigðisstofnunum verður fækkað um 17 samkvæmt skipulagsbreytingum sem heilbrigðisráðherra
kynnti í gær. Skorið niður um 1,3 milljarða og starfsfólki sagt upp. Skurðstofum lokað á St. Jósefsspítala.
HEILBRIGÐISMÁL Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðisráðherra
segir að með nýkynntum
tillögum um uppstokkun í
heilbrigðismálum sé ekki tjaldað
til einnar nætur heldur séu þetta
áform sem eiga að skila miklu til
lengri tíma litið en vonandi taki
það ekki meira en tvö ár.
Guðlaugur Þór sagði að
vinnuhópar skili útfærslum 19.
janúar og þá myndi skýrast
betur hvað yrði gert, hvað það
þýddi í fjármunum og hvenær
það kæmi til framkvæmda. Ljóst
þykir að fólki verður fækkað í
heilbrigðiskerfinu, einkum
stjórnendum. - ghs
Heilbrigðisráðherra:
Útfærslan kynnt
síðar í janúar
HEILBRIGÐISMÁL Árni Sverrisson, forstjóri St.
Jósefsspítala í Hafnarfirði, boðaði starfsmenn
spítalans á kynningarfund klukkan eitt í gær og
greindi þeim þar frá því að til stæði að breyta
spítalanum í öldrunarstofnun og færa allar
aðgerðir annað. „Það náttúrulega þustu allir á
fundinn sem mögulega gátu til að fá minnstu
innsýn í það sem er að gerast. Við höfum ekkert
fengið að vita annað en það sem blöðin hafa borið
okkur. Þetta er mjög neikvætt fyrir sjúklinga og
allur sá samstæði hópur sem vinnur á spítalanum
er í lausu lofti,“ sagði Benedikt Ó. Sveinsson
kvensjúkdómalæknir.
Mikil baráttustemning myndaðist þegar hátt í
hundrað starfsmenn St. Jósefsspítala reyndu að ná
tali af heilbrigðisráðherra í gær. Fram kom að um
120 starfsmenn vinna á spítalanum. „Við gerum
4.000 aðgerðir á 2.600 sjúklingum og þar af eru
um 640 aðgerðir á konum vegna þvagfæravanda-
mála. Þrjú hundruð konur með slík vandamál eru
á biðlista og þetta er meðal þess sem á að leggja
niður,“ sagði Benedikt.
Starfsmennirnir lýstu áhyggjum sínum af því að
mannauði spítalans yrði sundrað. „Þetta er
stórslys. Hæfnin liggur ekki í veggjum og
tækjum. Það er allt til staðar á spítalanum,“ sögðu
þeir og bentu á að það kostaði hundruð milljóna að
breyta spítalanum í öldrunarsjúkrahús. - ghs
Samstilltur hópur starfsmanna kynnti sér breytingar á St. Jósefsspítala í gær:
Hæfnin ekki í veggjunum
HEILBRIGÐISMÁL Ásgeir Theodórs, framkvæmdastjóri
lækninga á St. Jósefsspítala og Sólvangi, segist ekki
skilja hvaða forsendur séu gefnar fyrir breytingun-
um á starfsemi spítalans. „Þetta er heilbrigðisstofnun
sem byggir á gömlum merg og er gríðarlega skil-
virk,“ segir hann. Hann segir stofnunina hafa komið
vel út fjárhagslega, hafi til að mynda á síðasta ári
skilað rekstrarafgangi, en auki á sama tíma afköstin.
„Miðpunkturinn er alltaf sjúklingurinn, við höfum
ekki verið í neinni viðbyggingu og allt sem við höfum
fengið til reksturs hefur farið til lækninga. Hér er
einnig sérstök menning sem byggir á þjónustulund og
þeir sem hingað koma hafa verið afar ánægðir með
þá þjónustu sem þeir hafa fengið. Það er því nokkuð
undarlegt að starfsfólki á þessari stofnun, sem ég vil
segja að sé vandræðalaus, sé refsað með þessum
hætti. Það er þetta sem mönnum sárnar mest,“ bætir
hann við. - jse
Framkvæmdastjóri lækninga á St. Jósefsspítala og Sólvangi:
Segir hinum skilvirku refsað
ST. JÓSEFSSPÍTALI OG SÓLVANGUR Framkvæmdastjóri lækn-
inga undrast það að hagræðingin skuli bitna mest á þeim sem
hafa sýnt hvað mesta skilvirkni.
Eiga aðrir bankamenn að fara
að fordæmi Bjarna Ármanns-
sonar og skila hluta af háum
greiðslum sem þeir hafa fengið?
Já 94,7%
Nei 5,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Eiga íslensk stjórnvöld að
fordæma árásir Ísraelsmanna
á Gaza?
Segðu þína skoðun á visir.is
Á FUNDINUM
Benedikt Ó. Sveins-
son sérfræðingur í
kvensjúkdómum og
fæðingarhjálp tók þátt
í þessum óformlega
mótmælafundi á
Hilton í gær.
HEILBRIGÐISMÁL Hanna K. Friðriks-
dóttir aðstoðarmaður heilbrigðis-
ráðherra segir fyrirhugaða
tilfærslu á starfsfólki frá St.
Jósefsspítala til Suðurnesja ekki
tengjast áhuga Salt Investment á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Helga Sigrún Harðardóttur,
þingmaður Framsóknarflokks,
spurði heilbrigðisráðherra á
Alþingi í nóvember hvort til stæði
að auðmenn tækju yfir stofnuninni
en þá hafði Róbert Wessman,
stjórnarformaður Salt Invest-
ments, verið að skoða hana ásamt
starfsmönnum frá ráðuneytinu.
- jse
Breytingar á St. Jósefsspítala:
Tengjast ekki
Salt Investment
FÁ FUND MEÐ RÁÐHERRA Í DAG Áform eru um að breyta St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði í öldrunarspítala með hvíldarinnlögnum. „Helvítis fokking fokk,“
sagði sárt starfsfólkið þar sem það beið eftir að fá skýringar og röksemda-
færslu frá heilbrigðisráðherra. Starfsmenn fengu loforð um fund með
ráðherra í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BREYTINGARNAR
Á höfuðborgarsvæðinu
■ Á St. Jósefsspítala-Sólvangi verða
eingöngu öldrunarlækningar og hvíldarinn-
lagna
■ Meltingarsjúkdóma - og lyflækningadeild
verður tengd starfsemi á Landspítala.
■ Landspítalinn og Heilbrigðisstofnun Suð-
urlands reka saman skurðdeild á Selfossi
Á landsbyggðinni
■ Vaktir á skurðstofum á Selfossi og í Kefla-
vík verða lagðar af
■ Allar heilbrigðisstofnanir og heilsugæslu-
stöðvar á Norðurlandi verða sameinaðar í
eina undir forystu Sjúkrahússins á Akureyri,
sem verður Heilbrigðisstofnun Norðurlands.
Stofnunin mun meðal annars taka við
hlutverki ráðuneytisins varðandi samning
um heilsugæsluna á Akureyri
■ Allar heilbrigðisstofnanir og heilsugæslu-
stöðvar á Vesturlandi verða sameinaðar í
eina með höfuðstöðvar á Akranesi
■ Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja verður
sameinuð Heilbrigðisstofnun Suðurlands
sem jafnframt tekur við umsjón með samn-
ingi sem í gildi er milli Heilbrigðisstofnun-
arinnar á Höfn í Hornafirði og heilbrigðis-
ráðuneytisins
■ Heilbrigðisstofnunin á Patreksfirði sam-
einast Heilbrigðisstofnun Vestfjarða sem
hefur höfuðstöðvar á Ísafirði
■ Aukið verður enn frekar samstarf milli
Heilbrigðisstofnunar Austurlands og Sjúkra-
hússins á Akureyri
KJÖRKASSINN