Fréttablaðið - 08.01.2009, Page 25
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
HLÁTUR lengir lífið og telja sumir að hann megi nota til að
vinna úr hvers kyns vandamálum og hugarvíli. Goodheart hlát-
ur-markþjálfun verður kennd hjá Símey, símenntunarmiðstöð
Eyjafjarðar þann 13. janúar. www.simey.is
„Kápan er rosalega flott og er
meira að segja Calvin Klein,“ segir
Dísella Lárusdóttir söngkona og
hlær. „Hún er mjög hlý og fín. Ég
fékk kápuna um þarsíðustu jól frá
eiginmanninum en hann vissi að
ég væri að leita mér að kápu og
valdi hana handa mér.“
Dísella segir þó að sinn fatastíll
sé annars mjög einfaldur og að
hún spái ekki mikið í föt. „Ég fer í
þægileg föt og er mikil galla-
buxnatýpa, fer bara í gallabuxur
og út með hundana. Auðvitað er þó
gaman að klæða sig upp öðru
hverju en þá er það bara eitthvað
sem mér þykir flott en ekki það
sem er dýrast eða í tísku,“ segir
hún einlæg og bætir við kímin að
kannski sé hún ekki rétta mann-
eskjan í svona tískuumfjöllun. „Ég
eltist ekki við tískustrauma og
yfirleitt man ég ekki hvar ég kaupi
fötin.“
Starfi Dísellu fylgja þó glæsi-
kjólar og fallegur fatnaður og við-
urkennir hún að hugsa þurfi fyrir
slíku. „Ég verð að leggja svolítið í
það að líta faglega út. Þegar ég
syng á tónleikum þá þarf ég að
vera í fallegum kjólum og vel til
höfð. Hins vegar man ég ekkert
endilega hvar ég fékk kjólana.
Þegar ég sé þann rétta þá bara
gríp ég hann.“
Þessa dagana er Dísella meðal
annars að syngja með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. „Þetta er nátt-
úrulega algjör draumur. Þetta er
mín hljómsveit, sú besta í heimi!
Pabbi minn og afi voru í hljóm-
sveitinni og ég þekki flesta sem
þar eru þannig að þetta er dásam-
legt,“ segir hún hrifin en Dísella
syngur á Vínartónleikum sinfóníu-
hljómsveitarinnar og voru þeir
fyrstu haldnir í gærkvöldi. „Þetta
eru fernir tónleikar og hafa um
árabil verið meðal vinsælustu tón-
leika hljómsveitarinnar. Þetta er
mjög auðmelt klassísk tónlist og
hentar flestum.“
Dísella heldur síðan til Banda-
ríkjanna og syngur á tónleikum í
New Jersey í lok janúar. „Þar tek
ég þátt í Gliere Concerto sem er
rússneskur konsert eftir Rein-
hardt Gliere sem var uppi á róm-
antíska tímanum. Þetta er konsert
fyrir kóloratúra sópran og sinfón-
íuhljómsveit. Ofboðslega falleg
tónlist sem ég er spennt yfir að fá
að syngja.“ hrefna@frettabladid.is
Fékk kápuna í jólagjöf
Dísella Lárusdóttir heldur mikið upp á kápu sem hún fékk í jólagjöf frá eiginmanninum um þarsíðustu jól.
Kápan er merkt Calvin Klein en þó segist Dísella lítið spá í föt og merki heldur skipti þægilegheit mestu.
Kápuna góðu fékk Dísella í jólagjöf frá eiginmanni sínum um þarsíðustu jól. Kápan yljar vel á Íslandi en Dísella syngur á Vínartón-
leikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti
húsgögn
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
80%afslætti
valdar vörur á allt að