Fréttablaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 8. janúar 2009 3
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Í
gær hófust vetrarútsölur
opinberlega hér í París.
Reyndar hafa verslanir og
tískuhús verið meira og
minna með tilboð og útsölur
mánuðum saman svo það má
kannski segja að útsölur séu
löngu byrjaðar. Nú ætla kaup-
menn og tískuhönnuðir að reyna
að bjarga annars einstaklega
slæmri árstíð sem er að ljúka en
ekki eru allir bjartsýnir á að
viðskiptavinir tæmi hillur og
hengi búðanna. Það má til dæmis
sjá á því að í fyrsta skiptið í
manna minnum verða stórversl-
anir eins og Printemps og
Galeries Lafayette lokaðar
fyrsta sunnudag í útsölu.
En það eru ekki bara óveðurs-
ský yfir útsölum. Síðan í haust
eru teikn á lofti í lúxusgeiranum.
Samkvæmt dagblaðinu Le Monde
er í fyrsta skipti í tíu ár búist við
samdrætti á árinu 2009 og það
þrátt fyrir að sagt sé að á kreppu-
tímum gangi flottasti lúxusvarn-
ingurinn ágætlega út. Alltaf eru
einhverjir sem ekki finna fyrir
kreppunni en þar er kannski fyrst
og fremst átt við þá auðugustu.
Fyrirtæki eins og Hermès er und-
antekning og stendur af sér hvaða
ólgusjó sem er.
Níu prósenta vöxtur var árið
2007 í lúxusiðnaðinum, þriggja
prósenta á síðasta ári en spáð er
tveggja prósenta niðursveiflu á
nýju ári. Einhver myndi kannski
segja að það mætti þá aðeins
lækka verðið því hvergi er
álagningin hærri svo hneykslan-
legt þykir mörgum.
Það er þó langt frá því að stóru
tískuhúsin séu í hættu. Þau munu
einungis sýna minni gróða og
fara hægar í opnanir á nýjum
verslunum og jafnvel loka
sölustöðum sem ekki sýna
hagnað. Reyndar er þessi spá nú
þegar að koma fram. Um áramót
runnu tvö hundruð samningar út
án þess að vera endurnýjaðir hjá
Chanel, allt var þetta lausafólk
og skammtímasamningar, meðal
annars sextán í hinu sögufræga
fyrsta tískuhúsi Coco Chanel, rue
Cambon. Louis Vuitton hefur
hætt við að opna í Tókýó það sem
átti að verða eitt stærsta
tískuhús fyrirtækisins í heimi.
Svo eru þau fyrirtæki sem eru
smærri sem er hættara við að
hverfi. Meira en nokkru sinni
fyrr verður lúxusinn í höndum
risasamsteypna.
Svo eru þeir sem ekki láta
kreppuna hafa áhrif á sig eins og
Stella McCartney sem opnar nú
sína fyrstu búð í París en hingað
til hefur aðeins verið hægt að
nálgast framleiðslu hennar í
stóru magasínunum og hjá
Colette sem óneitanlega tak-
markar framboðið. Nýja búðin er
í Palais Royal-hverfinu þar sem
finna má tískulínur Stellu,
ilmvötn og lífrænar snyrtivörur
hennar, Care.
Svo er að sjá hvort frost-
ið í París sem hefur verið allt
að fimm gráður þessa vikuna
hleypi nýju lífi í sölu á vetar-
yfirhöfnum og ullarpeysum.
Gleðilegt ár!
bergb75@free.fr
Perlur og skraut koma mörgum í þraut
Twenty8Twelve tískulína Siennu
Miller verður sýnd á tískuvik-
unni í London í næsta mánuði.
Tískulína systranna
Siennu og Savönnuh
Miller verður í fyrsta
sinn sýnd á tískupöllum
á tískuvikunni sem
hefst í London í
næsta mánuði.
Sienna er þekkt
leikkona úr
myndum á borð
við Factory
Girl og Layer
Cake. Hún er þekkt
fyrir sérstæðan
fatastíl sem margar
stúlkur hafa reynt
að apa eftir. Það er
því ekki furða að
hún hafi tekið saman
höndum við systur
sína Savönnuh sem
er lærður tískuhönn-
uður en þær hanna
föt undir merkjun-
um Twenty8Twelve.
Nafn línunnar má
rekja til þess að
Sienna á afmæli 28.
desember.
Föt Siennu
á tískupall
Sienna þykir
klæða sig eftir-
minnilega.
læsilegur
kvenfatnaður
fyrir konur
á öllum aldri.
Skipholt 29b - 551 0770 basler.com
G
Útsalan
er hafin !
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
Vefta • Lóuhólum 2-4 • S: 557 2010 • & Þönglabakka 6 • S: 578 2051
ÚTSALA
Mikil verðlækkun
w w w. v e f t a . i s