Fréttablaðið - 08.01.2009, Side 30
8. JANÚAR 2009 FIMMTUDAGUR
Inga Kristjánsdóttir, næringarþerapisti D.E.T. leiðir ykkur í allan sannleikann
um hversu auðvelt það er í raun að breyta mataræðinu til batnaðar.
Upplýsingar og skráning í síma: 899 5020 eða á eig@heima.is
Farið verður með einföldum hætti yfir:
• Hvernig við getum náð stjórn á blóðsykrinum!
• Hvernig verðum við okkur úti um þau
næringarefni sem líkaminn þarfnast!
• Hvernig við getum auðveldlega öðlast
meiri orku, vellíðan og heilbrigði!
Í lok fyrirlestrar fáið þið leiðbeiningar um val á
heilsufæði. Innifalið í námskeiði er mappa með
uppskriftum og fróðleik.
Námskeiðið verður þriðjud. 13. janúar
og svo aftur þriðjud. 20. janúar
kl. 20-22. í Heilsuhúsinu Lágmúla.
Verð aðeins kr. 3.500.-
n á t t ú r u l e g a
Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi, Lágmúla, Selfossi & Akureyri
Langar þig að breyta
mataræðinu til batnaðar?
Veist þú ekki hvar þú átt að byrja?
Hvaða Spirulina ert þú að taka?
Árangur fer eftir gæðum
Gott fyrir ræktina og mikið álag.
Spirulina inniheldur mikið af blaðgrænu
og glyccogen, því meira glycogen sem er til
staðar í líkamanum við æfingar því betri árangur.
Blaðgræna eykur súrefnisflutning í blóðinu. Ef
Spirulina er tekið inn 1/2 tíma fyrir æfingar
eða annað álag gefur það aukið þrek, úthald
og einbeitingu.
Dregur úr pirringi, sleni og sætindaþörf, truflar
ekki svefn. Gæðastaðall ISO9001, ISO1401.
29 vítamín og steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega
GLA fitusýrur · SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans
Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og Fríhöfninni.
Aukið úthald,
þrek og betri líðan
V
o
ttað
100% lífræ
nt
www.celsus.is
Eva Margrét Einarsdóttir hefur
sigrað sjálfa sig, offitupúkann
og aðra í ýmsum langhlaup-
um, en hún fór fyrst af stað í
mikilli ofþyngd fyrir sex árum.
„Ég byrjaði að hlaupa 2002, eftir
hvatningu frá vinnufélaga, en
fram að því hafði ég aldrei stundað
íþróttir og verið of þung frá barn-
æsku,“ segir Eva, sem er hugbún-
aðarsérfræðingur hjá Glitni og Ís-
landsmeistari kvenna í Lauga-
vegshlaupinu 2008. Eva byrjaði að
hlaupa á þrítugasta aldursárinu, þá
um 30 kílóum þyngri en í dag.
„Í fyrstu hugsaði ég bara um
að verða grönn og fyrstu vikurnar
hrundu af mér kílóin. Ég var alsæl
en svo venst líkaminn álaginu og
ef maður er síborðandi þyngist
maður fljótt aftur. Ég skildi því
fljótt að lykill að góðu líkamsformi
er hóflegt borðhald í hlutfalli við
hreyfingu sem reglulega breytist í
álagi,“ segir Eva, sem eftir tveggja
vikna skokk fór á fund hlaupahóps-
ins Hálftímans sem hittist klukkan
hálfsjö tvo morgna í viku í Laugar-
dalslaug.
„Að hafa sig af stað var þrautin
þyngri og læddist út í lítinn hring
til að byrja með. Ég hafði aðeins
bisað heima í stofu á Orbitrek-stig-
vél og náð af mér tíu kílóum, en
kostur við hlaupin þótti mér tíma-
sparnaður og það að geta stundað
sportið úti,“ segir Eva sem mælir
með að fólk byrji á göngu og hlaup-
um til skiptis, á meðan þol byggist
upp.
„Það breytti öllu að fara í hlaupa-
hóp því þar fékk ég hvatningu til
að halda áfram. Í hlaupahópum er
alltaf einhver tilbúinn að fara ró-
lega með manni, því öll höfum við
verið byrjendur og alveg að drep-
ast á fyrstu metrunum. Ég hafði
lesið að ef maður héldi út hlaupin
í sex vikur yrði maður forfallinn,
einsetti mér að halda þann tíma út
og það stóð heima; ég hef ekki hætt
að hlaupa síðan,“ segir Eva sem í
dag hleypur samtals 50 til 90 kíló-
metra sex sinnum í viku.
„Ég hljóp Laugaveginn, frá
Landmannalaugum yfir í Þórs-
mörk, rúmu ári eftir að ég byrj-
aði fyrst að hlaupa, og heilt mar-
aþon hálfu öðru ári síðar. Síðan hef
ég hlaupið maraþon þrisvar og náði
síðast sjötta besta árangri íslenskr-
ar konu frá upphafi,“ segir Eva sem
sá síst fyrir að eiga eftir að standa
uppi sem sigurvegari þegar hún
reimaði fyrst á sig hlaupaskóna.
„Ég var aldrei góð í neinu og er nú
eins og sex ára í spenningi að keppa
því ég keppti aldrei í neinu þegar
ég var sex ára,“ segir Eva sem er
virkur félagi í Laugaskokki.
„Það er ekki bara andleg og lík-
amleg líðan sem hefur gjörbreyst,
því offita takmarkar mjög lífs-
gæði og brýtur mann niður and-
lega, heldur er félagslega hliðin
líka kostur. Við hlaup losnar svo
mikið endorfín að enginn leiðinleg-
ur getur stundað hlaup,“ segir Eva
og mælir með læknisskoðun áður
en hlaup hefst fyrir þá sem bera
þungar byrðar aukakílóa.
„Góðir hlutir gerast hægt, en
aðalatriðið er að gera eitthvað. Í
hlaupum felst mikill bruni og fita
hverfur fljótt, auk þess sem manni
líður dásamlega. Hlaupin verða svo
fljótt að lífsstíl og stórkostleg upp-
lifun að finna árangur, sem kemur
fljótt. Sigurvegaratilfinningin
fleytir manni svo áfram á flestum
stöðum í lífinu.“ - þlg
Hljóp af sér spik en í
sig lífsþrótt og gleði
Eva Margrét ákvað að halda út hlaupin í sex vikur, þegar hún byrjaði á þriðja tug kílóa þyngri árið 2002, en það er sá tími sem
tekur hlaupara að verða forfallinn fyrir hlaupaíþróttinni. Hér reimar hún á sig hlaupaskóna í blíðviðri nýársins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Eva háði baráttu við aukakílóin frá unga aldri og hætti að vigta sig orðin 96 kíló.
Neðst til vinstri er hún 21 árs með frænku sinni í New York. Efst til vinstri mátar hún
aðra skálm gamalla stuttbuxna sinna á Lanzarote í fyrra, orðin 62 kíló. Hún klæðist
sömu stuttbuxum í Noregi 1999, en hlaupamyndin er af henni nú í vikunni.
MECCA
SPA
"# $%&''''' %(()"*)